Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

682. fundur
11. ágúst 2014 kl. 16:00 - 00:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Þórhildur Ásta Magnúsdóttir formaður
Lovísa Rósa Bjarnadóttir varaformaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður
Björn Ingi Jónsson bæjarstjóri
Bryndís Bjarnarson upplýsinga og gæðastjóri
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson
Dagskrá
1.
Menntastefna árangursmódel
Málsnúmer 201408012
Ragnhildur Jónsdóttir fræðslustjóri sat fundinn undir þessum lið og greindi frá kostnaðar-og aðgerðaráætlun við árangursmódel fyrir menntastofnanir sveitarfélagsins.
Bæjarráð samþykkir að veita fé af óráðstöfuðu í verkefnið.
2.
Beiðni um styrk
Málsnúmer 201407037
Erindi lagt fram frá Parkisonfélaginu þar sem sótt er um styrk til að halda fund félagsins í Hornafirði.
Bæjarráð samþykkir styrkbeiðni félagsins í formi fundaraðstöðu og fjárframlag upp á 50. þús. krónur.
3.
Beiðni um styrk
Málsnúmer 201402025
Erindi lagt fram frá Landgræðslu ríkisins þar sem sótt er um styrk til samstarfsverkefnis Bændur græða landið.
Ellefu þátttakendur eru í verkefninu og er sótt um 6 þúsund á þátttakanda samtals 66. þús. krónur.
Bæjarráð samþykkir styrkbeiðnina.
4.
Upplýsingamiðstöð í Möðrudal
Málsnúmer 201404013
Erindi frá bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs leggur til að sveitarstjórnir sem liggja að Vatnajökli móti sér stefnu um hvort og þá hvernig rekstur upplýsingarmiðstöðva verði háttað í samvinnu við Vatnajökulsþjóðgarð.
Sveitarfélagið Hornafjörður er í samstarfi við Vatnajökulsþjóðgarð um rekstur upplýsingamiðstöðvar í Gömlubúð.
5.
Þokustíg í Hornafirði
Málsnúmer 201408010
Bæjarráð tekur jákvætt í erindið en bendir á að sveitarfélagið vinnur að gerð jöklastígs í gegn um sveitarfélagið, tilvalið er að tengja verkefnin. Starfsmönnum falið að hafa samband við verkefnastjóra Þokuverkefnisins og kynna verkefni við stíga í sveitarfélaginu.
6.
Aðgengi og aðkoma gangandi umferðar að Hafnarbraut 59
Málsnúmer 201408009
Bæjarráð tekur jákvætt í að laga aðgengi að Hvítasunnukirkjunni með framlengingu á göngustíg.
Málinu vísað til frekari vinnu umhverfis-og skipulagsnefndar.
7.
Ráðningarsamningur bæjarstjóra
Málsnúmer 201408011
Ráðningasamningur bæjarstjóra afhentur bæjarráði.
Samningurinn er eins og ráðningasamningur fyrrverandi bæjarstjóra Hjalta Þórs Vignissonar.
8.
Krafa um stöðvun á starfsemi án leyfa við Jökulsárlón
Málsnúmer 201407028
Auðun Helgason lögfræðingur sveitarfélagins sat fundinn undir þessum lið og fór yfir drög að svari sveitarfélagsins við bréfi Ice Lagoon ehf. frá 1. ágúst sl..
Í bréfi Ice Lagoon frá 1. ágúst sl. er m.a. sótt um stöðuleyfi á austurbakka Jökusárlóns. Umsókninni er vísað til umhverfis-og skipulagsnefndar.
Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra og lögfræðingi sveitarfélagsins að ganga frá svari til Ice Lagoon ehf..
9.
Áskorun til landeigenda um uppbyggingu við Jökulsárlón
Málsnúmer 201408001
Auðun Helgason lögfræðingur sveitarfélagsins sat fundinn undir þessum lið. Fram kom að búið er að senda bréf til allra þinglýstra eigenda að jörðinni Fell sem eru skv. þinglýsingavottorði dags. 01.08.2014 32 aðilar.
10.
Gagnaveita - staða mála
Málsnúmer 201310082
Björn Ingi Jónsson gerði grein fyrir að búið er að plægja niður ljósleiðara í Suðursveit, unnið er að tengingu. Vænta má ákvörðunar um kaup á örbylgjubúnaði fyrir Mýrarnar í vikulok.
11.
Fyrirspurnir - bæjarráð
Málsnúmer 201009100
Engar fyrirspurnir hafa borist.