Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

673. fundur
5. maí 2014 kl. 16:00 - 00:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Reynir Arnarson formaður
Kristján Sigurður Guðnason varaformaður
Björn Ingi Jónsson aðalmaður
Guðrún Ingimundardóttir áheyrnarfulltrúi
Ásgerður Kristín Gylfadóttir bæjarstjóri
Bryndís Bjarnarson upplýsinga og gæðastjóri
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson
Dagskrá
1.
Atvinnu- og menningarmálanefnd - 51
Málsnúmer 1404008F
Vala Garðarsdóttir forstöðumaður Hornafjarðarsafna mætti á fundinn undir þessum lið.
Reynir spurði um lið 5. þar sem spurt var um starfslýsingu forstöðumanns Hornafjarðarsafna Ásgerður greindi frá að forstöðumaður undirritaði starfslýsingu 21.03 2013.
Björn Ingi spurði um 2. og 3. lið og óskaði eftir nánari útskýringu, Vala gerði grein fyrir að nefndin stefni að því að breyta ferli menningarverðlauna og úthlutunarferli atvinnu-og rannsóknarsjóðs, umsóknir fari í formlegt ferli með því að markmiði að óháðir aðilar taki umsóknirnar til umfjöllunar áður en nefndin taki afstöðu til þeirra.
Guðrún spurði um starfslýsingu yfirmanns í Vöruhúsi, Ásgerður gerði grein fyrir stöðugildum tengdum yfirmanni í Vöruhúsi.
Björn Ingi fagnaði hugmyndum að breyttu vinnulagi varðandi menningarverðlaun og atvinnu-og rannsóknarsjóð.
Umræður um Miklagarð og framtíð hans verið er að vinna að heildstæðri verk og kostnaðaráætlun til framtíðar en hugmyndafræði um starfsemi Miklagarðs er þegar skjalfest og undirrituð í stofnskrá 2013.
2.
Bæjarhátíðarfrímerki útgefið 8. maí 2014
Málsnúmer 201404070
Bæjarstjóri greindi frá nýju frímerki sem Pósturinn hefur gefur út frímerki tileinkuð íslenskum bæjarhátíðum meðal annars hinni hornfirsku Humarhátíð. Frímerkið er handteiknað af myndlistakonunni Lindu Ólafsdóttur.
Bæjarráð þakkar Póstinum heiðurinn.
3.
Kotnaðarframlag úr Skipulagssjóði v/Aðalskipulags Sveitarf. 2012-2030
Málsnúmer 201404066
Bæjarstjóri gerði grein fyrir svari frá Skipulagsstofnun vegna erindis sem sveitarfélagið sendi vegna endurgreiðslu úr skipulagssjóði stofnunarinnar.
Endurgreiðslan hljóðar upp á 11.582.508 kr. sem er helmingur af kostnaði við aðalskipulagsgerðina.
4.
Staða leigumarkaðarins í tengslum við ráðningar á starfsfólki til stofnanna sveitarfélagsins
Málsnúmer 201404018
Bæjarstjóri gerði grein fyrir stöðu mála, rædd hugmynd um að aftur verði tekin upp niðurgreiðsla á húsaleigu til starfsmanna bæjarins.
Bæjarráð hafnar þeirri hugmynd.
5.
Könnun á kjörum sveitarstjórnarmanna og framkvæmdastjóra sveitarfélaga
Málsnúmer 201405001
Lagt fram.
6.
Ósk um viðbótar stöðugildi í Heimaþjónustudeild
Málsnúmer 201405002
Maren Sveinbjörnsdóttir forstöðumaður heimaþjónustudeildar gerði grein fyrir starfsemi heimaþjónustudeildar, sagði starfsemina vera komna á það stig að auka þurfi stjórnunarstöðugildi til að mæta þeirri þörf á þjónustu sem óskað er eftir.
Óskaði eftir að ráða háskólamenntaðan starfsmann í Heimaþjónustudeildina í 100% starf sem gæti skipts upp í 50- 60% stjórnunarstörf og 40-50 % vaktavinnu í frekari liðveislu.
Bæjarráð samþykkir að staðan verði auglýst og vísar til gerðar viðauka við fjárhagsáætlun 2014. Kostnaði verði mætt með rekstrarafgangi.
7.
Uppbygging við Jökulsárlón
Málsnúmer 201309046
Lögmaður sveitarfélagsins Árni Helgason var á fundinum í síma.
Farið var yfir umsókn Þingvangs ehf. og erindi frá Sameigendafélagi Fells og öðum eigendum.
Í ljósi fjölmiðlaumfjöllunar undanfarna daga vill bæjarráð árétta að Sveitarfélagið Hornafjörður er tilbúið að gefa út framkvæmdaleyfi samkvæmt gildandi deiliskipulagi um leið og samþykki allra landeigenda liggur fyrir eins og gerð er krafa um í skipulagslögum.
Bæjarstjóra ásamt lögmanni sveitarfélagsins falið að gera drög að svarbréfi til málsaðila.
8.
Fyrirspurn um tímabundna leigu á aðstöðu í Miklagarði
Málsnúmer 201405003
Guðrún vék af fundi undir þessum lið. Erindi frá 3. framboðinu um aðstöðu í Miklagarði lögð fram.
Bæjarráð felur forstöðumanni Hornafjarðarsafna að vinna að málinu.
9.
Gagnaveita - staða mála
Málsnúmer 201310082
Ásgerður vék af fundi undir þessum lið.
Björn Ingi gerði grein fyrir verðkönnun á tengikostnaði frá Rafhorni ehf..
Samþykkt að fela Rafhorn ehf. verkefnið.
Gagnaveita Suðurlands hafði samband við verkefnistjóra um aðkomu að dreifingu efnis á Mýrum en hefur ekki tekið endanlega ákvörðun í málinu.
10.
Fjárhúsavík, umsögn HAUST v. eftirlits
Málsnúmer 201405005
Bæjarstjóri gerði grein fyrir umsögn Heilbrigðiseftirlit Austurlands HAUST vegna úrgangslosunar í Fjárhúsavík. HAUST gerir alvarlegar athugasemdir við umgngni á svæðinu.
Bæjarstjóra falið að loka svæðinu ásamst starfsmönnum sveitarfélagsins.
11.
Fyrirspurnir - bæjarráð
Málsnúmer 201009100
Engar fyrirspurnir hafa borist.