Bæjarráð Hornafjarðar
660. fundur
27. janúar 2014
kl.
16:00
-
18:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Reynir Arnarson
formaður
Kristján Sigurður Guðnason
varaformaður
Björn Ingi Jónsson
aðalmaður
Guðrún Ingimundardóttir
áheyrnarfulltrúi
Bryndís Bjarnarson
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson
Dagskrá
1.
Atvinnu- og menningarmálanefnd - 46
Vala Garðarsdóttir sat fundinn undir þessum lið og gerði grein fyrir fundargerð atvinnu-og menningarmálanefndar.
Umræður um reglur menningarverðlauna.
Fundargerð samþykkt.
Umræður um reglur menningarverðlauna.
Fundargerð samþykkt.
2.
Skóla,íþrótta og tómstundanefnd - 42
Ragnhildur Jónsdóttir sat fundinn undir þessum lið og gerði grein fyrir fundargerð skóla,-íþrótta-og tómstundanefndar.
Umræður um 3. lið í fundargerðinni um þvingað val á leikskólum.
Umræður um 5. lið húsnæðisþörf fræðslusviðs Björn Ingi benti á að þarfagreining hafi verið gerð, starfsmönnum falið að finna greininguna. Guðrún lýsti yfir ánægju með að auglýsa eigi eftir skólastjóra í afleysingastöðu.
Bæjarráð tekur undir hamingjuóskir nefndarinnar til nemenda og starfsfólks Grunnskólans í Hofgarði.

3.
Umhverfis- og skipulagsnefnd - 58
Rúnar Sigurðsson mætti á fundinn undir þessum lið og gerði grein fyrir fundargerð umhverfis-og skipulagsnefndar.
Umræður um 1. lið landaskipti Bjarnanesi.
Umræður 2. lið um gjaldskrá byggingafulltrúa.
Farið var yfir 10 lið stöðuleyfi við Jökulsárlón.
Bæjarráð Hornafjarðar leggur höfuðáherslu á að nú þegar verði hafin vinna samkvæmt samþykktu deiliskipulagi við Jökulsárlón og mun ekki veita ný leyfi fyrir öðru en því sem samræmist deiliskipulaginu.

4.
Samningur við Hólabrekku ehf.
Jón Kristján Rögnvaldsson mætti á fundinn undir þessum lið og greindi frá stöðu mála.
5.
Lyfta í Grunnskóla Hornafjarðar
Bæjarráð felur starfsmönnum að kostnaðarmeta beiðnina og leggja fyrir næsta fund bæjarráðs.
6.
Ríki Vatnajökuls -
Bæjarráð bendir á að í fjárhagsáætlun fyrir árið 2014 er gert ráð fyrir þriggja milljóna framlagi samkvæmt samningi og að auki verði þriggja milljóna framlag vegna ársins 2014 og verði samtals sex milljónir.
Bæjarstjóra falið að hefja undirbúning að nýjum samningi.
Bæjarstjóra falið að hefja undirbúning að nýjum samningi.
7.
Humarhátíð 2014
Kristján gerði grein fyrir undirbúningsvinnu að Humarhátíð 2014 sem verður helgina 27.-29. júní.
Sömu aðilar munu sjá um Humarhátið 2014 og gerðu 2013.
Bæjarstjóra falið að færa kennitölu Humarhátíðarinnar yfir til sveitarfélagsins skv. samningi þar um.
Sömu aðilar munu sjá um Humarhátið 2014 og gerðu 2013.
Bæjarstjóra falið að færa kennitölu Humarhátíðarinnar yfir til sveitarfélagsins skv. samningi þar um.
8.
Fundargerð HAUST 114
Fundargerð lögð fram.
9.
Nýsköpunarkeppni grunnskólanna - beiðni um styrk
Vísað til skóla,-íþrótta-og tómstundanefndar.
10.
Fyrirspurnir - bæjarráð
Engar fyrirspurnir hafa borist.