Bæjarráð Hornafjarðar
670. fundur
31. mars 2014
kl.
15:00
-
18:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Reynir Arnarson
formaður
Kristján Sigurður Guðnason
varaformaður
Björn Ingi Jónsson
aðalmaður
Guðrún Ingimundardóttir
áheyrnarfulltrúi
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
bæjarstjóri
Bryndís Bjarnarson
upplýsinga og gæðastjóri
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson
Dagskrá
1.
Almannavarnanefnd - 48
Ásgerður upplýsti um samvinnu við Vatnajökulsþjóðgarð með upplýsingagjöf til vegfarenda.
Fundargerð samþykkt.
Fundargerð samþykkt.
2.
Félagsmálanefnd Hornafjarðar - 250
Jón Kristján mætti á fundinn undir þessum lið.
Fundargerð samþykkt.
Fundargerð samþykkt.
3.
Stjórn Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands - 43
Matthildur Ásmundardóttir mætti á fundinn undir þessum lið.
Kristján spurði hvenær Ekran verði opnuð eftir endurbætur.
Matthildur greindi frá að starfsemin muni flytja aftur í Ekruna á nk. mánudag.
Fundargerð samþykkt.
Kristján spurði hvenær Ekran verði opnuð eftir endurbætur.
Matthildur greindi frá að starfsemin muni flytja aftur í Ekruna á nk. mánudag.
Fundargerð samþykkt.
4.
Gjafa- og minningarsjóður Skjólgarðs - 69
Matthildur sat fundinn einnig undir þessum lið.
Fundargerð til kynningar.
Fundargerð til kynningar.
5.
Hafnarstjórn Hornafjarðar - 162
Bréf frá Hans Otto Christensen kynnt.
Bæjarráð taldi að ekki væri hægt að sinna verkefni sem þessu af öðrum aðila og tekur því undir svar hafnarstjórnar við erindinu.
Guðrún spurði um Melatangabryggju, hver eigi að sjá um hana. Starfsmönnum falið að hafa samband við Vegagerðina sem eiganda mannvirkisins og upplýsa um ástand þess.
Fundargerð samþykkt.
Bæjarráð taldi að ekki væri hægt að sinna verkefni sem þessu af öðrum aðila og tekur því undir svar hafnarstjórnar við erindinu.
Guðrún spurði um Melatangabryggju, hver eigi að sjá um hana. Starfsmönnum falið að hafa samband við Vegagerðina sem eiganda mannvirkisins og upplýsa um ástand þess.
Fundargerð samþykkt.
6.
Skólaakstur í Öræfum 2014 - útboð
Ragnhildur Jónsdóttir fræðslustjóri sat fundinn undir þessum lið.
Bæjarráð samþykkir að skólaakstur í Öræfum verði boðin út.
Bæjarráð samþykkir að skólaakstur í Öræfum verði boðin út.
7.
Erindi til menntamálaráðuneytisins um aðkomu að kaupum á Vöruhúsi
Bæjarstjóri kynnti málið. Bæjarráð samþykkir að leggja erindið fyrir menntamálaráðuneytið.
8.
Ársreikningur 2013
Ásta H. Guðmundsdóttir, Haukur Ingi Einarsson og Sigurjón Örn Arnarson endurskoðandi sveitarfélagisins hjá KPMG sátu fundinn undir þessum lið. Sigurjón fór yfir drög að ársreikningi 2013 og skýrslu endurskoðenda. Rekstrarniðurstaða A og B hluta á árinu var jákvæð um 229 millj. kr., en niðurstaða A hluta var jákvæð um 180 millj. kr.. Veltufé frá rekstri A og B hluta nam 371 millj. kr. en 261 millj. kr. í A hluta.
Skuldir og skuldbindingar A og B hluta námu 1.248 millj. í árslok 2013. Eiginfjárhlutfall A og B hluta nam 68%.
Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi drög að ársreikningi 2013 og vísar honum til fyrri umræðu í bæjarstjórn.
Skuldir og skuldbindingar A og B hluta námu 1.248 millj. í árslok 2013. Eiginfjárhlutfall A og B hluta nam 68%.
Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi drög að ársreikningi 2013 og vísar honum til fyrri umræðu í bæjarstjórn.
9.
Starfsmannamál - ráðhús
Fram kom að Haukur Ingi Einarsson innkaupa- og hagsýslustjóri hefur sagt starfi sínu lausu og mun hætta störfum 31. maí n.k. Bæjarráð þakkar Hauki Inga fyrir vel unnin störf fyrir sveitarfélagið og óskar honum velfarnaðar á nýjum vettvangi. Bæjarstjóri kynnti tillögu að breytingum á skipuriti og hvað í henni fælist. Bæjarstjóra falið að vinna áfram að málinu.
10.
Nelson - minnismerki, fyrirhugaður flutningur
Reynir lagði til að bæjarráð sendi erindi til samgönguyfirvalda og benti á að 90 ár eru frá því Erik Nelson flaug fyrstur til Íslands 2. ágúst 1924. Stefnd er að flutningi minnisvarða um flug Nelsons á Óslandshæð þar sem gott útsýni er yfir lendingastaðinn.
Bæjarstjóra falið að vinna áfram að málinu.
Bæjarstjóra falið að vinna áfram að málinu.
11.
Tilboð í Sorpmóttöku
Þrjú tilboð bárust í verkið. Frá Rósaberg ehf kr. 3.827.250,- 72,3% af kostnaðaráætlun, Ólafi Halldórssyni kr. 5.162.900,- 97.6% af kostnaðaráætlun og Jökulfell ehf kr. 5.815.000,- 109,9% af kostnaðaráætlun. Tilboðin voru kynnt bæjarráði sl. fimmtudag og gaf bæjarráð heimild til að gengið yrði til samninga við lægstbjóðanda.
12.
Samkomulag um kaup á skólastofuhúsnæði í Nesjum
Bæjarstjóri kynnti tillögu að leigulóð í kringum skólahúsnæði í Nesjum, nú Hótel Jökull. Bæjarráð samþykkir lóðarmörkin og bæjarstjóra falið að ganga frá sölu á eigninni í samræmi við fyrri ákvarðanir í málinu.
13.
Ársskýrsla HAUST 2013
Til kynningar.
14.
Fundargerð HAUST nr. 115
Til kynningar.
15.
Fundargerð Sambands íslenskra sveitarfélaga nr.814
Til kynningar.
16.
Umsókn um breytingu á rekstrarleyfi
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við breytingu á rekstarleyfi Fjölnis Torfasonar fyrir gistiheimili á Hala í Suðursveit.
17.
Fyrirspurnir - bæjarráð
Reynir óskaði eftir upplýsingum um samgönguáætlun sem er í endurskoðun vegna frétta af frestun vegalagninga um Hornafjarðarfljót. Bæjarstjóra falið að afla upplýsinga um málið.