Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

686. fundur
8. september 2014 kl. 16:00 - 00:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Þórhildur Ásta Magnúsdóttir formaður
Lovísa Rósa Bjarnadóttir varaformaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður
Bryndís Bjarnarson upplýsinga og gæðastjóri
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson
Dagskrá
1.
Umhverfis- og skipulagsnefnd - 67
Málsnúmer 1406014F
Gunnlaugur Rúnar Sigurðsson skipulags-og byggingafulltrúi mætti á fundinn undir þessum lið.
Bæjarráð tekur undir bókun umhverfis-og skipulagsnefndar varðandi 12. lið í fundargerðinni og harmar lokun bensínafgreiðslustöðvar við Hestgerði. Þórhildur spurði um fund sem átti að halda með ábúendum á Hofi vegna deiliskipulags þar. Rúnar greindi frá að fundinum hafi verið frestað til 15. september nk..
Fundargerð staðfest.
2.
Vinnustaðagreining 2014
Málsnúmer 201409028
Jón Kristján Rögnvaldsson félagsmálafulltrúi mætti á fundinn undir þessum lið.
Greindi frá starfsmannakönnun sem var lögð fyrir starfsmenn sveitarfélagsins. Kom fram að almennt er starfsfólk sveitarfélagsins ánægt í starfi. Niðurstöðurnar verða nýttar í endurskoðun á starfsmannastefnu sveitarfélagsins sem er í höndum forstöðumanna.
3.
Erindi vegna grindverks við Hlíðartún 23.
Málsnúmer 201409018
Bæjarráð hafnar erindinu á grundvelli 1.gr. samþykktar um þátttöku sveitarfélagsins í kostnaði við uppsetningu girðinga á móti lóðarhöfum í þéttbýli. Sem hljóðar svo:
Almenna reglan er sú, að bæjarsjóður tekur ekki þátt í gerð girðinga meðfram götum og göngustígum sem ákveðnir eru í skipulagi og ákvörðun liggur fyrir þegar lóðaúthlutun fór eða fer fram. Þetta á einnig við um göngustíga sem komnir voru áður en almennar reglur um deiliskipulag tóku gildi
4.
Stofnun lóðar, Skarðshólar
Málsnúmer 201408040
Umsókn um stofnun lóðar sem áður var í landi Hóla lögð fram. Eigendur jarðanna Hóla, Sauðaness og Hjarðaness hafa samþykkt landamerki fyrir nýja lóð sem á að nefna Skarðshólar.
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við stofnun viðkomandi lóðar og vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
5.
Ósk um beitiland
Málsnúmer 201408020
Grendarkynning hefur farið fram, ein athugasemd barst og er óskað eftir því að ekki verði hleypt hrossum inn á viðkomandi svæði.
Bæjarráð synjar erindinu.
6.
Breyting á rekstrarleyfi fyrir Jöklaveröld ehf
Málsnúmer 201408015
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við breytingu á rekstrarleyfinu.
7.
Umsókn um breytingu á rekstrarleyfi f. Ferðaþjónustuna Gerði ll.
Málsnúmer 201408008
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við breytingu á rekstrarleyfinu.
8.
Fundargerð HAUST nr.118
Málsnúmer 201409027
Lögð fram til kynningar.
9.
Ályktun frá Samtökum ungra bænda
Málsnúmer 201409022
Lögð fram til kynningar.
10.
Fyrirspurnir - bæjarráð
Málsnúmer 201009100
Engar fyrirspurnir hafa borist.