Bæjarráð Hornafjarðar
688. fundur
22. september 2014
kl.
16:00
-
00:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Þórhildur Ásta Magnúsdóttir
formaður
Lovísa Rósa Bjarnadóttir
varaformaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
aðalmaður
Björn Ingi Jónsson
bæjarstjóri
Bryndís Bjarnarson
upplýsinga og gæðastjóri
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson
Dagskrá
1.
Hafnarstjórn Hornafjarðar - 167
Fundargerð staðfest.
2.
Skóla,íþrótta og tómstundanefnd - 50
Ragnhildur Jónsdóttir fræðslustjóri mætti á fundinn undir þessum lið og fór yfir stöðu heilsuræktar í Hornafirði, kom fram að hún er að vinna að könnun um hvernig sveitarfélög að sambærilegri stærð komi að rekstri heilsuræktar.
Björn Ingi spurði um innra mat á Grunnskólum Hornafjarðar, Ragnhildur fór yfir vinnufyrirkomulagið við innra mat.
Ásgerður spurði um hvernig gangi að manna stöður í leikskólum, kom fram að gengið hefur vel að manna í allar stöður.
Björn Ingi spurði um biðlista á leikskólum Ragnhildur greindi frá að engir biðlistar eru eftir leikskólaplássi í sveitarfélaginu.

3.
Almannavarnanefnd - 49
Björn Ingi gerði grein fyrir fundargerðinni, sagði almannavarnarnefnd benda á nauðsyn þess að fá eina rafstöð í sveitarfélagið til að tryggja neysluvatn ef rafmagnið fer. Bæjarráð samþykkir að fela starfsmönnum að kanna með kaup á rafstöð fyrir vatnsveituna.
Fundargerð staðfest.
Fundargerð staðfest.
4.
Skýrsla Vinnuskóla 2014
Skýrsla Vinnuskóla fyrír árið 2014 lögð fram, í skýrslunni kemur fram að nemendum vinnuskólans hafi fækkað og erfiðara er að fá starfsmenn til starfa við rekstur Vinnuskólans.
Bæjarráð þakkar fyrir vel unna skýrslu sem mun nýtast við framtíðarstörf Vinnuskólans.
Bæjarráð þakkar fyrir vel unna skýrslu sem mun nýtast við framtíðarstörf Vinnuskólans.
5.
Staða sveitarsjóðs 2014
Ásta H. Guðmundsdóttir fjármálastjóri sat fundinn undir þessum lið, Ásta gerði grein fyrir stöðu sveitarsjóðs. Staðan er samkvæmt fjárhagsáætlun 2014.
6.
Ósk um yfirdráttarheimild
Ásta H. Guðmundsdóttir fjármálastjóri sat fundinn undir þessum lið.
Bæjarstjóri óskar eftir samþykki bæjarráðs til að óska eftir yfirdráttarheimild að upphæð kr. 20.000.000.- til 1 árs fyrir sveitarfélagið vegna skammtímasveiflna í sjóðsflæði.
Bæjarráð veitir bæjarstjóra heimild til að óska eftir yfirdráttaheimild í viðskiptabanka sveitarfélagsins.

7.
Fjárhagsáætlun 2015
Ásta H. Guðmundsdóttir fjármálastjóri, Tómas Ellert Tómasson framkvæmda-og umhverfistjóri og Björn Imsland umsjónamaður fasteigna sátu fundinn undir þessum lið. Björn fór yfir viðhaldsþörf á eignum sveitarfélagsins, Tómas Ellert gerði grein fyrir minnisblaði vegna fráveitumála á Höfn og í Nesjum.
Bæjarráð felur starfsmönnum að undibúa íbúafund um fráveitumál og næstu skref í þeim málum.
Bæjarráð felur starfsmönnum að undibúa íbúafund um fráveitumál og næstu skref í þeim málum.
8.
Fyrirspurn Samkeppniseftirlitsins vegna beiðnar Ice Lagoon ehf. um inngrip eftirlitsins
Erindi barst frá Samkeppniseftirlitinu dags. 10. sept. þar sem kemur fram að Ice Lagoon ehf. óskar eftir inngripi Samkeppniseftirlitsins á grundvelli b-liðar 1. og 2. magr. 16. gr. samkeppnislaga nr. 44/2005, vegna meitra samkeppnisbrota Sveitarfélagsins Hornafjarðar. Kvartað er yfir synjun sveitarfélagsins um leyfi fyrir rekstri Ice Lagoon og áætlun um að stöðva rekstur félagsins.
Bæjarstjóri gerði grein fyrir vinnu að svari til Samkeppnisstofnunar.
Bæjarstjóri gerði grein fyrir vinnu að svari til Samkeppnisstofnunar.
9.
Landskipti úr jörð Skaftafells 2
Erindi lagt fram þar sem sótt er um landskipti úr jörð Skaftafells 2.
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við landskiptin.
Vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við landskiptin.
Vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.
10.
Breytingar á starfsemi N1 Hestgerði
Bæjarráð harmar að N1 sé ekki tilbúin til að nýta þær lausnir sem mögulegar eru til að uppfylla skilyrði til að hægt sé að halda áfram rekstri á eldsneytisdælum við Hestgerði.
11.
Fundur með fjárlaganefnd 2014
Bæjarstjórn sveitarfélagsins fundar með fjárlaganefnd ríkisins þann 8. október, fundurinn fer fram í fjarfundi frá Höfn.
12.
Eftirlit á urðunarstað Sorpstöðvar Hornafjarðar
Erindi frá Umhverfisstofnun lagt fram, þar kemur fram að reglubundið eftirlit á urðunarstað Sorpstöðvar Hornafjarðar hefur farið fram af háflu stofnunarinnar. Bent er á þrjú atriði sem sveitarfélagið þarf að lagfæra, óskað er eftir áætlun frá rekstraraðila um úrbætur.
Starfsmönnum falið að vinna áætlun og skila til stofnunarinnar.
Starfsmönnum falið að vinna áætlun og skila til stofnunarinnar.
13.
Kynning á lausn til að auka þjónustu vegna fjölgunar ferðamanna
Lagt fram til kynningar.
14.
Tilmæli Samkeppniseftrilitsins vegna samkeppnishamlandi aðgerða Hafnafjarðarbæjar
Lagt fram til kynningar.
15.
Fundargerð SASS 483
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
16.
Fundargerð Nýheima nr. 35
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
17.
Fyrirspurnir - bæjarráð