Bæjarráð Hornafjarðar
684. fundur
25. ágúst 2014
kl.
16:00
-
00:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Þórhildur Ásta Magnúsdóttir
formaður
Lovísa Rósa Bjarnadóttir
varaformaður
Kristján Sigurður Guðnason
1. varamaður
Björn Ingi Jónsson
bæjarstjóri
Bryndís Bjarnarson
upplýsinga og gæðastjóri
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson
Dagskrá
1.
Hafnarstjórn Hornafjarðar - 166
Björn Ingi greindi frá ráðstefnu um hornafjarðaós sem verður haldin á Hótel Höfn þann 10. september og sagði mikilvægt að fólk mæti. Dagskráin verður sett á heimasíðu sveitarfélagsins.
Fundargerð samþykkt.
Fundargerð samþykkt.
2.
Skóla,íþrótta og tómstundanefnd - 49
Kristján spurði hvort ætti að fara í skoðanakönnun vegna leikskólanna lýsti áhyggjum um að hún gæti tafið fyrr vinnu á innleiðingu á árangursmódeli að fyrirmynd Reykjanesbæjar.
Kom fram að málin eru ólík og ættu ekki að þurfa að trufla hvort annað. Allir eru sammála um að vandað verði til verka í þeirri vinnu sem framundan er við gerð skoðanakönnunar. Í ljósi umræðu um fyrirkomulag leikskóla á vormánuðum má ljóst vera aðólíkar skoðanir eru um það fyrirkomulag sem nú er.
Kristján spurði um málefni Sporhallarinnar, Björn Ingi greindi frá að starfsmenn væru að skoða framtíðarmöguleika fyrir líkamsræktarstöð á Höfn.
Fundargerð samþykkt.
Kom fram að málin eru ólík og ættu ekki að þurfa að trufla hvort annað. Allir eru sammála um að vandað verði til verka í þeirri vinnu sem framundan er við gerð skoðanakönnunar. Í ljósi umræðu um fyrirkomulag leikskóla á vormánuðum má ljóst vera aðólíkar skoðanir eru um það fyrirkomulag sem nú er.
Kristján spurði um málefni Sporhallarinnar, Björn Ingi greindi frá að starfsmenn væru að skoða framtíðarmöguleika fyrir líkamsræktarstöð á Höfn.
Fundargerð samþykkt.
3.
Krafa um stöðvun á starfsemi án leyfa við Jökulsárlón
Auðun Helgason lögfræðingur sveitarfélagsins sat fundinn undir þessum lið. Kristján vék af fundi. Farið var yfir erindi frá lögmanni Ice Lagoon ehf. þar sem óskað er eftir frestun á kröfu sveitarfélagsins um að fyrirtækið fjarlægi alla lausamuni fyrir 21. ágúst. Engar nýjar upplýsingar komu fram í erindi Ice Lagoon dags. 20. ágúst 2014. Bæjarráð er sammála um að veita lokafrest til 1. september nk. til að fjarlægja lausafjármuni í eigu félagsins á austurbakka Jökulsárlóns. Að öðrum kosti mun sveitarfélagið beita dagssektum skv. X. kafla skipulagslaga nr. 123/2010 og X. kafla mannvirkjalaga nr. 160/2010 að upphæð 250 þúsund krónur.
4.
Erindi frá Úrskurðarnefnd umhverfis-og auðlindamála
Auðun Helgason lögfræðingur sveitarfélagsins sat fundinn undir þessum lið. Farið var yfir erindi frá úrskurðarnefnd umhverfis-og auðlindamála vegna kæru Ice Lagoon ehf. til nefndarinnar vegna ákvörðunar sveitarfélagsins um að Ice Lagoon fjarlægi stöðuleyfisskylda lausafjármuni á austurbakka Jökuslárlóns.
Bæjarstjóra ásamt lögmanni falið að svara erindinu.
Bæjarstjóra ásamt lögmanni falið að svara erindinu.
5.
Viðauki III við fjárhagsáætlun 2014
Björn Ingi gerði grein fyrir vinnu við viðauka III, vísað til áframhaldandi vinnu starfsmanna.
6.
Fundargerðir Nýheima
Fundargerðir nr. 30-33 stjórnar Nýheima lagðar fram.
7.
Ríki Vatnajökuls viðræður og hugmyndir
Björn Ingi gerði grein fyrir að samningur við Ríki Vatnajökuls rennur út um næstu áramót. Umræður sköpuðust um skyldur og hlutverk sveitarfélagsins gagnvart hlutafélaginu annars vegar og ferðaþjónustunnar hins vegar. Starfsmönnum falið að taka saman öll framlög til Ríki Vatnajökuls.
Vísað til umræðu í atvinnu-og menningamálanefd og áframhaldandi vinnu.
Vísað til umræðu í atvinnu-og menningamálanefd og áframhaldandi vinnu.
8.
Kynning á starfsemi Lögmála ehf
Lagt fram til kynningar.
9.
Framlenging á leyfi Melmis ehf til leitar og rannsókna á málmum
Lagt fram til kynningar.
10.
Fyrirspurnir - bæjarráð
Engar hafa borist.