Bæjarráð Hornafjarðar
680. fundur
7. júlí 2014
kl.
16:00
-
00:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Þórhildur Ásta Magnúsdóttir
formaður
Lovísa Rósa Bjarnadóttir
varaformaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
aðalmaður
Björn Ingi Jónsson
bæjarstjóri
Ragnhildur Jónsdóttir
fræðslustjóri
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Ragnhildur Jónsdóttir
Fræðslustjóri
Dagskrá
1.
Skóla,íþrótta og tómstundanefnd - 48
Fundargerð samþykkt.
2.
Stjórn Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands - 46
Fundargerð samþykkt.
3.
Umhverfis- og skipulagsnefnd - 65
Fundargerð samþykkt.
4.
Atvinnu- og menningarmálanefnd - 53
Fundargerð samþykkt.
5.
Félagsmálanefnd Hornafjarðar - 253
Fundargerð samþykkt.
6.
Hafnarstjórn Hornafjarðar - 165
Fundargerð samþykkt.
7.
Veitingarekstur í Nýheimum
Björn Ingi Jónsson gerði grein fyrir erindi varðandi veitingarekstur í Nýheimum frá Eyjólfi Guðmundssyni og Zophoníasi Torfasyni fyrir hönd FAS. Þar er óskað eftir aðkomu sveitarfélagsins að ráðningu starfsmanns í hlutastarf í veitingasölu.
Björn Ingi greindi frá hugmyndum um sama fyrirkomulag og er í Grunnskóla Hornafjarðar í samstarfi við HSSA og óskaði eftir heimild til að útfæra það í samstarfi við HSSA og FAS. Samþykkt að heimilia Birni að vinna áfram að útfærslu hugmyndarinnar.

8.
Úthlutun styrks frá Vegagerðinni til styrkvega
Lovísa Rósa Bjarnadóttir vék af fundi og Páll Róbert Matthíasson kom inn í hennar stað. Vegagerðin hefur úthlutað 1.5 milljón kr. til styrkvega í sveitarfélaginu fyrir árið 2014. Umsóknir hafa borist um lagfæringu á vegi inn í Stafafellsfjöll að upphæð 5.578.000 kr. og umsókn frá Vatnajökulsþjóðgarði til að hefla vegi í þjóðgarðinum að upphæð 2.500.000 kr. Komið hefur fram að búið er að nýta um 500.000 kr. af styrknum til að hefla suma af þeim vegum sem umsókn Vatnajökulsþjóðgarðs telur upp.
Bæjarráð sammála um að 600.000 kr. ( kr. 500.000 þegar ráðstafað) komi í hlut umsóknar Vatnajökulsþjóðgarðs og 900.000 kr. til lagfæringar á vegi inn í Stafafellsfjöll. Bæjarráð leggur til að komið verði á fót samráðshóp Félags sumarhúsaeigenda, landeigenda og sveitarfélagsins um forgangsröðun á nýtingu styrksins.

9.
Erindi vegna grindverks
Með vísan í samþykkt um þátttöku sveitarfélagsins í kostnaði við uppsetningu girðinga á móti lóðarhöfum í þéttbýli samþykkir bæjarráð að taka þátt í kostnaði við girðingu á hlið lóðar sem snýr að Grunnskóla Hornafjarðar og á þeirri hlið sem snýr að íþróttarsvæði sveitarfélagsins í samræmi við lóðarleigusamning.
10.
Kaup á Loftmyndum fyrir sveitarfélagið
Bæjarráð samþykkir kaup á loftmynd af Höfn kr. 1.950.000 án vsk. en hafnar tilboði um kaup á loftmyndum af öllu sveitarfélaginu sem er að upphæð kr. 7.8 milljónir án vsk. Haldið verði áfram að kaupa stakar myndir eftir þörfum.
11.
Verktilboð í hönnun Vöruhúss
Lagt fram til kynningar. Umræður voru um framtíðarskipulag Vöruhússins og innviði þess. Rætt um gjaldtöku fyrir aðstöðu í húsinu og að ljúka vinnu við stefnumótun um Vöruhúsið til að leggja fyrir bæjarráð síðar.
12.
Mikligarður - opnun tilboða - áfangi 1
Björn Imsland kom inn á fund undir þessum lið og gerði grein fyrir málinu.
Tvö tilboð bárust í fyrsta áfanga við endurnýjun Miklagarðs.
Tilboð bárust frá:
H. Christiansen ehf. 14.441.297 kr. sem er 2% yfir kostnaðaráætlun.
Þingvað ehf. 16.149.600 kr. sem er 14% yfir kostnaðaráætlun.
Kostnaðaráætlun hljóðaði upp á 14.162.000 kr.
Bæjarráð samþykkir að ganga til samninga við H. Christiansen ehf.

