Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

672. fundur
28. apríl 2014 kl. 16:00 - 00:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Reynir Arnarson formaður
Kristján Sigurður Guðnason varaformaður
Björn Ingi Jónsson aðalmaður
Guðrún Ingimundardóttir áheyrnarfulltrúi
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
Bryndís Bjarnarson
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson
Dagskrá
1.
Umhverfis- og skipulagsnefnd - 62
Málsnúmer 1403016F
Gunnlaugur Rúnar Sigurðsson umhverfis-og skipulagsstjóri mætti á fundinn undir þessum lið.
Guðrún spurði um 4. lið rekstrarleyfi Sunnubraut, Rúnar greindi frá að vinna er hafin við úttekt á húsnæðinu.
Guðrún spurði um 13. lið listaverk gangstéttarhellur, kom fram að 7. og 8. bekkur hefur unnið verkið og mun áhaldahúsið sjá um staðsetningu verksins. Guðrún spurði um 9. lið efnistöku á Breiðamerkursandi, upplýst er að málið er á forræði forsætisráðuneytisins.
Ásgerður kynnti margnota innkaupapoka sem hugmyndin er að kaupa og dreifa á öll heimili í samræmi við umhverfisstefnu sveitarfélagsins.
Bæjarráð samþykkir kaup á pokunum.
Fundargerð samþykkt.
2.
Skóla,íþrótta og tómstundanefnd - 46
Málsnúmer 1403006F
Guðrún spurði um bókun vegna ráðningar skólastjóra í afleysingar við Grunnskóla Hornafjarðar til 2. ára, Guðrún lýsti jafnframt þeirri skoðun sinni að hæfasti umsækjandinn hafi verið ráðinn.
Kom fram að eftirfarandi hafi sótt um stöðuna:
Eygló Illugadóttir deildarstjóri.
Páll Sveinsson grunnskólakennari.
Margrét Gauja Magnúsdóttir grunnskólakennari.
Sigurður Þórir Þorsteinsson framhaldsskólakennari.
Kristján Arnar Ingason fagstjóri.
Jóhannes S. Guðbjörnsson kennari.
Erna Guðmundsdóttir deildarstjóri.
Eygló Illugadóttir deildarstjóri við Grunnskóla Hornafjarðar var ráðin í stöðuna.


Björn Ingi tók til máls um 10. lið, faglegt mat á stöðu vegna skiptingar milli leikskóla, sagði það væri mikilvægt að gera skoðanakönnun meðal foreldra um faglegt starf leikskólanna og hefði verið var við skiptar skoðanir á fyrirkomulagi á núverandi skipulagi leikskólamála.
Fundargerð samþykkt.
3.
Hafnarstjórn Hornafjarðar - 163
Málsnúmer 1404002F
Björn Ingi spurði um 4. lið stefnu í hafnarmálum, skipulag á hafnarsvæði. Kom fram að nefndin er að kanna með kostnað vegna skipulagsvinnu.
Fundargerð samþykkt.
4.
Stjórn Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands - 44
Málsnúmer 1404004F
Fundargerð samþykkt.
5.
Gjafa- og minningarsjóður Skjólgarðs - 70
Málsnúmer 1404005F
Fundargerð samþykkt.
6.
Skólamáltíðir útboð 2014-2018
Málsnúmer 201403002
Haukur Ingi Einarsson, innkaupa- og hagsýslustjóri og Ásta H. Guðmundsdóttir fjármálastjóri sátu fundinn undir þessum lið.
Kom fram að ekki hefur tekist að ná viðunnandi samningum um skólamáltíðir.
Haukur Ingi gerði grein fyrir áætluðum framleiðslu- og stofnkostnaði við skólamáltíðir ef sveitarfélagið lætur framleiða þær í eldhúsi HSSA.
Bæjarráð samþykkir að ganga til samninga við stjórn HSSA.
Starfsmönnum falið að vinna áfram að málinu.
7.
Sorpmóttaka, opnun tilboða
Málsnúmer 201404057
Birgir Árnason verkstjóri Áhaldahúss sat fundinn undir þessum lið.
Eitt tilboð barst í verkið frá Mikael ehf. 19.224.400 kr. 20% yfir kostnaðaráætlun sem hljóðaði upp á 16.060.800. kr..
Upplýst var á fundinum að flutningskostnaður á efni í húsið er innifalinn í verði.
Bæjarráð samþykkir að ganga til samninga við Mikael ehf..
8.
Endurbætur á Sindrabæ.
Málsnúmer 201301108
Björn Þór Imsland umsjónarmaður fasteigna sat fundinn undir þessum lið og gerði grein fyrir útboðs og verklýsingu vegna endurbóta í Sindrabæ.
