Bæjarráð Hornafjarðar
650. fundur
11. nóvember 2013
kl.
16:00

00:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Reynir Arnarson
formaður
Kristján Sigurður Guðnason
varaformaður
Guðrún Ingimundardóttir
áheyrnarfulltrúi
Valdemar Einarsson
1. varamaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
bæjarstjóri
Haukur Ingi Einarsson (HIE)
embættismaður
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Ásgerður Gylfadóttir
bæjarstjóri
Dagskrá
1.
Umhverfis- og skipulagsnefnd - 54

Rætt um lið 7 er varðar ferðaþjónustu í Hafnarnesi. Starfsmanni falið að gera samning við eiganda Hafnarness í samræmi við afgreiðslu bæjarráðs á fundi 575, þann 23. janúar 2012. Valdemar spurðist fyrir um lið 8 um ósk um stöðuleyfi við Fjallsárlón.

Fundargerð samþykkt.

2.
Atvinnu- og menningarmálanefnd - 40

Rætt var um heiti Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar. Gerði Ásgerður grein fyrir að Menningarmiðstöð Hornafjarðar væri enn til staðar, unnið væri að skilgreiningum undirdeilda Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar s.s Hornafjarðarsöfn. Upplýsti Ásgerður einnig um uppgjör við fyrri forstöðumann Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar.

Valdemar minnti á að vanda til fundarboðunar. Guðrún benti á mikilvægi þess að fundarmenn staðfesti móttöku fundarboðs. Kristján gerði grein fyrir breyttu vinnulagi við fundarboð nefndarinnar.

3.
Ólögleg efnistaka á Breiðamerkursandi.

Að gefnu tilefni skal það áréttað að öll efnistaka á Breiðamerkursandi er bönnuð án tilskilinna leyfa. Bæjarstjóra falið að vinna málið áfram í samráði við lögfræðinga sveitarfélagsins.

4.
Fjárhagsáætlun 2014

Rætt var um undanfarabíl fyrir slökkviliðið. Umræðu um undanfarabíl vísað til frekari vinnu. Haukur Ingi gerði grein fyrir fundi forstöðumanna, breyttum áherslum á fundi forstöðumanna og bæjarráðs o.fl þátta. Ásgerður upplýsti um íbúafundi vegna fjárhagsáætlunar 2014. Fundirnir verða haldnir 19. og 21. nóvember. Haukur Ingi gerði grein fyrir fyrirhugaðri leiðréttingu afskrifta í fjárhagsáætlunarlíkaninu og skoðun á breytingum á reiknaðri leigu Eignasjóðs til deilda.

Upplýst að tekið verði áður samþykkt lán að upphæð 100 m.kr. hjá Sparisjóði Hornafjarðar.

5.
Aðstaða dagvistar

Starfsmönnum falið að skoða mögulegar lausnir á næstunni.

6.
Uppbygging við Jökulsárlón

Bréf frá Jónatansson&co dags. 1. nóv. 2013 lagt fram til kynningar. Miklar umræður sköpuðust um það ófremdarástand sem ríkir við Jökulsárlón, einn fjölsóttasta ferðamannastað landsins.

7.
Umsókn um styrk

Vísað til almennra styrkumsókna.

8.
Ágangur hreindýra og girðingamál í Sveitarfélaginu Hornafirði

Til kynningar.

9.
Ríki Vatnajökuls -

Samþykkt að funda með stjórn Ríkis Vatnajökuls. Bæjarstjóri lagði til að boðað verði til fundarins 2.des. Samþykkt samhljóða.

10.
Þjóðlendunefnd

Drög að erindisbréfi lagt fram. Samþykkt með áorðnum breytingum.

11.
Umsókn um rekstrarleyfi fyrir Hlíðartúni 1

Bæjarráð frestar afgreiðslu erindis þar sem misræmi er í fyrirliggjandi gögnum. Vísað til starfsmanna að koma athugasemdum til skila.

12.
Fyrirspurnir - bæjarráð