Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

678. fundur
10. júní 2014 kl. 13:00 - 00:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Reynir Arnarson formaður
Kristján Sigurður Guðnason varaformaður
Björn Ingi Jónsson aðalmaður
Guðrún Ingimundardóttir áheyrnarfulltrúi
Ásgerður Kristín Gylfadóttir bæjarstjóri
Bryndís Bjarnarson upplýsinga og gæðastjóri
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson
Dagskrá
1.
Stjórn Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands - 45
Málsnúmer 1405007F
Guðrún spurði um frágang við Ekruna eftir framkvæmdir, Ásgerður greindi frá að beðið er eftir efni til að ganga frá lóðinni.
Björn Ingi spurði um undirbúning HSSA vegna skólamáltíða og hvort aukin hætta sé á útbreiðslu smitssjúkdóma. Ásgerður og Matthildur upplýstu um vinnulag sem verður viðhaft og á að koma í veg fyrir hættu á smitútbreiðslu. HAUST hefur farið yfir aðstæður og öll leyfi eru til staðar. Bent er á að útkeyrsla á mat hafi verið stunduð um nokkurra ára skeið með góðum árangri. Einnig kom fram að væri búið sé að skrifa undir samning við HSSA og starfsmenn eru að ganga frá kaupum á tækjum og ráðningu starfsfólks.
Guðrún spurði um lið 7. ráðning hjúkrunarstjóra, Matthildur greindi frá að tveir sóttu um stöðuna og Björg Sigurjónsdóttir hafi verið ráðin.
Fundargerð samþykkt.
2.
Félagsmálanefnd Hornafjarðar - 252
Málsnúmer 1405012F
Fundargerð samþykkt.
3.
Samningur við Hólabrekku ehf.
Málsnúmer 201003048
Jón Kristján Rögnvaldsson félagsmálastjóri sat fundinn undir þessum lið.
Farið var yfir vinnu sem farið hefur fram í samskiptum við félagsmálaráðuneytið og rekstraraðila Hólabrekku.
Samþykkt tillaga í samræmi við minnisblað félagsmálastjóra dags. 6. júní.
4.
Ársreikningur HSSA
Málsnúmer 201405053
Afkoma af rekstri stofnunarinnar á árinu 2013 var jákvæð um 4.501 þús. kr. samkvæmt rekstrarreikningi.
Bæjarráð vísar ársreikningi HSSA til afgreiðslu bæjarstjórnar.
5.
Vinnuskóli 2014, laun
Málsnúmer 201405090
Bæjarstjóri kynnti tillögu að launataxta Vinnuskólans 2014.
Tillaga bæjarstjóra að launum vinnuskóla 2014 samþykkt.
6.
Boðuð vinnustöðvun leikskólakennara (FL)19. júní 2014
Málsnúmer 201406017
Ragnhildur Jónsdóttir fræðslustjóri sat fundinn undir þessum lið.
Boðuð er vinnustöðvun hjá Félagi leikskólakennara (FL) þann 19. júní n.k. það mun hafa umtalsverð áhrif á starfsemi leikskólanna þann dag. Lagt fram bréf frá skólastjórnendum þar sem farið er yfir fyrirséð áhrif og ósk um að skólarnir verði lokaðir umræddan dag og bréf frá Sambandi Íslenskra sveitarfélaga varðandi málið.
Bæjaráð samþykkir að farið verði eftir leiðbeiningum Sambandsins dags. 5. júní.
7.
Tímabundin breyting verkaskipting ríkis og sveitafélaga
Málsnúmer 201406014
Lagt fram til kynningar.
8.
Styrktarbeiðni vegna ungmennaskipta Hornafjörður- Söderhamm
Málsnúmer 201406008
Lagt fram erindi frá Youth Port krökkunum og tómstundafulltrúa þar sem óskað er eftir styrk til ungmennaskipta við Söderhamn í Svíþjóð. Evrópa unga fólksins styrkir verkefnið um 60%. Eftir stendur kostnaður uppá 550 þúsund krónur.
Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og felur starfsmönnum að ganga frá málinu.
9.
Dæla fyrir Slökkvilið Hornfjarðar
Málsnúmer 201406009
Borgþór Freysteinsson eldvarnafulltrúi sat fundinn undir þessum lið.
Bæjarráð samþykkir kaup á lausri dælu fyrir slökkviliðið í Öræfum samkvæmt tilboði frá Ólafi Gíslasyni og co hf. dags. 4. júní 2014, kaupin verða fjármögnuð með framlagi EBÍ fyrir árið 2014.
10.
Erindir vegna grindverks
Málsnúmer 201405097
Tómas Ellert Tómasson framkvæmda- og umhverfisstjóri sat fundinn undir þessum lið.
Erindi lagt fram frá íbúum Svalbarði 9 þar sem óskað er eftir að sveitarfélagið taki þátt í kostnaði við uppsetningu girðingar til að afmarka lóðina við Svalbarð 9.
Starfsmönnum falið að afla upplýsinga um málið.
