Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

676. fundur
26. maí 2014 kl. 16:00 - 00:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Reynir Arnarson formaður
Kristján Sigurður Guðnason varaformaður
Björn Ingi Jónsson aðalmaður
Guðrún Ingimundardóttir áheyrnarfulltrúi
Ásgerður Kristín Gylfadóttir bæjarstjóri
Bryndís Bjarnarson
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson
Dagskrá
1.
Umhverfis- og skipulagsnefnd - 64
Málsnúmer 1405010F
Gunnlaugur Rúnar Sigurðsson umhverfis-og skipulagsfulltrúi mætti á fundinn undir þessum lið.
Reynir Arnarson vék af fundi undir 7. lið.
Fundargerð samþykkt.
2.
Gjafa- og minningarsjóður Skjólgarðs - 71
Málsnúmer 1405008F
Fundargerð samþykkt.
3.
Umsókn um byggingarleyfi, Flatey
Málsnúmer 201405073
Gunnlaugur Rúnar Sigurðsson umhverfis-og skipulagsfulltrúi mætti á fundinn undir þessum lið.
Bæjarráð fagnar áformum um frekari uppbyggingu í Flatey og felur byggingarfulltrúa að gefa út viðunnandi leyfi.
4.
Umsókn um rekstrarleyfi heimagisting - Surtsey ehf
Málsnúmer 201405061
Gunnlaugur Rúnar Sigurðsson umhverfis-og skipulagsfulltrúi mætti á fundinn undir þessum lið.
Vísað til starfsmanna til að afla frekari gagna um málið.
5.
Umsókn um rekstrarleyfi fyrir heimagistingu - Kristín E. Gunnarsdóttir
Málsnúmer 201405059
Gunnlaugur Rúnar Sigurðsson umhverfis-og skipulagsfulltrúi mætti á fundinn undir þessum lið.
Vísað til starfsmanna til að afla frekari gagna um málið.
6.
Umsókn / Fyrirspurn um stöðuleyfi við Miðtún 21
Málsnúmer 201405074
Gunnlaugur Rúnar Sigurðsson umhverfis-og skipulagsfulltrúi mætti á fundinn undir þessum lið.
Bæjarráð hafnar umsókn um stöðuleyfi fyrir gám.
7.
Barnaverndarmál - upplýsingar um stöðu mála
Málsnúmer 201405075
Jón Kristján Rögnvaldsson gerði grein fyrir fjölda barnaverndartilkynninga í sveitarfélaginu sagði að málaflokkurinn hefði styrkst verulega eftir að ráðið hafi verið í stöðu sérfræðings í málefnum barna. Umfang mála er svipað og undanfarin ár.
8.
Reglur vegna framkvæmdar fjárhagsaðstoðar
Málsnúmer 200911046
Jón Kristján gerði grein fyrir breytingum á reglunum.
Bæjarráð vísar reglum vegna framkvæmda fjárhagsaðstoðar til afgreiðslu bæjarstjórnar.
9.
Staða sveitarsjóðs 30.04 2014
Málsnúmer 201405086
Ásta H. Guðmundsdóttir fjármálastjóri gerði grein fyrir stöðu sveitarsjóðs, útsvarstekjur eru lægri en áætlanir gerðu ráð fyrir fyrstu fjóra mánuði ársins í fjárhagsáætlun. Reksturinn er að öðru leiti í jafnvægi.
10.
Samningar
Málsnúmer 201311038
Haukur Ingi Einarsson innkaupa-og hagsýslustjóri mætti á fundinn undir þessum lið.
Haukur gerði grein fyrir samningsdrögum um tölvuþjónustu við Hátíðni hf..
Bæjarráð samþykkir samningsdrögin með þeim fyrirrvara að samningurinn verði þriggja ára samningur með möguleika á tveggja ára framlengingu.
Bæjarstjóra falið að ganga frá samningi við Hátíðni hf..
11.
Vörukaup á Olíuvörum og öðrum rekstrarvörum svo sem salernispappír, sápum, plastpokum o.fl sambærilegu
Málsnúmer 201403041
Haukur Ingi gerði grein fyrir vinnu við verðfyrirspurnum á rekstarvörum.
Samþykkt að fela starfsmönnum að senda framlögð gögn út.
12.
Salerni við Hrolllaugshóla
Málsnúmer 201405089
Haukur Ingi greindi frá kosnaði við að reysa vatnssalerni við Hrollaugshóla.
Starfsmönnum falið að vinna áfram að málinu.
13.
Hafnarbraut 30, Vöruhús
Málsnúmer 201403034
Sveitarfélagið hefur gengið frá kaupum á Hafnarbraut 30 húsnæði sem sveitarfélagið hefur leigt í 10 ár og rekið þar undanfarið Vöruhús fyrir skapandi greinar.
Lagt fram til kynnignar.
14.
Endurbætur á Sindrabæ.
Málsnúmer 201301108
Björn Þór Imsland umsjónamaður fasteigna fór yfir tilboð sem barst í breytingar og endurbætur Sindrabæ. Eitt tilboð barst frá Þingvaði ehf. upp á 9.942.600 kr. sem er 43% yfir kostnaðaráætlun gerði ráð fyrir. Kostnaðaráætlun hljóðaði upp á 6.959.300 kr..
Bæjarráð hafnar tilboðinu.
Starfsmönnum falið að leita leiða til að ljúka þeim framkvæmdum utanhúss sem útboðið gerði ráð fyrir.
15.
Leyfi til nýtingar við Fjallsárlón
Málsnúmer 201405072
Auglýst voru leyfi til nýtingar á landsvæði við Fjallsárlón til umsóknar. Leyfi til nýtingar er veitt á grundvelli 3. mgr. 3. gr. laga nr. 58/1998 um þjóðlendur og ákvörðun marka eignarlanda, þjóðlendna og afrétta. Um er að ræða tímabundið leyfi frá 2. júní til 1. nóvember 2014. Handhafi leyfis skuldbindur sig til að greiða gjald vegna leyfis.
Þrjár umsóknir bárust, farið verður yfir umsóknir og þær afgreiddar á næsta fundi bæjarráðs sem ákveðinn hefur verið föstudaginn 30. maí n.k..
16.
Brotajárnsrampur.
Málsnúmer 201405088
Birgir Árnason verkstjóri Áhaldahúss mætti á fundinn undir þessum lið og gerði grein fyrir þörf á brotajárnsrampi við Sorphús.
Bæjarráð vísar málinu til fjármálastjóra til frekari skoðunar.
17.
Tilkynning varðandi jörðina Fell
Málsnúmer 201405068
Bréf lagt fram frá Lögmönnum ehf..
Starfsmönnum falið að svara bréfinu.
18.
Fundargerð Sambands íslenskra Sveitarfélaga 816
Málsnúmer 201405071
Lögð fram til kynningar.
19.
Vinnuskóli 2014, laun
Málsnúmer 201405090
Starfsmönnum falið að afla samanburðar við önnur sveitarfélögum og koma með tillögu á næsta fund.
20.
Fyrirspurnir - bæjarráð
Málsnúmer 201009100
Engar fyrirspurnir hafa borist.