13.
Fasteignarmat 2015
Lagt fram til kynningar. Fram kom að fasteignamat í sveitarfélaginu hækkar um 2.7 % milli ára.
14.
Endurbætur á lóð Nýheima
Kynnt mál frá stjórn Nýheima um aðkomu sveitarfélagsins að umhirðu lóðar umhverfis Nýheima. Kostnaðaráætlun lögð fram. Málinu vísað í vinnu sem er í gangi hjá starfsmönnum sveitarfélagsins hvað varðar tekjur og gjöld í Nýheimum. Fram kom að þjónustusamningur frá 2006 er útrunninn og unnið er að endurnýjun hans.
15.
Beiðni um fjármagn til kaupa á vinnustólum
Erindi frá grunnskólanum lagt fram, óskað er eftir aukafjármagni til að kaupa stóla fyrir nemendur og starfsfólk. Bæjarráð samþykkir í samræmi við umfjöllun í skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd að kaupa nemendastólana en vísar kaupum um stóla fyrir starfsfólk til fjárhagsáætlanagerðar fyrir næsta ár.
16.
Gagnaveita - staða mála
Björn Ingi greindi frá framvindu kom fram að búið er að tengja nánast allt sem komið var af ljósleiðara í jörðu skápur í Hrollaugsstöðum er ótengdur en herbergið þar er ný orðið klárt. Verktakinn var um helgina að koma heimtaugum að húsum í Borgarbyggð og það verður klárað í dag ásamt heimtaugum á Brunnavöllum. Á morgun verður byrjað að plægja heima að Hestgerði frá þeim stað sem endað var síðast. Orkufjarskipti verða með í plægingu að Skálafelli það hefur í för með sér hagræðingu. Rarik verðu einnig með frá Hestgerð yfir í Stórahvamm með jarðstreng. Búið er að setja upp örbylgju frá Standey yfir í Holt og síðan áfram frá Holti upp á Borgarhafnarfjall. Vodafone er ekki tilbúið með gagnatenginu inná þessa örbylgju ennþá. Ásgerður þakkar fyrir upplýsingarnar og lýsir yfir ánægju með að verkið mjakist áfram.
17.
Hvalnesskriður, hrunvarnir.
Lagt fram til kynningar.
Bæjarráð hvetur Vegagerðina til að fara af fullum krafti í að undirbúa jarðgöng undir Lónsheiði, þau myndu leysa vegkaflann um Hvalnesskriður af hólmi.
Viðhaldskostnaður á núverandi vegi er mikill, grjóthrun og fok veldur eignatjóni og slysahættu vegfarenda.

18.
Umsókn um styrk
Bæjarstjóra falið að afla frekari upplýsinga um málið.
19.
Umsókn um stöðuleyfi Ómar Antonsson
Bæjarráð samþykkir að veita stöðuleyfi og hvetur umsóknaraðila til þess leggja sem fyrst fram áætlun um uppbyggingu á þessum eftirsótta ferðamannastað.
20.
Umsókn um endurnýjun á rekstrarleyfi Íslandshótel ehf
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við útgáfu rekstarleyfisins.
21.
Umsókn um rekstrarleyfi Díma ehf
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við útgáfu rekstarleyfisins.
22.
Umsókn um rekstrarleyfi Selbakki ehf
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við útgáfu rekstarleyfisins.
23.
Breyting á rekstrarleyfi Dyngja
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við útgáfu rekstarleyfisins. Í ljósi gildistöku á nýju aðalskipulagi á næstunni verður þetta húsnæði í landnýtingarflokknum "Miðsvæði" og rúmast starfsemin því innan skipulags.
24.
Umsókn um rekstrarleyfi Bugðuleiru 6
Bæjarráð frestar afgreiðslu umsóknarinnar og felur starfsmönnum að afla frekari upplýsinga. Upp komu vangaveltur um hve margar húsvarðaríbúðir séu í Bugðuleiru 6? Starfsmönnum falið að kanna málið.
25.
Umsókn um nýtt leyfi - Vala ferðaþjónustan
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við útgáfu rekstarleyfisins.
26.
Umsókn um rekstrarleyfi Seljavellir
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við útgáfu rekstarleyfisins.
27.
Fundargerð Heilbrigðisnefdar Austurlands
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
28.
Fundargerð Sambands íslenskra sveitarfélga 817
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
29.
Fyrirspurnir - bæjarráð
Engar fyrirspurnir hafa borist.