Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

669. fundur
24. mars 2014 kl. 15:00 - 18:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Reynir Arnarson formaður
Kristján Sigurður Guðnason varaformaður
Björn Ingi Jónsson aðalmaður
Guðrún Ingimundardóttir áheyrnarfulltrúi
Ásgerður Kristín Gylfadóttir bæjarstjóri
Bryndís Bjarnarson upplýsinga og gæðastjóri
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson
Dagskrá
1.
Atvinnu- og menningarmálanefnd - 50
Málsnúmer 1403008F
Vala gerði grein fyrir fundargerð atvinnu-og menningamálanefndar og heimsókn nefndarinnar í Vöruhúsið þar sem nefndin fékk kynningu á starfsemi þess.
Guðrún sagðist binda vonir við skapandi greinar, það væri áhugavert að vinna að minjagripagerð sem vísar til sérstöðu Hornafjarðar.
Fundargerð samþykkt.
2.
Umhverfis- og skipulagsnefnd - 61
Málsnúmer 1403009F
Rúnar sat fundinn undir þessum lið.
Guðrún spurði hvort nefndin væri að fresta öllu deiliskipulagi við HSSA, kom fram að eingöngu er verið að fresta málinu, ekki sé verið að slá áformum um hjúkrunarheimili á frest.
Framkvæmdaleyfum málsnr. 201403019 Prestbakkalínu 1 og 201403036 lögn ljósleiðara vísað til bæjarstjórnar.
Fundargerð samþykkt.
3.
Skóla,íþrótta og tómstundanefnd - 45
Málsnúmer 1403006F
Ragnhildur sat fundinn undir þessum lið.
Fundargerð samþykkt.
4.
Framtíðarsýn leikskóla 2014
Málsnúmer 201403044
Ragnhildur og Jón Kr. mættu á fundinn undir þessum lið og gerðu grein fyrir líkani um þróun um fjölda barna í árgöngum.
Starfsmanni falið að senda bæjarráði skýrslu um leikskólamál frá 2011 ásamt kostnaðarútreiknigum.
Ragnhildur upplýsti um fjölgun barna í sveitum.
5.
Ástand þaks á leikskólanum Lönguhólum
Málsnúmer 201403008
Ásgerður gerði grein fyrir ástandi þaks á leikskólanum Lönguhólum.
Sagði að bráðabyrgðarviðgerð sé hafin og áframhaldið verði metið síðar.
6.
Verklegar framkvæmdir 2014
Málsnúmer 201402078
Ásgerður lagði til að bæjarráð stofni starfshóp um forgangsröðun í viðhaldi gatna/gangstéttna og malbikunar í sveitarfélaginu.
Tillaga borin upp um að í starfshópi verði Ásgerður, Ásgrímur, Björn Ingi, Birgir og Björgvin.
Samþykkt.
7.
Gjaldskrá Slökkviliðs Hornafjarðar
Málsnúmer 201403042
Ásgerður gerði grein fyrir gjaldskrá Slökkviliðs Hornafjarðar.
Samþykkt og vísað til bæjarstórnar til afgreiðslu með þeim breytingum sem gerðar voru á fundinum.
8.
Vörukaup á Olíuvörum og öðrum rekstrarvörum svo sem salernispappír, sápum, plastpokum o.fl sambærilegu
Málsnúmer 201403041
Lagt fram minnisblað frá fjármálateymi varðandi innkaup sveitarfélagsins.
Samþykkt að segja upp núgildandi samningi við Olís og bjóða innkaupin út að nýju.
9.
Ósk um styrk "Saga upplýsingatækni á Íslandi"
Málsnúmer 201403045
Ásgerður gerði grein fyrir ósk um styrkbeiðni vegna söguritunar um upplýsingatækni.
Bæjarráð hafnar fyrirliggjandi erindi.
10.
Fyrirspurnir - bæjarráð
Málsnúmer 201009100
Engar fyrirspurir hafa borist.