Bæjarráð Hornafjarðar
677. fundur
30. maí 2014
kl.
08:15
-
00:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Reynir Arnarson
formaður
Kristján Sigurður Guðnason
varaformaður
Björn Ingi Jónsson
aðalmaður
Guðrún Ingimundardóttir
áheyrnarfulltrúi
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
bæjarstjóri
Gunnlaugur Rúnar Sigurðsson
embættismaður
Bryndís Bjarnarson
embættismaður
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson
Dagskrá
1.
Leyfi til nýtingar við Fjallsárlón
Auðun Helgason lögfræðingur sat fundinn undir þessum lið.
Leyfi til nýtingar á landsvæði í Fjallsárlóni var auglýst frá 21.-26. maí 2014 laust til umsóknar. Leyfi til nýtingar er veitt á grundvelli 3. mgr. 3. gr. laga nr. 58/1998 um þjóðlendur og ákvörðun marka eignarlanda, þjóðlendna og afrétta. Um er að ræða tímabundið leyfi frá 2. júní til 1. nóvember 2014.
Þrjár umsóknir bárust frá fyrirtækjunum: Fjallsárlón ehf., Hvítárvatn ehf. og Ice lagoon ehf. bæjaráð fór yfir umsóknirnar og uppfylltu þær allar skilyrði auglýsingarinnar og reglna um úthlutun leyfis til nýtingar við Fjallsárlón.
Umsókn Fjallsárlóns ehf. lýsir vel og ítarlega áformum og hugmyndum fyrirtækisins um metnaðarfulla starfsemi.
Bæjarráð samþykkir samhljóða að veita Fjallsárlóni ehf. leyfi til nýtingar við Fjallsárlón
og felur lögfræðingi sveitarfélagsins að gera drög að samningi.

2.
Umsókn um rekstrarleyfi fyrir heimagistingu - Kristín E. Gunnarsdóttir
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við umsókn um rekstrarleyfið.
3.
Umsókn um rekstrarleyfi heimagisting - Surtsey ehf
Bæjarráð getur ekki gefið jákvæða umsögn um rekstrarleyfi til lögaðila.
Bæjarráð bendir á reglugerð nr. 585/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald þar sem segir í 1. mgr. 10. gr.
"Heimagisting er gisting á einkaheimili leigusala og skal ávallt í það minnsta einn af heimilismönnum búa á heimilinu og gegna hlutverki næturvarðar"

4.
Umsókn um rekstrarleyfi - Ránarslóð ehf
Bæjarráð getur ekki gefið jákvæða umsögn um rekstrarleyfi til lögaðila.
Bæjarráð bendir á reglugerð nr. 585/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald þar sem segir í 1.mgr. 10.gr.
"Heimagisting er gisting á einkaheimili leigusala og skal ávallt í það minnsta einn af heimilismönnum búa á heimilinu og gegna hlutverki næturvarðar"
Bæjarráð bendir á reglugerð nr. 585/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald þar sem segir í 1.mgr. 10.gr.
"Heimagisting er gisting á einkaheimili leigusala og skal ávallt í það minnsta einn af heimilismönnum búa á heimilinu og gegna hlutverki næturvarðar"
5.
Umsókn um rekstrarleyfi fyrir heimagistingu - Arnarsýn
Bæjarráð getur ekki gefið jákvæða umsögn þar sem um bílskúr er að ræða. Bæjaráð felur starfsmanni að leiðbeina umsækjanda varðandi breytingu og skráningu húsnæðisins.
6.
Fyrirspurnir - bæjarráð
Engar fyrirspurnir hafa borist.