Bæjarráð Hornafjarðar
647. fundur
21. október 2013
kl.
16:00
-
00:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Reynir Arnarson
formaður
Kristján Sigurður Guðnason
varaformaður
Björn Ingi Jónsson
aðalmaður
Guðrún Ingimundardóttir
áheyrnarfulltrúi
Bryndís Bjarnarson
Hjalti Þór Vignisson (HÞV)
bæjarstjóri
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson
Dagskrá
1.
Umhverfis- og skipulagsnefnd - 53
Guðrún, spurði um lið 5 hvernig ætti losun sorps við stofnanir bæjarfélagsins. Björn Ingi sagði það ekki hafa verið ákveðið hjá umhverfis-og skipulagsnefnd að breyta losun við stofnanir.
Bæjarráð leggur áherslu á að bæta umhverfi í Nesjahverfi eins og var ákveðið fyrir bæjarráði þar með talið göngusíg frá N1 upp í hverfi, trjágróður við íþróttasvæði og söfnun vatns á milli Mánagarðs og N1. Starfsmönnum falið að ganga frá málinu.
Fundargerð samþykkt.
2.
Skóla,íþrótta og tómstundanefnd - 39
Bæjarráð tekur undir afgreiðslu skólanefndar um leikskólamál.
Umræður um gjaldtöku og afslátt. Bæjarráð óskar eftir að gjaldskrár sveitarfélagsins verði teknar saman sem einn liður í bæjarráði í nóvember.
Kristján lýsti yfir ánægju með þann farveg sem forvarnarmál eru komin í og spurði um skýrslu frá Rannsókn og greiningu.
Bæjarráð óskar eftir að starfsmaður nefndarinnar komi á næsta fund bæjarráðs.
Fundargerð samþykkt.
3.
Hafnarstjórn Hornafjarðar - 156
Björn Ingi spurði um farþegaskip og framtíð starfsemi þeirra á Höfn og skipulagsmál við höfnina. Kom fram að aukning er í minni skipum. Einnig kom fram að hafnarstjórn er með umsjón með skipulagsmálum við höfnina.
Fundargerð samþykkt.
4.
Lántaka 2013
Haukur Ingi Einarsson og Ásta Guðmundsdóttir mættu á fundinn undir þessum lið. Gerði að tillögu að taka allt að 100 m.kr. að láni en bíða með afganginn af lánsloforði til nýs árs. Björn Ingi lagði áherslu á að skýrt verði hvaða upphæð þarf að taka að láni.
Bæjarráð samþykkir framlagða tillögu og leggur áherslu á að fá upplýsingar þegar heimildin er nýtt.
5.
Fjárhagsáætlun 2014
Haukur Ingi Einarsson og Ásta Guðmundsdóttir mættu gerði grein fyrir vinnu við gerð fjárhagsáætlunar og stöðu hennar.
6.
Álagningareglur 2014
Lagðar fram eftirfarandi tillögur um álagningareglur 2014:
Útsvar 14,48 % <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Fasteignaskattur A á íbúðahúsnæði 0,50 % af fm ( hám. 0,625%)
Fasteignaskattur B á opinberar stofn. 1,32 % af fm ( hám. 1,32% )
Fasteignaskattur C á atvinnuhúsnæði 1,62 % af fm ( hám. 1,65%)
Lóðaleiga 1 % af lóðamati
Holræsagjöld 0,30 % af fasteignamati
Vatnsgjöld 0,18 % af fasteignamati
Samþykkt að vísa til bæjarstjórnar.
7.
Urðunarstaður Lóni
Hjalti gerði grein fyrir samskiptum vegna áhættu- og viðbragðsáætlunar. Sagði að skilyrði væri að gera samkomulag við nágrannasveitarfélag um urðun ef loka þarf urðunarstað. Kom fram að leitað hafi verið til Breiðdalshrepps sem hafi tekið erindinu með jákvæðum hug.
Bæjarráð samþykkir að senda formlegt erindi til Breiðdalshrepps.
8.
Uppbygging við Jökulsárlón
Lagt fram tilkynningar.
9.
Ríkisstyrkir til flugsamgangna
Greint frá samskiptum við forsvarsmenn Ernis ehf. um viðræður félagsins við ríkið um samning um farþegaflug.
10.
Áform um sameiningu heilbrigðisstofnanna innan heilbrigðisumdæma
Matthildur Ásmundardóttir framkvæmdarstjóri HSSA mætti á fundinn undir þessum lið. Gerði grein fyrir fundi í Velferðarráðuneyti.
Guðrún spurði hvort nafnið á stofnunni muni halda og hvort stjórnskipulagið verði óbreytt.
Kom fram að margt er óljóst um þetta mál en komið hafi fram í máli ráðuneytisfólks að stefnt er að sameining muni ekki fela í sér mikla breytingu fyrir sveitarfélagið.
Bæjarráð leggur ríka áherslu á að þjónustusamningur um rekstur heilbrigðis- og öldrunarmála verði virtur og starfað verði samkvæmt honum hvort sem að sameiningu heilbrigðisstofnana verði eða ekki. Jafnframt er mikilvægt að virða til lengri tíma sjálfstæði Hornfirðinga varðandi rekstur málaflokksins sem hefur skilað margvíslegum árangri frá því að verkefnið var fyrst lagt á herðar sveitarfélagsins á 10. áratug síðustu aldar. Frumskilyrði er að grunnþjónusta haldist í héraði og uppbygging aðstöðu fylgi kröfum og þörfum nútímans. Sveitarfélagið Hornafjörður lýsir sig tilbúið til viðræðna, ef aðrar stórar sameiningar heilbrigðistofnanna ná fram að ganga.
11.
Byggðarkvóti
Kom fram að úthlutað hafi verið 140 tonnum til Hornafjarðar. Formaður bar upp tillögu um að reglur yrðu óbreyttar frá því í fyrra.
Samþykkt.
12.
Safnamál
Hjalti greindi frá viðræðum við forsvarsmenn Matís um framtíð Matarsmiðju sem nú er í hluta af húsnæði sem keypt var sem geymsluhús fyrir söfnin. Sagði jafnframt að söfnin nýttu hluta af gömlu Mjólkurstöðinni. Kom fram tillaga um að sveitarfélagið greiddi rafmangsreikninga í gömlu Mjólkurstöðinni þar til rýmkaðist um í Álaleiru.
Umræður um stöðu matarsmiðjunnar, óskað eftir að fá stöðvarstjóra Matís á Höfn á fund bæjarráðs.
Bæjarráð samþykkir viðauka við fjárhagsáætlun sem gerir ráð fyrir að koma rafmagni á Dalbraut 2 að nýju.
13.
Umsókn um lóð að Ófeigstanga 11
Vísað til umhverfis-og skipulagsnefndar og hafnarstjórnar.
14.
Fundargerð stjórnar SASS
Til kynningar.
15.
Fyrirspurnir - bæjarráð
Engar fyrirspurninr bárust.