Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

653. fundur
2. desember 2013 kl. 16:00 - 18:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Reynir Arnarson formaður
Kristján Sigurður Guðnason varaformaður
Björn Ingi Jónsson aðalmaður
Stephen Róbert Johnson 1. varamaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir bæjarstjóri
Ásta Halldóra Guðmundsdóttir (ÁHG)
Bryndís Bjarnarson
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson
Dagskrá
1.
Félagsmálanefnd Hornafjarðar - 246
Málsnúmer 1311004F
Fundargerð samþykkt.
2.
Stjórn Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands - 39
Málsnúmer 1311010F
Fundargerð samþykkt.
3.
Umhverfis- og skipulagsnefnd - 55
Málsnúmer 1311012F
Fundargerð samþykkt.
4.
Hafnarstjórn Hornafjarðar - 158
Málsnúmer 1311008F
Fundargerð samþykkt.
5.
Gjafa- og minningarsjóður Skjólgarðs - 67
Málsnúmer 1311011F
Fundargerð samþykkt.
6.
Ríki Vatnajökuls -
Málsnúmer 201211064
Hjalti Þór Vignisson, Árdís Halldórsdóttir, Laufey Guðmundsdóttir, Guðrún Sigurðardóttir og Knútur Bruun mættu á fundinn undir þessum lið.
Farið var yfir málefni Ríkis Vatnajökuls og ráðstefnu sem RV hélt í byrjun nóvember þar kom fram að ferðaþjónusta fer ört vaxandi. Fjölmargir gestir sækja sýsluna heim eins og komið hefur fram, ágangur orðinn mikill á mörg svæði og í þéttbýlinu. Ríki Vatnajökuls leggur áherslu á samstarf við Sveitarfélagið í áframhaldandi uppbyggingu. Kom fram að nánast öll fyrirtæki sem tengjast ferðaþjónustu eru í Ríki Vatnajökuls og hluti af matvælaframleiðendum. Umræður samning Ríkis Vatnajökuls og sveitarfélagsins og framtíð ferðaþjónustu allt árið með öryggi ferðamanna að leiðarljósi.
7.
Fjárhagsáætlun 2014
Málsnúmer 201309012
Björn Þór Imsland mætti á fundinn undir þessum lið farið var yfir kostnaðaráætlun við hugsanlegar framkvæmdir í Miklagarði og framkvæmdayfirlit ásamt drögum að stofnbúnaði.
Stofnbúnaðarramma vísað til síðari umræðu um fjárhagsáætlun í bæjarstjórn.
8.
Álagningareglur 2014
Málsnúmer 201310062
Bæjarráð samþykkir hækkun útsvarshlutfalls í 14,52% með fyrirvara um að frumvarp um hækkun hámarksútsvars verði að lögum. Útsvar hækkar þá um 0,04%, úr 14,48% í 14,52%. Gert er ráð fyrir að álagningarhlutfall tekjuskatts lækki um samsvarandi hlutfall þannig að ekki verði um heildarhækkun tekjuskatts og útsvars að ræða. Þessar breytingar eru í samræmi við efni viðauka sem gerður hefur verið við samkomulag ríkis og sveitarfélaga frá 23. nóvember 2010 um tilfærslu þjónustu við fatlað fólk frá ríki til sveitarfélaga.
Álagningarreglur 2014.
Útsvar verður 14,52 % í stað 14,48%.
Vísað til síðari umræðu bæjarstjórnar.
9.
Samningar
Málsnúmer 201311038
Farið yfir samning við Björgunarsveitina Kára í Öræfum.
Bæjarstjóra falið að ganga frá nýjum húsaleigusamningi.
Bæjarstjóri gerði grein fyrir samningi við Matís, umræður um starfsemi Matís á Höfn.
Umræður um samning við Verkfræðiþjónustuna ehf.
10.
Áhaldahús - skipulag
Málsnúmer 201311035
Bæjarstjóri gerð grein fyrir starfsmannamálum í Áhaldahúsi.
Björn Ingi leggur áherslu á að öll ný störf séu auglýst.
11.
Fundargerð Sambandsins 810
Málsnúmer 201311069
Fundargerð lögð fram til kynningar.
12.
Fyrirspurnir - bæjarráð
Málsnúmer 201009100
Engar fyrirspurnir bárust.