Bæjarráð Hornafjarðar
679. fundur
23. júní 2014
kl.
16:00
-
00:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Þórhildur Ásta Magnúsdóttir
formaður
Lovísa Rósa Bjarnadóttir
varaformaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
aðalmaður
Sæmundur Helgason
1. varamaður
Kristján Sigurður Guðnason
1. varamaður
Páll Róbert Matthíasson
1. varamaður
Gunnhildur Imsland
Björn Ingi Jónsson
bæjarstjóri
Bryndís Bjarnarson
upplýsinga og gæðastjóri
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson
Dagskrá
1.
Atvinnu- og menningarmálanefnd - 53
Fundargerð samþykkt.
2.
Lántaka 2014
Ásta H. Guðmundsdóttir, fjármálastjóri gerði grein fyrir á fjárhagsáætlun hafi verið gert ráð fyrir að taka 100 milljón kr. lán á árinu og óskaði eftir því að það yrði tekið núna.
Fór yfir stöðu sveitarfélagsins kom fram að tekjur fyrstu fimm mánuðina hafi verið minni en áætlanir gerðu ráð fyrir sem er m.a. vegna lækkunar á staðgreiðslutekjum.
Lovísa Rósa lagði fram eftirfarandi bókun:
Í ljósi yfirlýsinga fráfarandi meirihluta um góða fjárhagslega stöðu er það einkennilegt að á fyrsta fundi nýs meirihluta liggi hér fyrir beiðni um heimild til 100 milljóna lántöku.
Ásgerður sagði að það hafi alltaf verið ljóst að lántaka væri í fjárhagsáætlun 2014 og telur því að þessi staða eigi ekki að koma nýjum meirihluta á óvart.
Kristján spurði Ástu hvort fjárhagsleg staða sveitarfélagsins væri eftir sem áður sterk og hvort ástæða hefði verið til að taka lánið fyrr? Ásta upplýsti að staða sveitarsjóðs væri sterk og ekki hafi verið þörf á lántöku fyrr.
Bæjarráð samþykkir heimild til 100 milljón kr. lántöku samkvæmt lánasamningi við Sparisjóð Hornafjarðar og nágrennis dags 24. september 2013 og er lántakan í samræmi við fjárhagsáætlun 2014.

3.
Þjónustusamningur við sálfræðing
Ragnhildur Jónsdóttir fræðslustjóri gerði grein fyrir að auglýst hafi verið eftir sálfræðingi sem myndi búa á Höfn, þar sem það markmið náðist ekki var farið í frekari útfærslur með sálfræðingnum sem hefur þjónustað sveitarfélagið. Ragnhildur gerði grein fyrir drögum að þjónustusamningi við sálfræðinginn sem felur í sér aukna viðveru hans með tíðari ferðum til Hornafjarðar þá verður hægt að bjóða upp á aukna þjónustu og sérhæfða meðferð í hugrænni atferlismeðferð.
Bæjarráð samþykkir tillögu velferðarteymis um tveggja ára samning með meiri viðbót sem verður endurskoðaður í maí 2015.
Bæjarráð samþykkir tillögu velferðarteymis um tveggja ára samning með meiri viðbót sem verður endurskoðaður í maí 2015.
4.
Starfsmannamál í Hofgarði
Ragnhildur gerði grein fyrir stöðu skólastarfs í Grunnskólanum í Hofgarði, nemendum muni fækka úr 8 í 5. Ragnhildur lagði til að stöðugildum yrði haldið óbreytt og nýta hluta af stöðugildum í menningartengd verkefni.
Bæjarráð samþykkir óbreyttan fjölda stöðugilda.
Bæjarráð samþykkir óbreyttan fjölda stöðugilda.
5.
Verðfyrirspurn um flutning á endurvinnsluefnum
Ellert Tómasson framkvæmda og umhverfisstjóri gerði grein fyrir verðfyrirspurn sem gerð var vegna flutnings á endurvinnsluefnum.
Fimm bjóðendur voru í verkið:
G. Karlsson ehf. 4.368.400 kr.
Eimskip Íslands ehf. 1.506.753 kr.
KASK Flutningar ehf. 1.528.590 kr.
Funi - Tilboð 1 2.183.700 kr.
Funi - Tilboð 2 3.275.550 kr.
Lægsta verð frá Eimskip Íslands ehf. 1.506.753 kr.
Starfsmönnum falið að ganga til samninga við lægstbjóðanda.

