Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

642. fundur
9. september 2013 kl. 16:00 - 00:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ásgerður Kristín Gylfadóttir formaður
Reynir Arnarson varaformaður
Björn Ingi Jónsson aðalmaður
Guðrún Ingimundardóttir áheyrnarfulltrúi
Bryndís Bjarnarson
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson
Dagskrá
1.
Umhverfis- og skipulagsnefnd - 49
Málsnúmer 1308005F
Guðrún spurði um bílastæði við grunnskólann, bæjarráð tekur undir bókun í lið 11. og leggur til að bílastæði við Kátakot verði merkt.
Fundargerð samþykkt.
2.
Umhverfis- og skipulagsnefnd - 50
Málsnúmer 1308014F
Fundargerð samþykkt.
3.
Hafnarstjórn Hornafjarðar - 155
Málsnúmer 1306005F
Björn Ingi spurði um sjötta lið farþegaskipamál, umræður um markaðsmál kom fram að þau eru í skoðun.
Fundargerð samþykkt.
4.
Kaup á GPS tæki fyrir Hornafjarðarsöfn
Málsnúmer 201308065
Framhaldsumræða frá síðasta fundi.
Samþykkt.
5.
Tenging smáhýsa við fráveitu Sv.Hornafjarðar
Málsnúmer 201309003
Ásgerðu kynnti erindi frá Náttbóli ehf. um tengingu smáhýsa á tjaldsvæði við fráveitu Hornafjarðar.
Samkvæmt 5. gr. samnings Sveitarfélagsins við Náttból ehf. er heimilt að sækja um aðgang að fráveitu sveitarfélagsins.
6.
Stöðuleyfi Jökulsárlón.
Málsnúmer 201305042
Bréf frá lögfræðingi Must Wisit Iceland lagt fram, þar kemur fram að reksturinn hefur verið lagður niður og öll tæki verið fjarlægð.
7.
Austurbæjarvegur-niðurfelling af vegaskrá
Málsnúmer 201308021
Fyrirspurn til Vegagerðar var send vegna niðurfellingu vega, svar frá Vegagerðinni barst en þar er vísað í reglugerð um héraðsvegi.
Kemur fram að hægt er að fá vegi aftur á skrá ef búskapur hefst á ný á viðkomandi lögbýli.
Einnig kemur fram að héraðsvegur heldur sér ef atvinnustarfsemi er rekin reglubundið í nokkru umfangi og í hagnaðarskyni.
8.
Fjárhagsáætlun 2014 - forsendur
Málsnúmer 201309012
Haukur Ingi og Ásta mættu á fundinn undir þessum lið og gerðu grein fyrir forsendum fjárhagsáætlunar.
Guðrún spurði um íbúðir sem sveitarfélgið á og hvort nóg sé til af íbúðum fyrir starfsfólk.
Einnig kom fram að breytingar í fræðslumálum verða um áramót, gera þarf ráð fyrir þeim fjármunum þegar sveitarfélagið fer í samstarf við sveitarfélög á Suðurlandi.
Lögð fram til kynningar og vísað til áframhaldandi vinnu starfsmanna miðað viðumræður á fundinum.
9.
Fyrirspurnir - bæjarráð
Málsnúmer 201009100