Bæjarráð samþykkir útboðsgögn og felur starfsmönnum að auglýsa tilboðið.
9.
Uppbygging við Jökulsárlón
Málsnúmer 201309046
Ásgerður gerði grein fyrir stöðu mála við Jökulsárlón vegna innsendra bréfa og fyrirspurnir um málið.
Bæjarstjóra ásamt lögfræðingi falið að skoða möguleg næstu skref af hálfu sveitarfélagsins í ljósi þeirrar stöðu sem uppi er við Jökulsárlón með það að markmiði að uppbygging geti hafist sem allra fyrst.
10.
Malbiksframkvæmdir 2014-2016, verðkönnun
Málsnúmer 201404058
Greint frá niðurstöðu verðkönnunar sem gerða var vegna fyrirhugaðra malbiksframkvæmda. Þrjú fyrirtæki tóku þátt í verðkönnuninni. Óskað var eftir verðum í vor og haust malbikun.
Hlaðbær Colas var með lægstu verð vor 54.7 milljónir, 94% af kostnaðaráætlun og haust 55.4 milljónir (95 % af kostnáætl.), Malbikun KM 62 millj bæði vor og haust (106/122%) og Malbik og Völtun vor 67.8 milljónir (116%) og 71 milljón (122%). Bæjarráði var greint frá niðurstöðum verðkönnunar sl. miðvikudag 23. apríl og samþykkt að ganga til samninga við Hlaðbæ Colas um malbikun nú í vor.
11.
Lögreglan Höfn - staða mála
Málsnúmer 201312029
Lagt fram til kynningar bréf frá Innanríkisráðuneytinu, svar við erindi frá bæjarstjóra varðandi breytingar á skipuriti lögreglunnar á Höfn. Þar kemur fram að frá 1. nóvember sl. staðfestir ríkislögreglustjóri skipurit lögregluembætta.
12.
Staða leigumarkaðarins í tengslum við ráðningar á starfsfólki til stofnanna sveitarfélagsins
Málsnúmer 201404018
Haukur Ingi gerði grein fyrir fundum við leigufélög og byggingaverktaka. Kom fram að leigufélög telji ekki sé hagkvæmt að leigja húsnæði í sveitarfélaginu.
Umræður um leiðir til að fá aðila til að byggja húsnæði í sveitarfélaginu.
13.
Skólastofa/móttökuhús á tjaldsvæði Stafafelli
Málsnúmer 201404059
Ásta H. gerði grein fyrir eignarhaldi á Skólahúsnæði í landi Stafafells í Lóni. Ríkið á stærstan hlut í eigninni.
Bæjarráð samþykkir að óska eftir því við menntamálaráðuneytið að húsnæðið verði auglýst til sölu.
14.
Vegur að radíóvita í Langhólanesi, grjótvörn
Málsnúmer 201404056
Bæjarstjóri greindi frá samkomulagi við Isavia um þátttöku þeirra í grjótvörn á vegi út að radóvita í Langhólanesi. Isavia hefur samþykkt að greiða 1 milljón króna í grjótvörninni, kostnaðaráætlun er kr.1.950 þúsund.
15.
Umsókn um styrk
Málsnúmer 201404045
Styrkumsókn frá Sveinbjörgu Zophoníasdóttur sem hefur verið valin í ólympíuhóp fyrir leikana í Rio de Janeiro 2016.
Erindinu vísað til bæjarstjóra til afgreiðslu.
16.
Erindi vegna styrkumsóknar til forvarnarfundar á Höfn
Málsnúmer 201404052
Lögð fram styrkumsókn frá Lífsýn.
Bæjarráð hafnar styrkbeiðninni.
17.
Ályktun frá ráðstefnunni Ungt fólk og lýðræði
Málsnúmer 201404043
Lagt fram til kynningar.
18.
Styrkur v/ Jöklaleiðin Gönguleið milli Skálafells og Göngubrúar yfir Hólmsá
Málsnúmer 201404053
Ásgerður greindi frá að styrkur hefði borist vegna verkefnis Jöklaleiðin að upphæð 3.1 milljón.
19.
Fundargerð Sambands íslenskra sveitarfélaga 815
Málsnúmer 201404048
Lagt fram til kynningar.
20.
Umsögn um fjögurra ára samgönguáætlun 2013-2016
Málsnúmer 201404067
Bæjarstjóra falið að vinna að umsögn sveitarfélagsins um samgönguáætlun 2013-2016.
21.
Fyrirspurnir - bæjarráð
Málsnúmer 201009100
Engar fyrirspurnir hafa borist.