Bæjarráð Hornafjarðar
681. fundur
21. júlí 2014
kl.
13:00
-
00:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Þórhildur Ásta Magnúsdóttir
formaður
Lovísa Rósa Bjarnadóttir
varaformaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
aðalmaður
Björn Ingi Jónsson
bæjarstjóri
Bryndís Bjarnarson
upplýsinga og gæðastjóri
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson
Dagskrá
1.
Áskorun um bætt aðgengi við Ekru húsnæi og raðhúsi í eigu Búseta
Erindi frá starfsfólki HSSA langt fram. Bæjarráð hvetur til að frágangi vegna framkvæmda sem hafa verið í gangi við Ekruna verði lokið hið fyrsta.
Vísað til frekari vinnu starfsmanna og fjárhagsáætlunargerðar.
Vísað til frekari vinnu starfsmanna og fjárhagsáætlunargerðar.
2.
Deiliskipulag vegna skotvallar Skotveiðifélagsins í Bergárdal
Bæjarráð samþykkir að veita landeigendum heimild til að fara í vinnu við deiliskipulag en bendir á deiliskipulagið hefur í för með sér smávægilega breytingu á aðalskipulagi sveitarfélagsins. Bæjarráð leggur áherslu á að farið verði í rannsóknir á hljóðvist áður en hafist er handa við gerð deiliskipulagisns.
Vísað til umhverfis-og skipulagsnefndar.
Vísað til umhverfis-og skipulagsnefndar.
3.
Gagnagrunnur og kort af öllu sveitarfélaginu
Björn Ingi greindi frá samskiptum við Fjarkönnun, þar sem sveitarfélaginu er boðinn aðgangur að gangagrunni sem nær yfir allt sveitarfélagið og nýtist ma. til úrvinnslu í skipulags og menningarmálum. Aðgangurinn kostar 3. milljónir án vsk..
Bæjarráð samþykkir kaupin.
Bæjarráð samþykkir kaupin.
4.
Jökulsárlón, krafa um stöðvun á starfsemi án leyfa.
Björn Ingi greindi frá samskiptum við lögfræðing sveitarfélagsins sem telur kröfuna réttmæta.
Ásgerður sagði umhugusunarvert að sveitarfélagið fari í deiliskipulagsvinnu við vesturbakka Jökulsárlón.
Þórhildur sagði ekki ráðlegt að fara í deiliskipulagsvinnu á vesturbakkanum þar er göngusvæði í dag.
Björn Ingi lagði til að sveitarfélagið sendi landeigendum erindi þess efnis að þeim er gefinn tími fram á haust til að vinna að sátt í málinu og hefja uppbyggingu á deiliskipulagða svæðinu við Jökulsárlón. Takist það ekki þá mun sveitarfélagði skoða að gera tilboð í deiliskipulagða svæðið.
Bæjarráð felur Birni Inga að vinna áfram að málinu.

5.
Endurgreiðsla til sveitarfélaga og áætlun um refaveiðar
Lagt fram til kynningar.
Í drögum að samningi við Umhverfisstofnun kemur fram að áætluð endurgreiðsla er allt að 900 þús. kr..
Í drögum að samningi við Umhverfisstofnun kemur fram að áætluð endurgreiðsla er allt að 900 þús. kr..
6.
Kvörtun Must Visit Iceland,vegna ætlaðra brota Jökulsárlóns
Lagt fram til kynningar.
Samkeppniseftirlitið hefur hætt rannsókn á málinu.
Bæjarráð vísar í fyrri bókun í fundargerð vegna málefna Jökulsárlóns.
Samkeppniseftirlitið hefur hætt rannsókn á málinu.
Bæjarráð vísar í fyrri bókun í fundargerð vegna málefna Jökulsárlóns.
7.
Umsókn um rekstrarleyfi Bugðuleiru 6
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við rekstrarleyfið.
Bæjarráð leggur á það áherslu að heimagisting er rekin á einkaheimili umsækjanda og skal hann vera búsettur þar.
Bæjarráð leggur á það áherslu að heimagisting er rekin á einkaheimili umsækjanda og skal hann vera búsettur þar.
8.
Umsókn um rekstrarleyfi Silfurbraut 34
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við rekstrarleyfið.
Bæjarráð leggur á það áherslu að heimagisting er rekin á einkaheimili umsækjanda og skal hann vera búsettur þar.
Bæjarráð leggur á það áherslu að heimagisting er rekin á einkaheimili umsækjanda og skal hann vera búsettur þar.
9.
Umsókn um styrk
Bæjarráð telur að það sé nú þegar að styrkja umrædda sýningu á vegum Hlyns Pálmasonar í formi húsnæðis, rafmagns og hita en bendir jafnframt umsækjanda að hægt sé að sækja um styrk í menningarsjóð sveitarfélagsins.
10.
Ályktanir 9. fundar Sveitarstjórnarvetvangs EFTA
Bæjarráð fagnar jákvæðri umfjöllun í ályktun 9. fundar sveitarstjórnarvetvangs EFTA þar sem kynnt var "metnaðarfullt umhverfisverkefni Sveitarfélagsins Hornafjarðar" vonir standa til að það geti orðið fyrirmyndarverkefni fyrir önnur sveitarfélög.
Til stendur að gera samning við Landvernd um loftlagsverkefnið þar sem Landvernd mun aðstoða sveitarfélagið við framkvæmd verkefnisins.
Til stendur að gera samning við Landvernd um loftlagsverkefnið þar sem Landvernd mun aðstoða sveitarfélagið við framkvæmd verkefnisins.
11.
Boð á landsþing Sambands íslenskra sveitafélaga
Lagt fram til kynnningar.
Búið er að ganga frá ferð fulltrúa sveitarfélagsins á landsþing.
Búið er að ganga frá ferð fulltrúa sveitarfélagsins á landsþing.
12.
Fundargerð aukaaðalfundar SASS
Lagt fram til kynningar.
13.
Fundargerð SASS 481
Lagt fram kynningar.
14.
Fyrirspurnir - bæjarráð
Engar fyrirspurnir hafa borist.