Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

648. fundur
28. október 2013 kl. 16:00 - 00:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Reynir Arnarson formaður
Kristján Sigurður Guðnason varaformaður
Björn Ingi Jónsson aðalmaður
Guðrún Ingimundardóttir áheyrnarfulltrúi
Hjalti Þór Vignisson (HÞV) bæjarstjóri
Vala Björg Garðarsdóttir embættismaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir embættismaður
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri
Dagskrá
1.
Atvinnu- og menningarmálanefnd - 38
Málsnúmer 1310009F
Fundargerð samþykkt.
2.
Atvinnu- og menningarmálanefnd - 39
Málsnúmer 1310011F
Björn Ingi sagðist hafa óskað eftir gögnum um safnastefnu sl. föstudag en ekki hafa séð þau fyrr en sama dag og fundurinn fór fram.
Fundargerð samþykkt.
3.
Gjafa- og minningarsjóður Skjólgarðs - 66
Málsnúmer 1310010F
Guðrún spurði um rafræn minningarkort.
Ásgerður upplýsti að fyrirhugað væri að fólk gæti skrifað sjálft inn texta á sérstöku vefssvæði. Síðan væri kortið prentað út.
Kom fram að áfram verði hægt að kaupa minningarkort á hefðbundinn hátt.
Björn Ingi ræddi um setningu um gerð heimasíðu fyrir sveitarfélagið. Bæjarráð bendir á að engin áform eru uppi um að gera nýja heimasíðu en áfram verði unnið að uppbyggingu og endurbótum á núverandi heimasíðu.
Fundargerð samþykkt.
4.
Stjórn Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands - 38
Málsnúmer 1310008F
Bæjarráð felur starfsmönnum að senda þingmönnum og ráðherra bókun stjórnar HSSA varðandi sameiningar stofnana.
Fundargerð samþykkt.
5.
Lýðheilsa og forvarnir
Málsnúmer 201310041
Ragnhildur Jónsdóttur mætti á fundinn undir þessum lið. Rætt um hugmynd um þátttöku í könnum Rannsóknar og greiningar um líðan ungs fólks í grunn- og framhaldsskóla. Sveitarfélagið hafi stundum keypt niðurstöður þessarar könnunar, síðast árið 2012. Jafnframt hafi sveitarfélagið tekið þátt í öðrum könnunum. Kaup á þessum könnunum hefur numið nálægt miljón krónum á ári. Grunnskólinn er áskrifandi að Skólapúlsinum og sveitarfélagið að Skólavoginni sem gefa margvíslegar upplýsingar um skólasamfélagið. Jafnframt hefur sveitarfélagið sjálft unnið að slíkri könnun.
Bæjarráð sammála um að leggja áherslu á könnun sem sveitarfélagið sjálft vinni að.
6.
Fjárhagsáætlun 2014
Málsnúmer 201309012
Ásta Guðmundsdóttir og Haukur Ingi Einarsson mættu á fundinn undir þessum lið.
7.
Stefnumótun í safnamálum
Málsnúmer 201308036
Vala Garðarsdóttir gerði grein fyrir stefnumótun í safnamálum. Sagði Vala frá vinnu við skráningu og forvörslu gripa á vegum safnsins sem aldrei hefur farið fram. Guðrún hrósaði Völu fyrir að hafa komið skráningu í Sarp í góðan farveg.
Björn Ingi ræddi um mikilvægi þess að ef grisja eigi gripi úr eigu safnsins að bjóða fyrst þeim sem gáfu gripinn að taka hann til baka áður en honum verður ráðstafað með öðrum hætti, sé möguleiki á því.
Vala sagði að reglan væri sú að grisjun tæki mið af ástandi gripsins, hvort hann hefði sérstöðu eða væri einn af mörgum líkum.
Ásgerður ræddi í framhaldi um gjafir til safnsins og hvernig staðið væri að því.
Kristján gerði grein fyrir umræðum í nefndinni um framtíð Miklagarðs og leigusamninga um einstök rými.
Í framhaldi fór fram umræða um framtíðarnot efri hæðinar. Jafnframt hvort lagfæringar hafi verið kostnaðarmetnar og kannað hversu viðamiklar þær þurfi að vera til að taka á móti safngripum.
Bæjarráð tekur málið aftur fyrir á næsta fundi.
8.
Landbúnaðarstefna sveitarfélagsins
Málsnúmer 201212048
Hjalti gerði grein fyrir samstarfi um gerð stefnunnar við Búnaðarsambandið. Guðrún gerði áherslur um nýliðun í landbúnaði að umtalsefni og sagði það brýnt mál. Verkefnið væri hins vegar krefjandi og það þyrfti að vanda vinnu í framhaldinu vandlega.
