Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

690. fundur
6. október 2014 kl. 16:00 - 00:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Þórhildur Ásta Magnúsdóttir formaður
Lovísa Rósa Bjarnadóttir varaformaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður
Björn Ingi Jónsson bæjarstjóri
Bryndís Bjarnarson
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Björn Ingi Jónsson bæjarstjóri
Dagskrá
1.
Umhverfis- og skipulagsnefnd - 69
Málsnúmer 1409006F
Gunnlaugur Rúnar Sigurðsson umhverfis-og skipulagsfulltrúi og Tómas Ellert Tómasson framkvæmda-og umhverfisstjóri sátu fundinn undir þessum lið.
Lovísa spurði um grenndarkynningu vegna heimagistingar, Rúnar upplýsti að það hafi vantað eina athugasemd og málið verði tekið upp aftur.
Þórhildur spurði um umferðaröryggisáæltun, kom fram að nefndin er að fara yfir þau gögn sem til eru í framhaldinu verða metin næstu skref.
Ásgerður spurði um deiliskipulag Drápskletta, hvort eigi að gera nýtt deiliskipulag eða byggja á því sem er til. Björn Ingi sagði að skipulagsráðgjafar verði að meta framhaldið.
Fundargerð samþykkt.
2.
Fráveita á Höfn og inn í Nesjum
Málsnúmer 201410002
Lovísa Rósa Bjarnadóttir vék af fundi og Páll Róbert Matthíasson kom inn á fundinn.
Tómas Ellert Tómasson sat fundinn undir þessum lið, óskaði eftir heimild til að setja af stað framkvæmdir við endurnýjun fráveitulagna í Hæðargarði.
Bæjarráð samþykkir að fara í verðkönnun vegna fráveituframkvæmda.
3.
Gjaldskrá fyrir hreinsun rotþróa
Málsnúmer 201410003
Lovísa Rósa kom inn á fundin og Páll Róbert vék af fundi.
Tómas Ellert Tómasson sat fundinn undir þessum lið, gerð var grein fyrir að gjaldskrá fyrir hreinsun rotþróa er orðin úrelt og innheimtu samkvæmt henni ábótavant.
Bæjarráð felur starfsmönnum að vinna áfram að málinu.
4.
Ósk um námsleyfi
Málsnúmer 201409082
Ragnhildur Jónsdóttir fræðslustjóri mætti á fundinn undir þessum lið.
Erindi frá Margréti Ingólfsdóttur leikskólastjóra lagt fram.
Margrét óskar eftir námsleyfi á launum í eitt ár eða leikskólaárið 2015-2016.
Bæjarráð hafnar erindinu þar sem að með slíku leyfi skapist fordæmi sem ekki verður horft framhjá og vísar til eldri afgreiðslu sambærilegrar umsóknar.

Einnig var horft til kjarasamnings Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands vegna Félags leikskólakennara. Í samningnum segir í grein 10.5. 1: "Heimilt er að veita leikskólakennara launað námsleyfi til þess að stunda viðurkennt framhaldsnám eða sækja endurmenntunarnámskeið í sérgrein sinni." Í samningnum er kveðið á um heimild en ekki skyldu sveitarfélags til að verða við slíkum óskum.
5.
Samþykkt sveitarfélagsins Hornafjarðar 2014
Málsnúmer 201410006
Björn Ingi fór yfir fyrirhugaðar breytingar á samþykktum sveitarfélagsins. Meðal annars er unnið að breytingum á nefndarskipan sveitarfélagsins Atvinnu- og menningarmálanefnd verð tvær nefndir og einnig Umhverfis og skipulagsnefnd.
Samþykktum vísað til áframhaldandi vinnu.
6.
Nýtt rekstrarleyfi fyrir Martölvuna ehf
Málsnúmer 201408007
Erindi lagt fram frá Sýslumanni þar sem óskað er eftir umsögn bæjarráðs á rekstrarleyfi í flokki II íbúðir á Hafnarbraut 24.
Bæjarráð bendir á að rekstur í flokki II samræmist ekki aðalskipulagi.
7.
Styrkur vegna gönguleið milli Skálafells og göngub, yfir Hólmsá
Málsnúmer 201406006
Björn Ingi greindi frá stöðu mála.
Bæjarráð heimilar bæjarstjóra að ráða tímabundið verkefnastjóra.
8.
Styrkur v/gönguleið milli Fláajökuls og Haukafells
Málsnúmer 201406007
Björn Ingi greindi frá stöðu mála.
Bæjarráð heimilar bæjarstjóra að ráða tímabundið verkefnastjóra.
9.
Styrkir bæjarráðs
Málsnúmer 201410009
Bæjarráð felur starfsmönnum að auglýsa eftir styrkumsóknum.
10.
Styrkir fastanefnda
Málsnúmer 201410010
Bæjarráð felur starfsmönnum að auglýsa eftir styrkumsóknum.
11.
Aðalfundur HAUST 2014
Málsnúmer 201409073
Lagt fram til kynningar.
12.
Fyrirspurnir - bæjarráð
Málsnúmer 201009100
Engar borist.