Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

687. fundur
15. september 2014 kl. 16:00 - 00:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Þórhildur Ásta Magnúsdóttir formaður
Lovísa Rósa Bjarnadóttir varaformaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður
Björn Ingi Jónsson bæjarstjóri
Bryndís Bjarnarson upplýsinga og gæðastjóri
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson
Dagskrá
1.
Umhverfis- og skipulagsnefnd - 68
Málsnúmer 1409004F
Umhverfisviðurkenning sveitarfélagsins verða veitt 16. september í Listasal Svavars Guðnasonar kl. 16:00 viðburðurinn er öllum opin.
Fundargerð samþykkt.
2.
Félagsmálanefnd Hornafjarðar - 255
Málsnúmer 1408005F
Jón Kristján Rögnvaldsson félagsmálafulltrúi mætti á fundinn undir þessum lið og fór yfir undanþágu vegna íbúafjölda þjónustusvæðis vegna þjónustu við fatlað fólk. Þar kom fram að félagsþjónusta sveitarfélagsins hefur staðið sig vel frá 1997 þegar hún tók yfir málefni fatlaðra. Félagsþjónustan hefur tekist á við margar áskoranir og fengið þunga einstaklinga í þjónustu sína í gegnum árin en ávallt leyst það vel af hendi. Þjónustan er notendamiðuð og persónuleg.
Bæjarráð leggur áherslu á að sveitarfélagið verði áfram sér þjónustusvæði vegna þjónustu við fatlað fólk.
Fundargerð samþykkt.
3.
Fjárhagsáætlun 2015
Málsnúmer 201403050
Ásta H. Guðmundsdóttir fjármálastjóri sat fundinn undir þessum lið og gerði grein fyrir fyrstu drögum að fjárhagsáætlun 2015.
4.
Ósk um umsögn vegna nýrrar reglugerðar um starfsemi slökkviliða
Málsnúmer 201409038
Lagt fram til kynningar, samkvæmt skoðun hefur reglugerðin óveruleg áhrif á rekstur Slökkviliðs Hornafjarðar.
Bæjarráð óskar eftir upplýsingum um fjölda einstaklinga í Slökkviliði Hornafjarðar, menntunarstigi þeirra og símenntunaráætlun.
5.
Áskorun til landeigenda um uppbyggingu við Jökulsárlón
Málsnúmer 201408001
Lagt fram til kynningar svör frá Sameigandafélagi Fells, bæjarráð bíður eftir viðbrögðum annarra landeigenda við áskoruninni.
6.
Auglýsing umsóknar um byggðakvóta 2014/2015
Málsnúmer 201409034
Bæjarstjóra falið að senda inn umsókn.
7.
Ársþing Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga- Kjörbréf
Málsnúmer 201409037
Starfsmenn hafa nú þegar sent kjörbréf til SASS.
8.
Fyrirspurnir - bæjarráð
Málsnúmer 201009100
Engar fyrirspurnir hafa borist.