Bæjarráð Hornafjarðar
671. fundur
10. apríl 2014
kl.
13:00
-
00:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Reynir Arnarson
formaður
Kristján Sigurður Guðnason
varaformaður
Björn Ingi Jónsson
aðalmaður
Guðrún Ingimundardóttir
áheyrnarfulltrúi
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
bæjarstjóri
Bryndís Bjarnarson
upplýsinga og gæðastjóri
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Ásgerður Gylfadóttir bæjarstjóri
bæjarstjóri
Dagskrá
1.
Erindi til menntamálaráðuneytisins um aðkomu að kaupum á Vöruhúsi
Eyjólfur Guðmundsson skólameistari FAS og Ásta Guðmundsdóttir fjármálastjóri mættu á fundinn undir þessum lið. Eyjólfur gerði grein fyrir uppbyggingu og þróun verknáms í FAS og rökstuddi ósk framhaldsskólans um meðeign í Vöruhúsinu.
Umræður um kosti og galla um sameiginlegt eignarhald með ríkinu.
Bæjarráð styður þá hugmynd að leitað sé samninga við Menntamálaráðuneytið um hlutdeild þess í kaupum á Vöruhúsinu.
Umræður um kosti og galla um sameiginlegt eignarhald með ríkinu.
Bæjarráð styður þá hugmynd að leitað sé samninga við Menntamálaráðuneytið um hlutdeild þess í kaupum á Vöruhúsinu.
2.
Hafnarbraut 30, Vöruhús
Ásgerður gerði grein fyrir úttekt starfsmanna sveitarfélagsins á Vöruhúsinu.
Björn Ingi lýsti þeirri skoðun sinni að hann er ekki og hefur aldrei verið á móti kaupum á Vöruhúsi en hefur efast um tímasetningu og forgangsröðun á kaupunum og telur að fyrst hefði átt að fara í lagfæringar á Sindrabæ. Björn Ingi áréttar að það sé ekki viðeigandi að bóka eftir honum á bæjarstjórnarfundi að honum fjarstöddum.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að ganga frá kaupsamningi við Urtustein ehf. um kaup á Vöruhúsi, Hafnabraut 30.

3.
Könnun um húsnæðismál á Suðurlandi
Lagt fram til kynningar.
4.
Staða leigumarkaðarins í tengslum við ráðningar á starfsfólki til stofnanna sveitarfélagsins
Ásgerður gerði grein fyrir erindi frá forstöðumönnum sveitarfélagsins sem hafa áhyggjur af leigumarkaði vegna ráðningu á starfsfólki til sveitarfélagsins.
Bæjarstjóra falið að hafa samband við leigufélög.
Bæjarstjóra falið að hafa samband við leigufélög.
5.
viðgerð á lögnum og götu Hrísbraut
Bæjarstjóri gerði grein fyrir málinu. Haft var samband við RARIK vegna framkvæmdanna. Ekki var talið hagkvæmt að setja viðbótarlagnir í götuna vegna eðlis framkvæmdanna.
6.
Fjarskiptabúnaður í Hofgarði
Bæjarráð heimilar Vodafone aðgang að Hofgarði.
Starfsmönnum falið að ganga frá samningi við Vodafone.
Starfsmönnum falið að ganga frá samningi við Vodafone.
7.
Skólamáltíðir útboð 2014-2018
Haukur Ingi Einarsson og Raghildur Jónsdóttir gerðu grein fyrir tilboðum í skólamáltíðir.
Tvö tilboð bárust, annað tilboðið var dregið til baka. Tilboð frá Kaffihorninu hljóðaði upp á 980 kr. hver skammtur.
Tilboðinu hafnað. Starfsmönnum falið að vinna áfram að málinu.
Tvö tilboð bárust, annað tilboðið var dregið til baka. Tilboð frá Kaffihorninu hljóðaði upp á 980 kr. hver skammtur.
Tilboðinu hafnað. Starfsmönnum falið að vinna áfram að málinu.
8.
Skólaakstur í Öræfum 2014 - útboð
Ragnhildur og Haukur Ingi gerðu grein fyrir stöðu skólaaksturs í Öræfum.
Starfsmönnum falið að vinna áfram að málinu.
Starfsmönnum falið að vinna áfram að málinu.
9.
Hellisviti - tilboð í endurbætur
Björn Þór Imsland gerði grein fyrir tilboði sem barst í endurbætur á Hellisvita.
Aðeins eitt tilboð barst og var það frá H Christensen ehf. með fyrirvar um verktíma. Tilboðsupphæð 6.267.750 kr. sem er 102% af kostnaðaráætlun.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við tilboðið og vísar því til lokaafgreiðslu í hafnarstjórn.

10.
Þjóðlendunefnd
Ásgerður gerði grein fyrir vinnu þjóðlendunefndar drög að reglum lögð fram til kynningar.
Bæjarráð fagnar vinnu þjóðlendunefndar og þakkar þeim störfin.
Bæjarráð samþykkir reglurnar fyrir sitt leiti.
Fram kom að unnið er að deiliskipulagi við Fjallsárlón sem er í þjóðlendu, starfsmönnum falið að vinna að tímaáætlun um ferlið.

11.
Starfsmannamál - ráðhús
Bæjarstjóri gerði grein fyrir málinu. Bæjarstjóra farið að auglýsa eftir Framkvæmda- og umhverfisstjóra eftir samráð við ráðningaskrifstofu.
12.
Erindi frá Samorku, Sv.Hornafj boðin aðild
Lagt fram erindi frá Samorku þar sem þeir bjóða sveitarfélaginu aðild. Bæjarráð óskar eftir frekari upplýsingum um málið.
13.
Fjarskiptamál, framtíðarfyrirkomulag alþjónustu um tengingu við almenna fjarskiptanetið.
Lagt fram til kynningar.
14.
Aðalfundur Sláturfélagsins Búa fundarboð
Kristján Guðnason formaður atvinnu- og meningamálanefndar verður fulltrúi sveitarfélagsins á aðalfundi Sláturfélagsins Búa nk. mánudag.
15.
Umsögn um frumvarp til laga um eflingu tónlistarnáms (óháð búsetu).
Lagt fram til kynningar. Óskað eftir að fá umsögn sambandsins þegar hún er tilbúin.
16.
Staða sveitarsjóðs 2014
Ásta gerði grein fyrir stöðu sveitarsjóðs 31.03.14.
17.
Fyrirspurnir - bæjarráð
Engar borist.