Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

689. fundur
29. september 2014 kl. 16:00 - 00:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Þórhildur Ásta Magnúsdóttir formaður
Lovísa Rósa Bjarnadóttir varaformaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður
Björn Ingi Jónsson bæjarstjóri
Bryndís Bjarnarson upplýsinga og gæðastjóri
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson
Dagskrá
1.
Atvinnu- og menningarmálanefnd - 55
Málsnúmer 1409008F
Vala Garðarsdóttir forstöðumaður Hornafjarðarsafna sat fundinn undir þessum lið.
Umræður um framtíðarsýn um rekstur og starfsemi Ríki Vatnajökuls, kom fram að vinnuhópur innan Ríki Vatnajökuls er að störfum um stefnu í ferðamálum.
Ásgerður spurði um úttekt sem átti að fara í vegna framlaga sem sveitarfélagið leggur til Ríki Vatnajökuls. Björn Ingi upplýsti að unnið er að úttektinni og hún verði væntanlega lögð fyrir næsta fund.
Umræður um framtíð Miklagarðs, Björn Ingi greindi frá því að gert er ráð fyrir framlagi í uppbyggingu Miklagarðs í fjárhagsáætlun 2015.
Ásgerður spurði hvort Hornafjarðarsöfn hafi áætlun um að taka þátt í 100 ára kosningarafmæli íslenskra kvenna, Vala sagði svo verða í samstarfi við kvenfélögin og ríkið.
Í fundargerð atvinnu-og menningarmálanefdar kom fram að skipað eigi fjallskilanefnd bent var á að nefndin gegni þessu hlutverki og bent á að hægt sé að skipa í starfshóp um fjallskil sveitarfélagsins.
Urmæður um ritnefnd Skaftfellings, Völu falið að velja í ritnefnd og leggja fyrir bæjarráð.
Fundargerð samþykkt.
2.
Stjórn Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands - 48
Málsnúmer 1409007F
Ásgerður vísaði til fundar með þingmönnum kjördæmisins fyrr í dag með bæjarstjórn, ítrekaði að allar forsendur verði að vera skýrar fyrir umsókn um þátttöku ríkisins í nýbyggingu hjúkrunarheimilis. Bæjarráð óskar eftir að stjórn HSSA fari yfir þau drög sem unnin voru á árinu 2012 að nýju hjúkrunarheimili, í ljósi endurskoðaðra viðmiðunarreglna um skipulag hjúkrunarheimila.
Bæjarráð leggur á það mikla áherslu að deiliskipulag HSSA verði klárað sem fyrst.
Bæjarráð felur starfsmönnum að krefjast leiðréttingar vegna nýsamþykktra kjarasamninga.
Fundargerð samþykkt.
3.
Fjárhagsáætlun 2015
Málsnúmer 201403050
Björn Ingi Jónsson bæjarstjóri fór yfir tímaáætlun fjárhagsáætlunargerðar 2015 og líkan fjárhagsáætlunar.
Bæjarráð vísar römmum fjárhagsáætlunar til viðeigandi stofnanna og gjaldskrám sveitarfélagsins til skoðunar í viðeigandi nefndum.
4.
Framkvædir við Náttúrustíg árið 2015
Málsnúmer 201409081
Erindi frá Náttúrustofu Suðausturlands vegna styrkumsóknar til Vina Vatnajökuls og óskað er eftir samþykki sveitarfélagsins fyrir áframhaldandi uppbyggingu Náttúrustígsins og þátttöku sveitarfélagsins í formi vinnuframlags.
Bæjarráð samþykkir framlagðar hugmyndir en bendir á að endanlegt framkvæmdaleyfi liggur hjá umhverfis-og skipulagsnefnd.
5.
Umsögn um tillögu til þingsályktunar um eflingu heilbrigðisþjónustu, menntakerfis og velferðarþjónustu, 14. mál.
Málsnúmer 201409084
Erindið lagt fram og vísað til velferðarteymis til yfirlestrar og umsagnar.
6.
Staðfesting Skipulagsstofnunar á aðalskipulagi sveitarfélagsins 2010-2030
Málsnúmer 200709059
Skipulagstofnun hefur staðfest nýtt aðalskipulag fyrir sveitarfélagið 2010-2030.
Bæjarráð fagnar því að nýtt aðalskipulag hefur tekið gildi.
7.
Aðalfundarboð HAUST 2014
Málsnúmer 201409073
Aðalfundur HAUST verður haldinn 1. október 2014 á Reyðarfirði.
Björn Ingi Jónsson bæjarstjóri mun vera fulltrúi sveitarfélagsins á aðalfundinum.
8.
Fundargerð Sambands íslenskra sveitarfélaga 818
Málsnúmer 201409055
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
9.
Fundargerð Stjórnar Nýheima nr.36
Málsnúmer 201409079
Bæjarráð óskar eftir að fá kynningu á verkefni Landsbyggðin lifir frá Nýheimum Þekkingasetri eftir heimsókn þeirra til Söderhamn.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
10.
Fyrirspurnir - bæjarráð
Málsnúmer 201009100
Engar fyrirspurnir hafa borist.