Bæjarráð Hornafjarðar
668. fundur
17. mars 2014
kl.
16:00
-
18:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Kristján Sigurður Guðnason
varaformaður
Björn Ingi Jónsson
aðalmaður
Guðrún Ingimundardóttir
áheyrnarfulltrúi
Ásgrímur Ingólfsson
1. varamaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
bæjarstjóri
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Ásgerður Gylfadóttir bæjarstjóri
bæjarstjóri
Dagskrá
1.
Atvinnu- og menningarmálanefnd - 49
Bæjarráð óskar Ragnari Imsland til hamingju með Menningarverðlaun 2014 og styrkþegum er fengu afhenta styrki sl. föstudag við hátíðlega athöfn.
Fundargerð samþykkt.
Fundargerð samþykkt.
2.
Almannavarnanefnd - 47
Fundargerð samþykkt.
3.
Gjafa- og minningarsjóður Skjólgarðs - 68
Guðrún spurði hvort útsendingar milli hjúkrunardeildar og Hafnarkirkju virki ekki? Gjafasjóðurinn kom að kaupum á búnaði til útsendinga þar á milli á sínum tíma og spurning hvort eitthvað hafi breyst. Einnig rætt um rafræn minningarkort.
Fundargerð samþykkt.
Fundargerð samþykkt.
4.
Samningur við Hólabrekku ehf.
Jón Kristján Rögnvaldsson félagsmálastjóri sat fundinn undir þessum lið. Farið yfir stöðu samningaviðræðna og þann samning sem unnið er eftir í dag. Félagsmálastjóra falið að koma upplýsingum af fundinum til rekstraraðila Hólabrekku ehf.
5.
Ástand þaks á leikskólanum Lönguhólum
Björn Imsland umsjónarmaður fasteigna sat fundinn undir þessum lið. Farið yfir málið og það rætt í tengslum við annað viðhald á Lönguhólum. Bæjarráð vísar málinu til áframhaldandi vinnu starfsmanna.
6.
Hafnarbraut 30, Vöruhús
Bæjarstjóri gerði grein fyrir fundi með fulltrúa Urtusteins ehf varðandi Hafnarbraut 30. Björn Ingi ítrekaði þá skoðun sína að hann hafi ákveðnar efasemdir um kaup og kaupverð á Hafnarbraut 30.
7.
Ósk um samstarf frá sveitarfélaginu Harku í Eistlandi
Bæjarstjóri kynnti ósk frá sveitarfélaginu Harku í Eistlandi um samstarf á sviði stjórnsýslu sem felst í því að Hornafirðingar taka á móti fulltrúum frá Harku og kynna þeim starfsemi sveitarfélagsins. Bæjarráð samþykkir framlagða ósk.
8.
Beiðni um lækkun húsaleigu í Nýheimum.
Bæjarstjóri kynnti beiðni frá Búnaðarsambandi Suðurlands um lækkun á leigu á skrifstofuhúsnæði í Nýheimum. Bæjarráð óskar eftir frekari upplýsingum varðandi málið og rekstur húsnæðis Nýheima.
9.
Fyrirspurnir - bæjarráð
Guðrún spurði um málverk Svavars Guðnasonar sem voru lánuð til Danmerkur ekki Hollands eins og áður var talið. Kristján upplýsti að 1 ár sé eftir af lánstímanum.