Bæjarráð Hornafjarðar
649. fundur
4. nóvember 2013
kl.
16:00
-
00:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Reynir Arnarson
formaður
Kristján Sigurður Guðnason
varaformaður
Björn Ingi Jónsson
aðalmaður
Guðrún Ingimundardóttir
áheyrnarfulltrúi
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
bæjarstjóri
Bryndís Bjarnarson
upplýsinga og gæðastjóri
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson
Dagskrá
1.
Framvinda verkefna hjá Matís
Vigfús Ásbjörnsson stöðvarstjóri Matís á Höfn, gerði grein fyrir stöðu mála í starfstöð Matís á Höfn.
Umræður um verkefni Matís.
2.
Landbúnaðarstefna í Sveitarfélaginu Hornafirði
Bæjarráð vísar drögum að Búnaðarstefnu Sveitarfélagsins Hornarfjarðar til afgreiðslu í bæjarstjórn en bendir jafnframt á að stefnan er háð fjárhagsáætlun sveitarfélagsins hverju sinni.
3.
Stefnumótun í safnamálum
Bæjarráð vísar drögum að Safnastefnu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
4.
Þriggja ára áætlun
Bæjarráð vísar þriggja ára áætlun 2015-2017 til fyrri umræðu í bæjarstjórn.
5.
Samningur milli Gámaþjónustu Austurlands- Sjónarás ehf og sveitafélagsins
Lagt fram til kynningar.
6.
Rafræn ferða og íbúakort
Lagt fram til kynningar.
7.
Fjármál sveitarfélaga
Bæjarráð felur starfsmönnum að svara erindinu.
8.
Beiðni um staðfestingu á samningi og afsali um skipti sameignar Krossbæ
Bæjarráð vísar erindinu til umhverfis-og skipulagsnefndar og atvinnu-og menningarmálanefndar.
9.
Ráðstefna um Hagsmunamál dreifbýlis
Starfsmönnum falið að halda áfram undirbúningi ráðstefnunnar.
10.
Fundargerð SASS 471
Lögð fram til kynningar.
11.
Fundargerð SASS 472
Lögð fram til kynningar.
12.
Fundargerð Sambands íslenskra sveitarféalga nr. 809
Lögð fram til kynningar.
13.
Fyrirspurnir - bæjarráð