Bæjarráð Hornafjarðar
683. fundur
18. ágúst 2014
kl.
16:00
-
00:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Þórhildur Ásta Magnúsdóttir
formaður
Lovísa Rósa Bjarnadóttir
varaformaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
aðalmaður
Björn Ingi Jónsson
bæjarstjóri
Bryndís Bjarnarson
upplýsinga og gæðastjóri
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson
Dagskrá
1.
Félagsmálanefnd Hornafjarðar - 254
Fundargerð samþykkt.
2.
Umhverfis- og skipulagsnefnd - 66
Gunnlaugur Rúnar Sigurðsson mætti á fundin undir þessum lið. Ásgerður spurði um lið þrjú hvort það væri leyfiskylt að nýta fuglafælu/gasbyssum vegna hljóðmengunar og hvort mælingar hafi farið fram á skotsvæðinu.
Rúnar sagði engar mælingar hafa farið fram á skotsvæðinu unnið er að undirbúniningi að mælingum. Starfsmönnum falið að kanna með leyfi fyrir fuglafælur. Ásgerður spurði einnig um deiliskipulag við Drápskletta, hvort það væri ekki eðlilegt að funda með forsvarsmönnum Akstursíþróttafélagsins.
Björn Ingi greindi frá fundi sínum með formanni Akstursíþróttafélagsins, þar kom fram að kostnaður við hljóðmanir sé mjög hár og umræða sé um hvort eigi að færa brautina. Bæjarráð er sammála um að boða til fundar með forsvarsmönnum félagsins og funda með þeim og umhverfis-og skipulagsnefnd. Ásgerður spurði hvort ætti að fækka leiksvæðum enn frekar í sveitarfélaginu, Björn Ingi upplýsti að ekki hafi verið tekin ákvörðum um það og stæði ekki til að fækka leiksvæðum meira en áður hafi verið ákveðið. Ásgerður spurði hvort það væri ráð að fá Ferðafélagið til að ganga aftur í hús og fræða fólk um hvernig á að flokka í sorptunnurnar. Björn Ingi upplýsti að birta eigi grein í næsta Eystrahorni með upplýsingum um sorpflokkun ásamt myndum. Lovísa lagði til að vísa 11. lið til hafnarstjórnar.

3.
Ósk um beitiland
Gunnlaugur Rúnar Sigurðsson mætti á fundin undir þessum lið.
Erindi frá Gerði Örnu Guðjónsdóttur lagt fram, óskað er eftir beitilandi á svæði við Mánagarð sem ekki hefur verið nýtt sem beitiland áður.
Starfsmönnum falið að hafa samband við íbúa á þeim lóðum sem liggja að viðkomandi svæði og leita eftir samþykki þeirra. Um er að ræða tímabundna úthlutun.

4.
Skipulagsdagurinn 2014
Gunnlaugur Rúnar Sigurðsson mætti á fundin undir þessum lið.
Boð frá Skipulagsstofnun um samráðsfund Skipulagsstofnunar og sveitarfélaga í samstarfi við Samband íslenskra sveitarfélaga sem verður haldinn 29. ágúst á Grand Hótel lagt fram. Björn Ingi lagði til að aðalmönnum í bæjarstórn og umhverfis-og skipulagsnefnd verði boðið að sækja fundinn.
Samþykkt.

5.
Fyrirspurn vegna stöðuleyfa við Jökulsárlón
Gunnlaugur Rúnar Sigurðsson mætti á fundin undir þessum lið.
Erindi frá Bjarna Sævari Geirsyni, lagt fram þar sem hann bendir á að ýmsir lausamunir við Jökusárlón eru ekki með stöðuleyfi.
Starfsmönnum falið að fara yfir málið og gera viðeigandi ráðstafanir.

