Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

659. fundur
20. janúar 2014 kl. 16:00 - 18:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Reynir Arnarson formaður
Kristján Sigurður Guðnason varaformaður
Björn Ingi Jónsson aðalmaður
Guðrún Ingimundardóttir áheyrnarfulltrúi
Ásgerður Kristín Gylfadóttir bæjarstjóri
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Ásgerður Gylfadóttir bæjarstjóri bæjarstjóri
Dagskrá
1.
Félagsmálanefnd Hornafjarðar - 248
Málsnúmer 1312009F
Jón Kristján Rögnvaldsson, félagsmálastjóri sat fundinn undir þessum lið. Umræða um fyrsta lið fundargerðarinnar, tillaga nefndarinnar að aðeins sé gerð vísitöluhækkun á heimsendum mat frá mötuneyti HSSA. Bæjarráð samþykkir tillöguna. Gjaldskrármál skarast á milli HSSA og félagsmálasviðs. Unnið verður að betri samræmingu þar á milli.
Fundargerð samþykkt.
2.
Atvinnu- og menningarmálanefnd - 45
Málsnúmer 1401002F
Vala Garðarsdóttir, forstöðumaður sat fundinn undir þessum lið. Umræður sköpuðust um Miklagarð og Atvinnu- og rannsóknarsjóð. Fundargerð samþykkt.
3.
Styrkumsóknir til bæjarráðs 2014
Málsnúmer 201401017
Umsóknirnar voru til kynningar á síðasta fundi. Úthlutun afgreidd samkvæmt umræðum á fundinum.
4.
Reglur um afslátt af fasteignaskatti
Málsnúmer 201401032
Kynntar breytingar á reglunum sem er uppfæsla á tekujumörkum og hámarki afsláttar samkvæmt 7.gr. þ.e. hækkun skv. launavísitölu í nóvember sl. 2,3% hækkun. Bæjarráð samþykkir reglurnar.
5.
Gjaldskrárhækkanir
Málsnúmer 201401037
Haukur Ingi sat fundinn undir þessum lið. Tekið fyrir og rætt bréf frá ASÍ varðandi gjaldskrárhækkanir. Bæjarráð telur að gætt hafi verið ítrasta aðhalds í breytingum á gjaldskrám fyrir fjárhagsáætlun ársins 2014.
6.
Nýheimar, samningur um rekstrarframlag 2014
Málsnúmer 201401033
Til kynningar. Samkvæmt drögum að samningnum sem gildir út árið 2016 er tryggt fjármagn til starfseminnar á samningstímanum.
7.
Fullorðinsfræðsla og fjarnám á háskólastigi
Málsnúmer 201303003
Lagt fram erindi frá Mennta- og menningarmálaráðuneytinu þar sem farið er fram á að Sveitarfélagið Hornafjörður leggi til húsnæði án endurgjalds árið 2014 til framhaldsfræðslunnar (áætl 1.5 mkr.). Bæjarráð samþykkir þá ósk nái aðrir þættir fjármögnunar verkefnisins fyrir árið 2014 fram að ganga.
8.
Þvingað val á leikskólum
Málsnúmer 201401039
Lagt fram bréf frá Bergþóru Ágústsdóttur varðandi leikskólamál. Erindinu vísað til umfjöllunar í skóla-, íþrótta- og tómstundarnefnd og félagsmálanefnd.
9.
Lambleikstaðir - Endurnýjun rekstrarleyfis
Málsnúmer 201401020
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við endurnýjun leyfisins.
10.
Þorrablót Suðursveit 2014
Málsnúmer 201401031
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við útgáfu leyfisins.
11.
Þorrablót Nesja-og Lónmanna
Málsnúmer 201401034
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við útgáfu leyfisins.
12.
Ósk um umsögn, breyting á Aðalskipulagi.
Málsnúmer 201401035
Vísað til umhverfis- og skipulagsnefndar.
13.
Fyrirspurnir - bæjarráð
Málsnúmer 201009100
Engar borist.