Jafnframt rætt um grunnþjónustu í sveitum, eins og tómstundir og skólagöngu barna og mikilvægi þess að vinna markvisst í þeim efnum.
Bæjarráð samþykkir að vísa málinu til næsta fundar bæjarráðs.
9.
Ráðstefna um Hagsmunamál dreifbýlis
Málsnúmer 201310077
Hjalti greindi frá undirbúningsvinnu ráðstefnu um Hagsmunamál dreifbýlis sem haldin verður í Mánagarði 25. nóvember í samstarfi við Búnaðarsambandið. Landbúnaðarstefna sveitarfélagsins verður kynnt og undirrituð í upphafi ráðstefnunnar. Fyrirlestrar verða fjölbreyttir frá ýmsum stofnunum og aðilum, s.s. um stöðu í greinum hefðbundins landbúnaðar, Vatnajökulsþjóðgarð, jarðvegsmál og jarðhita.
Vísað til næsta fundar bæjarráðs.
10.
Stjórn Þórbergsseturs
Málsnúmer 201310075
Vala ræddi um samtöl hennar og forstöðumanns Þórbergsseturs um samstarf á ýmsum faglegum sviðum, s.s. rannsóknir, skráningu og fornleifarannsóknir.
Forstöðumanni Hornafjarðarsafna og bæjarstjóra falið að taka upp viðræður við Þórbergssetur um ofangreind mál.
Vala vék af fundi kl. 16.20.
11.
Atvinnuástand 2013
Málsnúmer 201310065
Kom fram að atvinnuástand er gott á Hornafirði. 0,8% atvinnuleysi mældist 1. október.
12.
Leyfi ferðaþjónustuaðila dreifibréf
Málsnúmer 201310079
Lagt fram uppkast af bréfi frá Cato lögmönnum um leyfismál fyrir byggingar ferðarþjónustuaðila. Bæjarráð sammála um að bréfið verði sent öllum íbúum og lögaðilum í sveitarfélaginu þar sem hvatt verður til þess að viðkomandi skoði hvort mannvirki, lausamunir eða annað sem kalli á leyfisveitingu af hálfu sveitarfélagsins, hafi slíkt leyfi. Jafnframt samþykkt að Cato lögmenn hafi eftirfylgd með þessu verkefni af hálfu sveitarfélagsins. Bæjarráð leggur áherslu á að ef ekki verði brugðist við með viðeigandi hætti þá verði viðkomandi aðilum sent ábyrgðarbréf með áskorun um úrbætur hið fyrsta.
13.
Ferðaþjónusta í Hafnarnesi
Málsnúmer 201310069
Hjalti gerði grein fyrir viðræðum við eigenda Hafnarness, Árnínu Guðjónsdóttur. Í framlögðu bréfi frá Árnínu er óskað eftir viðræðum um landspildur umhverfis Hafnarnes sem eru í eigu sveitarfélagsins. Starfsmönnum falið að taka saman gögn varðandi málið og umræddar landsspildur.
14.
Fundir sveitastjórna með fjárlaganefnd 2013
Málsnúmer 201309059
Farið í gegnum helstu áhersluatriði Hornafjarðar gagnvart fjárlaganefnd. Kom fram að fundur verður þriðjudaginn 29. október kl. 14.20 í Nýheimum. Fundurinn verður í fjarfundi.
15.
Umboð Sveitarfélagsins Hornafjarðar til kjarasamningsgerðar
Málsnúmer 201310057
Bæjarráð Hornafjarðar veitir Sambandi sveitarfélaga umboð til kjarasamningsgerðar við Félag íslenskra hjúkrunafræðinga til viðbótar við þau félög sem bæjarráð hefur nú þegar veitt Sambandinu.
16.
Gagnaveita - staða mála
Málsnúmer 201310082
Hjalti og Björn Ingi gerðu grein fyrir stöðu mála vegna uppbyggingar gagnaveitu í sveitum. Á næstu dögum verður ljósleiðari lagður í ídráttarrör í Suðursveit og fjarskiptakerfi byggt upp í kjölfarið. Jafnframt verður farið í viðræður við fjarskiptafyrirtæki um þjónustu um ljósleiðarann. Upplýst að verið sé að vinna í kostnaðarmati fyrir lagfæringar á kerfinu á Mýrum og uppsetningu í ljósleiðara á alla bæi sem eru í Suðrsveit.
17.
Umsókn um lóð Álaleira 4
Málsnúmer 1309022
Vegna formgalla í afgreiðslu bæjarráðs við umsókn um lóð að Álaleiru 4 samþykkir bæjarráð að afturkalla afgreiðsluna. Jafnframt felur bæjarráð starfsmönnum að hafa samráð við umsækjendur og ganga frá nýrri umsókn í samvinnu við þá.
18.
Fyrirspurnir - bæjarráð
Málsnúmer 201009100