Bæjarráð Hornafjarðar
667. fundur
10. mars 2014
kl.
16:00
-
18:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Reynir Arnarson
formaður
Kristján Sigurður Guðnason
varaformaður
Björn Ingi Jónsson
aðalmaður
Guðrún Ingimundardóttir
áheyrnarfulltrúi
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
bæjarstjóri
Bryndís Bjarnarson
upplýsinga og gæðastjóri
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson
Dagskrá
1.
Málefni nýrra íbúa
Magnhildur Gísladóttir verkefnisstjóri málefna innflytjenda mætti á fundinn undir þessum lið og gerði grein fyrir störfum sínum og fór yfir áfangaskýrslu í málefnum innflytjenda.
2.
Deiliskipulag HSSA
Gísli Karl Ágústsson óskaði eftir að fá fund með bæjarráði varðandi athugasemdir sem hann gerði vegna deiliskipulags HSSA.
Taldi svæðið ætti að vera í óbreyttri nýtingu miðað við núgildandi skipulag og benti á að samkvæmt drögum að enduskoðun aðalskipulags er ekki gert ráð fyrir uppbyggingu ferðaþjónustu í þéttbýli.
Taldi svæðið ætti að vera í óbreyttri nýtingu miðað við núgildandi skipulag og benti á að samkvæmt drögum að enduskoðun aðalskipulags er ekki gert ráð fyrir uppbyggingu ferðaþjónustu í þéttbýli.
3.
Viðauki 1 FHÁ 14
Haukur Ingi Einarsson og Birgir Árnason sátu fundinn undir þessum lið. Haukur Ingi gerði grein fyrir skoðun á verkefnum í fjárhagsáætlun 2014. Flutningi milli framkvæmdaliða vegna frestunar á framkvæmdum við veiturnar. Flytja yfir í frágang í gámaporti. Bæjarráð samþykkir framlagða tillögu og vísar henni til afgreiðslu í bæjarstjórn.
4.
Ósk um leyfi til að kaupa timburkurlara
Birgir Árnason gerði grein fyrir tilboði í timburkurlara.
Bæjarráð samþykkir kaupin.
Bæjarráð samþykkir kaupin.
5.
Verklegar framkvæmdir 2014
Birgir Árnason og Haukur Ingi sátu fundinn undir þessum lið.
Vísað til áframhaldandi vinnu starfsmanna.
Vísað til áframhaldandi vinnu starfsmanna.
6.
Samningar
Haukur Ingi Einarsson sat fundinn undir þessum lið.
Bæjarráð samþykkir að ganga til samninga við Rósaberg ehf. um framleninginu á samningi um sorpurðun til næstkomandi áramóta.
Starfsmönnum falið að vinna áfram að afla frekari gagna varðandi tölvumál.
Bæjarráð samþykkir að ganga til samninga við Rósaberg ehf. um framleninginu á samningi um sorpurðun til næstkomandi áramóta.
Starfsmönnum falið að vinna áfram að afla frekari gagna varðandi tölvumál.
7.
Ósk um styrktarsamning við Skotfélag Hornafjarðar
Bæjarstjóra falið að ganga frá og undirrita samningi við Skotfélag Hornafjarðar samkvæmt umræðum á fundinum.
8.
Gagnaveita - staða mála
Björn Ingi greindi frá vinnu við fjarskipti í dreifbýli.
Stefnt er að verklokum í maí nk..
Í framhaldinu sköpuðust umræður um fjarskipti almennt í sveitarfélaginu. Bæjarstjóra falið að leita upplýsinga um áform fjarskiptafyrirtækja í eflingu dreifikerfis.
Stefnt er að verklokum í maí nk..
Í framhaldinu sköpuðust umræður um fjarskipti almennt í sveitarfélaginu. Bæjarstjóra falið að leita upplýsinga um áform fjarskiptafyrirtækja í eflingu dreifikerfis.
9.
Fundargerð SASS nr.477
Lögð fram til kynningar.
10.
Fundargerð Sambands íslenskra sveitarfélaga- nr.813
Lögð fram til kynningar.
11.
Fyrirspurnir - bæjarráð
Engar fyrirspurnir hafa borist.