Bæjarráð Hornafjarðar
664. fundur
17. febrúar 2014
kl.
16:00
-
18:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Reynir Arnarson
formaður
Kristján Sigurður Guðnason
varaformaður
Björn Ingi Jónsson
aðalmaður
Guðrún Ingimundardóttir
áheyrnarfulltrúi
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
bæjarstjóri
Bryndís Bjarnarson
upplýsinga og gæðastjóri
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson
Dagskrá
1.
Félagsmálanefnd Hornafjarðar - 249
Jón Kristján Rögnvaldsson félagsmálastjóri sat fundinn undir þessum lið. Kom fram að samnigur við Hólabrekku er í vinnslu.
Umræður um mál nr. 2 þvingað val á leikskóla kom fram að skoðanakönnun er í vinnslu og hægt að nýta niðurstöður hennar í áframhaldandi vinnu. Björn Ingi benti á mikilvægi þess að skoða árgangaþróun.
Fundargerð samþykkt.

2.
Umhverfis- og skipulagsnefnd - 59
Gunnlaugur Rúnar Sigurðsson sat fundinn undir þessum lið.
Kom fram ábending um að fundargerðin sé ekki rétt. í sjötta lið gleymdist að geta þess að Ásgrímur vék af fundi og undir sjöunda lið, Fjallsárlón þar sem tillögunni var vísað til annarar umræðu í bæjarstjórn sem er ekki rétt.
Björn Ingi ræddi um deiliskipulag HSSA og stækkun á þjónustusvæði, umræður um svör umhverfis-og skipulagsnefndar vegna athugasemda um tillögunnar.

3.
Fundargerðir Ungmennaráðs 2014
Ungmennaráð sveitarfélagsins mætti á fundinn undir þessum lið og gerðu grein fyrir fudnargerðum ráðsins.
Ungmennaráðsfulltrúar sem mættu á fundinn:
Þorlákur Helgi Pálmason
Dóra Björg Björnsdóttir.
Sigrún Salka Hermannsdóttir.
Kristjana Hafdal Þorvarðardóttir.
Hildur Hansdóttir.
Vilhjámur Magnússon starfsmaður ungmennaráðs mætti einnig á fundinn.
Farið yfir fundargerð funda ungmennaráðs og ræddir þeir þættir sem þar komu fram.
Ungmennaráð mun á næstunni funda í ráðhúsi.

4.
Málefni Akureyjar
Málinu vísað til umræðu í atvinnu- og menningarmálanefnd.
5.
Könnun um húsnæðismál á Suðurlandi
Til kynningar. Starfsmenn vinna að svörum á könnuninni.
6.
Gjaldskrá BUS. 2014.
Gunnlaugur Rúnar Sigurðsson sat fundinn undir þessum lið.
Umræður um gjaldskrána og byggingarkostnað.
Björn Ingi benti á að færa lið um bílskúr og bílskýli í flokk með íbúðarhúsnæði í samræmi við ákvörðun nefndarinnar.
Bæjarráð samþykkir framlagða gjaldskrá með áorðnum breytingum og vísar henni til afgreiðslu bæjarstjórnar.

7.
Framvinda verkefna hjá Matís
Bæjarstjóri fór yfir fund sinn með fulltrúum frá Matís sl. föstudag.
Björn Ingi lagði til að farið verði í viðræður við Heppu Matarhöfnina um uppbyggnigu á þróunareldhúsi í stað þess sem Matís rekur.
Kom fram að Ásgerður hefur óskað eftir fundi með eigendum Heppu Matarhafnar.
Bæjarráð tekur heilshugar undir að þessar viðræður fari fram.

8.
Aðalskipulag Fljótsdalshrepps
Vísað til umhverfis- og skipulagsnefndar.
9.
Starfsmannamál - ráðhús
Haukur Ingi mætti á fundinn undir þessum lið og gerði grein fyrir breyttum áformum fjölskyldu sinnar að námsleyfi loknu.
10.
Fyrirspurnir - bæjarráð
Björn Ingi bar upp fyrirspurn um vatnssöfnun undir Hrossabithaga, hvort hægt sé að leiða vatn út frá svæðinu.