11.
Salerni við Hrolllaugshóla
Málsnúmer 201405089
Tómas Ellert Tómasson framkvæmda- og umhverfisstjóri sat fundinn undir þessum lið.
Í ljósi breytts ástands í salernismálum í samvinnu við ferðaþjónustuaðila er lagt til að þurrsalerni við Hrollaugshóla verði lokað og viðeigandi merkingar settar upp í samráði við þjónustuaðila í nágreninu.
12.
Styrkur vegna gönguleið milli Skálafells og göngub, yfir Hólmsá
Málsnúmer 201406006
Lagt fram til kynningar og vísað til áframhaldandi vinnu starfsmanna.
13.
Styrkur v/gönguleið milli Fláajökuls og Haukafells
Málsnúmer 201406007
Lagt fram til kynningar og vísað til áframhaldandi vinnu starfsmanna.
14.
Endurgerð Miklagarðs
Málsnúmer 201406018
Tómas Ellert Tómasson framkvæmda- og umhverfisstjóri sat fundinn undir þessum lið og gerði grein fyrir verkinu.
Bæjarráð samþykkir að fela starfsmönnum að gera verðkönnun um endurgerð utanhúss á Miklagarði samkv. nýjustu tillögum starfsmanna.
Björn Ingi vék af fundi undir umræðum um verðkönnun.
15.
Umsókn um tækifærisleyfi fyrir Humarhátíð 27.-29. júní 2014
Málsnúmer 201406013
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við útgáfu leyfisins.
16.
Umsókn um stöðuleyfi Ómar Antonsson
Málsnúmer 201406016
Gunnlaugur Rúnar Sigurðsson skipulagsfulltrúi sat fundinn undir þessum lið.
Sótt er um stöðuleyfi fyrir vinnubúðir, salerni og kaffisölu.
Starfsmönnum falið að gera umsækjanda grein fyrir galla í umsókninni.
17.
Sólbær Guesthouse
Málsnúmer 201405064
Gunnlaugur Rúnar Sigurðsson skipulagsfulltrúi sat fundinn undir þessum lið.
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við útgáfu leyfisins.
18.
Selbakki ehf rekstrarleyfi
Málsnúmer 201405062
Reynir vék af fundi undir þessum lið.
Gunnlaugur Rúnar Sigurðsson skipulagsfulltrúi sat fundinn undir þessum lið.
Bæjarráð gerir athugasemd við að umsækjandi er lögaðili, bæjarráð leggur til að rekstarleyfið sé gefið út á forsvarsmann umsækjanda.
19.
Umsókn un endurnýjun rekstrarleyfi fyrir Ósinn ehf.
Málsnúmer 201405030
Gunnlaugur Rúnar Sigurðsson skipulagsfulltrúi sat fundinn undir þessum lið.
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við útgáfu leyfisins.
20.
Umsókn um nýtt rekstrarleyfi Fallastakkur ehf
Málsnúmer 201406005
Gunnlaugur Rúnar Sigurðsson skipulagsfulltrúi sat fundinn undir þessum lið.
Bæjarráð gerir athugasemd við að umsækjandi er lögaðili, bæjarráð leggur til að rekstarleyfið sé gefið út á forsvarsmann umsækjanda
21.
umsókn um stafrsleyfi Nýpugarðar ehf
Málsnúmer 201405098
Gunnlaugur Rúnar Sigurðsson skipulagsfulltrúi sat fundinn undir þessum lið.
Bæjarráð gerir athugasemd við að umsækjandi er lögaðili, bæjarráð leggur til að rekstarleyfið sé gefið út á forsvarsmann umsækjanda.
22.
Umsókn um nýtt rekstrarleyfi fyrir Skyrhúsið ehf
Málsnúmer 201405042
Gunnlaugur Rúnar Sigurðsson skipulagsfulltrúi sat fundinn undir þessum lið.
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við útgáfu leyfisins.
23.
Umsókn um rekstrarleyfi Silfurbraut 42
Málsnúmer 201406001
Gunnlaugur Rúnar Sigurðsson skipulagsfulltrúi sat fundinn undir þessum lið.
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við útgáfu leyfisins að lokinni úttekt byggingarfulltrúa.
24.
Umsókn um rekstrarleyfi Hraunhóll 4
Málsnúmer 201406021
Gunnlaugur Rúnar Sigurðsson skipulagsfulltrúi sat fundinn undir þessum lið.
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við útgáfu leyfisins.
25.
Landslög óskar eftir rökstuðningi vegna úthlutun leyfis til nýtingar þjóðlendu við Fjallsárlón
Málsnúmer 201406015
Lögfræðingi sveitarfélagsins hefur verið falið að gera drög að svari til Landslaga.
26.
Náttúrustofa Suðausturlands ársreikningur og ársskýrsla
Málsnúmer 201405091
Lagt fram til kynningar.
27.
Fyrirspurnir - bæjarráð
Málsnúmer 201009100
Engar fyrirspurnir hafa borist.