6.
Verksamningur milli Sveitarfélagsins Hornafjarðar og Rannveigar Einarsdóttur frá júlí 2013 vegna Jöklavegar milli lóna.
Björn Ingi Jónsson bæjarstjóri fór yfir samning sem gerður var við Rannveigu Einarsdóttur, kom fram að Rannveig hefur sagt sig frá verkefninu. Ríki Vatnajökuls og Menningarmiðstöðin munu hafa umsjón með verkefninu í framhaldinu.
7.
Málefnasamningur meirihluta bæjarstjórnar D. lista og E. lista
Málefnasamningur meirihlutans lagður fram.
Ásgerður spurði um atriði í samningnum varðandi heimasíðu og fréttaflutning, ferðaþjónustu, tengibyggingu milli sundlaugar og íþróttahúss og þarfagreiningu íþróttamannvirkja. Björn Ingi greindi frá því að stefnt sé á að bæta upplýsingaflæði og aðgengi að efni heimasíðunnar og það sé ekki búið að fara í þarfagreiningu íþróttamanvirkja en muni verða gert. Þórhildur greindi frá að ferðaþjónustan og atvinnumál muni fá meira vægi. Kristján spurði hvort eigi að halda áfam með þá atvinnustefnu sem unnin hefur verið í samstarfi við SASS. Kom fram að unnið verði áfram að atvinnustefnu í samstarfi við SASS.

8.
Samþykkt um stjórn og fundarsköp Sveitarfélagsins Hornafjarðar 2013
Björn Ingi gerði grein fyrir að í málefnasamningi sé gert ráð fyrir að endurskoða samþykktir sveitarfélagsins.
Bæjarráð felur starfsmönnum að vinna að endurskoðun samþykkta sveitarfélagsins.
Bæjarráð felur starfsmönnum að vinna að endurskoðun samþykkta sveitarfélagsins.
9.
Samningur við Hólabrekku ehf.
Björn Ingi Jónsson bæjarstjóri greindi frá kynnisferð fyrir bæjarfulltrúa sem verður farin að Hólabrekku 26. júní 2014.
10.
Aukaaðalfundur SASS - Kjörbréf
Lagt fram.
Starfsmanni falið að senda kjörbrbréf til SASS.
Starfsmanni falið að senda kjörbrbréf til SASS.
11.
Styrkbeiðni Skákfélagið Hrókurinn
Bæjarráð hafnar styrkbeiðninni.
12.
Fundir bæjarráðs sumar 2014
Bæjarráð mun funda á tveggja vikna fresti dagana: 7. júlí, 21. júlí og 11. ágúst.
Næsti bæjarstjórnarfundur verður haldinn 14. ágúst.
Næsti bæjarstjórnarfundur verður haldinn 14. ágúst.
13.
Úthlutun úr Styrktarsjóði EBÍ 2014 til Vöruhússins
Styrkur barst frá Eignarhaldsfélagi Brunabótafélags Íslands til Vöruhússins að upphæð 500 þús. kr. vegna námskeiðahalds, uppbyggingar og þrúunar í Vöruhúsi.
Bæjaráð fagnar styrkveitingunni og óskar Vöruhúsinu til hamingju.
Bæjaráð fagnar styrkveitingunni og óskar Vöruhúsinu til hamingju.
14.
Krafa um grenndarkynningu vegna fyrirhugaðs rekstur að Silfurbraut 42
Lagt fram erindi frá íbúum við Silfurbraut þar sem íbúar krefjast þess að grenndarkynning verði gerð áður en rekstur vegna heimagistingar að Silfurbraut 42 fari fram.
Bæjarráð vísar erindinu til umhverfis-og skipulagsnefndar.
Bæjarráð vísar erindinu til umhverfis-og skipulagsnefndar.
15.
Umsókn um tækifærisleyfi - Dansleikur í Sindrabæ
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við leyfið.
16.
Umsókn um tækifærisleyfi v/þjóðarkvölds
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við leyfið.
17.
Umsókn um tækifærisleyfi Víkin
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við leyfið.
18.
Umsókn um tækifærisleyfi v. ball í íþróttahúsi
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við leyfið.
19.
Fyrirspurnir - bæjarráð
Engar fyrirspurnir hafa borist.