6.
Samningur við Hólabrekku ehf.
Jón Kristján Rögnvaldsson og Maren Sveinbjörnsdóttir sátu fundinn undir þessu lið.
Farið yfir stöðu mála.
Farið yfir stöðu mála.
7.
Skyldur sveitarfélaga samkvæmt jafnréttislögum
Erindi frá Jafnréttisstofu lagt fram, þar sem minnt er á ákvæði laga nr. 10/2008 um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla er varða sveitarstjórnir. Þar kemur fram að sveitarstjórnum beri að skipa jafnréttisefndir og sjá til þess að hlutur kynjanna sé sem jafnastur í nefndum og ráðum. Þá hvetur Jafnréttistofa sveitarfélög að senda fulltrúa sína á jafnréttistþing.
Þá óskar Jafnréttisstofa eftir upplýsingum um þá sem sitja í jafnréttisnefnd sveitarfélagsins.
Málinu vísað til félagsmálanefndar sem er jafnframt jafnréttisnefnd sveitarfélagsins.

8.
Lagabreytingar á umdæmum embætta sýslumanna og lögreglustjóra
Björn Ingi fór yfir minnisblað um framtíðarskipan embættismörk lögreglustjóra.
Á stjórnarfundi SASS. var tekið fyrir breyting á umdæmamörkum nýrra lögregluembætta..., sjá 7.lið í fundargergerð SASS. nr.482. Þar kemur meðal annars fram mörk lögregluembætta ættu að fylgja kjördæmismörkum til að hagsmunagæsla kjörinna fulltrúa er snerta málefni lögreglu og sýslumanna séu betur tryggð.
Mikilvægt er að samræmi sé sem mest á milli stjórnsýslueininga ríkisins á svæðinu, s.s. heilbrigðisstofnana og umdæma lögreglustjóra og sýslumanna og einnig að hagsmunaaðilar á þessu svæði geti leitað til þingmanna kjördæmisins með mál sem snerta málefni umdæma sýslumanna og lögreglustjóra.
Bæjarráð Hornafjarðar tekur undir það sem kemur fram á fundi SASS um málið. Eftir vandlega skoðun á málinu er það niðurstaða bæjarráðs að hagsmunum sveitarfélagsins verði betur borgið til lengri tíma litið með því að skipan lögreglumála fylgi kjördæmismörkum.
Það hefur verið afstaða Sveitarfélagsins Hornafjarðar frá síðustu breytingum á skipan lögreglumála árið 2007 að hér ætti að vera staðsettur lögreglustjóri. Að öðrum kosti er það lágmarkskrafa að hér verði staðsettur löglærður yfirlögregluþjónn slík ákvörðun myndi tryggja mikinn stöðuleika og styðja við starf lögreglunnar á svæðinu. Sökum mikillar fjarlægðar frá aðalstöð og lögreglustjóra er talið mikilvægt að fulltrúi hans geti tekið ákvarðanir við þær aðstæður sem hér kunna að skapast. Þessu samhliða er nauðsynlegt að tryggja áfram að tveir varðstjórar verði áfram á vöktum auk tveggja lögreglumanna. Þessi skipan mála tryggir aukna viðveru á lögreglustöð og eflir um leið eftirlit og sýnileika lögreglu.

9.
Bifreiðakostur sveitarfélagsins
Björn Ingi gerði grein fyrir bifreiðaeign sveitarfélagsins og hugmyndum að framtíðarstefnu um kaup á rafmagnsbílum. Í gildi er undanþága á virðisauka vegna kaupa á rafmagnsbílum sem fellur úr gildi um næstu áramót, bæjarstjóra falið að kanna möguleika á framlengingu undanþágunar í ljósi samstarfsverkefnis sveitarfélagsins, Landverndar og Sambands íslenskra sveitarfélaga um minnkun gróðurhúsalofttegunda.
Björn Ingi greindi frá að brýnt er að endurnýja bifreið fyrir Áhaldahúsið vegna bilunar.
Bæjarráð samþykkir kaup í samræmi við framlögð gögn, fjármunirnir verða teknir af óráðstöfuðu.

10.
Fundargerð SASS 482
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
11.
Fyrirspurnir - bæjarráð
Engar fyrirspurnir hafa borist.