Bæjarráð Hornafjarðar
665. fundur
24. febrúar 2014
kl.
15:00
-
18:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Reynir Arnarson
formaður
Kristján Sigurður Guðnason
varaformaður
Björn Ingi Jónsson
aðalmaður
Guðrún Ingimundardóttir
áheyrnarfulltrúi
Bryndís Bjarnarson
upplýsinga og gæðastjóri
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
bæjarstjóri
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson
Dagskrá
1.
Atvinnu- og menningarmálanefnd - 48
Umræður um málefni Akureyjar.
Bæjarráð leggur til að farið verði í lágmarksendurbætur samkv. umræðum á fundinum starfsmönnum falið að ganga frá málinu.
Guðrún benti á að verk eftir Svavar Guðnason í eigu sveitarfélagsins hafi verið lánuð til sýnignarhalds í Hollandi, bar upp fyrirspurn hvort verkin hafi skilað sér til baka.
Starfsmanni falið að komast að hvort verkin hafi skilað sér.

2.
Skóla,íþrótta og tómstundanefnd - 44
Ragnhildur Jónsdóttir mætti á fundinn undir þessum lið.
Kristján spurði hvenær útboð um skólamáltíðir verði auglýst, Ragnhildur sagði það muni gerast á næstu dögum.
Kristján spurði hvenær útboð um skólamáltíðir verði auglýst, Ragnhildur sagði það muni gerast á næstu dögum.
3.
Deiliskipulag HSSA
Eigendur Hótels Hafnar óskuðu eftir fundi með bæjarráði til að útskýra innsendar athugasemdir sínar.
Bæjarráð leggur til við umhverfis-og skipulagsnefnd að afgreiðslu athugasemda verði frestað og umsagnaraðilum gefin kostur á að styðja sínar athugasemdir með frekari gögnum.
Stefnt er að því að taka deiliskipulagstillöguna til afgreiðslu á aprílfundi bæjarstjórnar.

4.
Viðurkenning safna-ábyrgðarsafn
Bréf lagt fram til kynningar. Bæjarráð óskar Hornafjarðarsöfnum til hamingju með þessa mikilvægu viðurkenningu.
5.
Styrktarsjóður EBÍ 2014
Bréf lagt fram til kynningar. Starfsmönnum falið að kynna möguleika á styrkumsóknum fyrir forstöðumönnum stofnanna sveitarfélagsins.
6.
Könnun um húsnæðismál á Suðurlandi
Drög að svörum lögð fram, bæjarstjóra falið að ganga frá svari.
7.
Ósk um styrktarsamning við Skotfélag Hornafjarðar
Bæjarstjóri kynnti drög að samningi við Skotfélagið.
Guðrún sagði sína skoðun að sveitarfélagið eigi ekki að styrkja félagstarfs sem er ekki með barna-og unglingastarf. Umræður um starfsemi skotfélaga.
Bæjarráð óskar eftir áætlun félagsins um ungmennastarf og reglur þar að lútandi.
Bæjarstjóra falið að vinna áfram að málinu.

8.
Lögreglan Höfn - staða mála
Bæjarstjóri gerði grein fyrir samskiptum sínum við innanríkisráðuneytið og lögregluna á Höfn um starfsemi lögreglunar.
Bæjarráð leggur áherslu á að starfstöð lögreglunar á Höfn verði tryggður sá mannafli og fjármunir sem þarf til að geta unnið þau störf sem hún þarf að sinna.
Bæjarráð leggur áherslu á að starfstöð lögreglunar á Höfn verði tryggður sá mannafli og fjármunir sem þarf til að geta unnið þau störf sem hún þarf að sinna.
9.
Starfsmannamál - erindi frá forstöðumönnum
Ragnildur sat fundinn undir þessum lið. Lagt fram bréf frá forstöðumönnum þar sem fram koma svör við upplýsingum sem bæjarráð óskaði eftir.
Vísað til fjárhagsáætlunargerðar 2014.
Vísað til fjárhagsáætlunargerðar 2014.
10.
Reglur fyrir leikskólana á Hornafirði
Ragnhildur sat fundinn undir þessum lið. Umræður um reglur leikskólanna.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við reglur fyrir leikskólana á Hornafirði og vísar þeim til bæjarstjórnar til afgreiðslu.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við reglur fyrir leikskólana á Hornafirði og vísar þeim til bæjarstjórnar til afgreiðslu.
11.
Fyrirspurnir - bæjarráð
Engar borist.