Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

685. fundur
1. september 2014 kl. 16:00 - 00:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Þórhildur Ásta Magnúsdóttir formaður
Lovísa Rósa Bjarnadóttir varaformaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður
Björn Ingi Jónsson bæjarstjóri
Ásta Halldóra Guðmundsdóttir (ÁHG) fjármálastjóri
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Björn Ingi Jónsson bæjarstjóri
Dagskrá
1.
Atvinnu- og menningarmálanefnd - 54
Málsnúmer 1408006F
Vala Garðarsdóttir sat fundinn undir þessum lið. Rætt um 1.lið list- og verknámsaðstaða á Hornafirði. Ásgerður spurði um lengd samninga við frumkvöðla sem þarna hafa aðstöðu. Bæjarstjóra falið að afla gagna vegna samninga. Þórhildur spurði hvað væri átt við með aukningu í stöðugildum ? Vala sagði að umræðan á fundinum hefði verið að umfang þess sem kemur fram í starfslýsingu forstöðumanns sé meira en einn einstaklingur geti komist yfir. Nýbúið er að ráða í stöðu tómstundarfulltrúa, Dagbjörtu Ýr Kiesel og óskar bæjarráð henni velfarnaðar í starfi og ætti það að létta undir í starfi forstöðumanns. Bæjarráð beinir því til Skóla- íþrótta- og tómstundarnefndar að leggja áherslu á að ljúka vinnu við stefnumótun Vöruhúss og taka umfjöllun atvinnu- og menningarmálanefndar inn í þá vinnu. Bæjarráð leggur áherslu á að starfssemi Grunnskóla Hornafjarðar og félagsmiðstöð hafi forgang í Vöruhúsinu. Ásgerður spurði út í 3.lið atvinnustefnuna og það að ráða ferðamála- og atvinnufulltrúa og hvort hugsunin væri að vera líka með samning við Ríki Vatnajökuls. Vala sagði að umræðan hefði verið á þá leið að skoða hvort ekki væri rétt að ráða ferðamála- og atvinnufulltrúa til sveitarfélagsins. Ásgerður óskaði eftir því að fram komi gögn um fjölda fyrirtækja í ferðaþjónustu og hlutfall þeirra sem eru hluthafar að Ríki Vatnajökuls. Einnig sköpuðust umræður um 4.lið Mikligarður og húsið sem framtíðarhúsnæði fyrir Hornafjarðarsöfn. Öll gögn og stefna er klár af hálfu Hornafjarðarsafna næstu skref er að fara í hönnunarvinnu. Stafsmönnum falið að velja þrjár hönnunarstofur til að gefa verðtilboð í hönnunarvinnu. Ásgerður spurði hvort allir leigutakar hafi rýmt sína aðstöðu í Miklagarði Vala svaraði því til að fjórir eru enn með aðstöðu í húsinu.
Fundargerð samþykkt.
2.
Stjórn Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands - 47
Málsnúmer 1408008F
Matthildur Ásmundardóttir sat fundinn undir þessum lið. Þórhildur Ásta spurði út í rekstrarniðurstöðu HSSA og hvort yrði auðvelt að bregðast við með auknu aðhaldi. Matthildur sagði að það yrði erfitt þar sem nú þegar hefur stofnunin skorið mikið niður á undanförnum árum í takt við efnahagsaðstæður. Kom fram í orðum Matthildar að húsnæðisskortu hamlar öllu innra starfi stofnunarinnar.
HSSA er með 24 hjúkrunarrýmum sem flest eru lítil tvíbýli sem stangast á við viðmiðunarreglur um aðbúnað á hjúkrunarheimilum sem samþykktar voru í júní sl. auk þess eru nú 5 á biðlista eftir hjúkrunarrými. Í ljósi áðurnefndar samþykktar telur bæjarráð að 27 einstaklingar séu í bið eftir einbýli sem eru algerlega óásættanlegar aðstæður.
Fundagerð samþykkt.
3.
Gjafa- og minningarsjóður Skjólgarðs - 72
Málsnúmer 1408009F
Bæjarráð þakkar fjárframlagi Hirðingjann til sjóðsins og samfélagsins með endurnýtingu hluta.
4.
Viðauki III við fjárhagsáætlun 2014
Málsnúmer 201408051
Ásta Halldóra Guðmundsdóttir mætti á fundinn og fór yfir þær breytingar sem gerðar hafa verið frá samþykkt viðauka II 12. maí 2014. Aukning er í rekstri um 11,8 milljónir og helgast það að mestu leyti af ný samþykktum kjarasamningum þessari aukningu er mætt með lækkun á handbæru fé í árslok.
Bæjarráð samþykkir viðauka III við fjárhagsáætlun ársins 2014 og vísar honum til bæjarstjórnar.
5.
Staða Sveitarsjóð 31.7.2014
Málsnúmer 201408073
Ásta Halldóra Guðmundsdóttir mætti á fundinn og fór yfir stöðu sveitarstjóðs og kom fram að bæði útsvarstekjur og tekjur hafnarsjóðs hafa dregist saman vegna aflabrests. Rekstur málaflokka fer lítilega fram úr áætlun og er niðurstaða rekstraryfirlitsins neikvæð um 20 milljónir fyrstu sjö mánuði ársins.
6.
Fundargerð stjórnar Nýheima nr. 34
Málsnúmer 201408067
Bæjarráð lýsir yfir áhyggjum sínum með að samstarf kennara og skólastjórnenda sé enn á austurlandi sem takmarkar möguleika þessa hóps til þátttöku starfssemi SASS. Í fundargerðinni kemur fram að rúmlega 12 milljónir eru í potti sem á að fara að mestu leiti í menntunarmál.
7.
Fyrirspurnir - bæjarráð
Málsnúmer 201009100