Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

691. fundur
13. október 2014 kl. 16:00 - 00:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Þórhildur Ásta Magnúsdóttir formaður
Lovísa Rósa Bjarnadóttir varaformaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður
Björn Ingi Jónsson bæjarstjóri
Bryndís Bjarnarson upplýsinga og gæðastjóri
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson
Dagskrá
1.
Hafnarstjórn Hornafjarðar - 168
Málsnúmer 1409014F
Fundargerð samþykkt.
2.
Heimsókn bæjarráðs í Álaleiru
Málsnúmer 201410016
Vala Garðarsdóttir forstöðumaður Hornafjarðarsafna kynnti fyrir bæjarráði starfsemi og húsakynni Hornafjarðarsafna.
3.
Þjónustusvæði málefna fatlaðs fólks
Málsnúmer 201410019
Jón Kristján Rögnvaldsson mætti á fundinn undir þessum lið og greindi frá fundi með verkefnastjórn. Bæjarráð felur Jón Kristjáni að gera uppkast af erindi vegna áframhaldandi undanþágu sveitarfélagsins frá íbúafjölda þjónustusvæðis.
4.
Fyrirspurn vegna stöðuleyfa við Jökulsárlón
Málsnúmer 201408024
Lagt fram svar frá LEX lögmannsstofu fyrir hönd Jökulsárlóns ehf. vegna fyrirspurnar og athugasemda um stöðuleyfi fyrir lausafjármuni við Jökulsárlón.
Bæjarstjóra falið að svara erindinu.
5.
Umsókn um stöðuleyfi Jökulsárlón ehf
Málsnúmer 201410020
Erindi frá LEX lögmannstofu fyrir hönd Jökulsárlóns ehf. sótt er um stöðuleyfi fyrir lausamuni við Jökulsárlón.
Vísað til umhverfis-og skipulagsnefndar.
6.
Samþykkt um búfjárhald í Sveitarfélaginu Hornafirði
Málsnúmer 201410017
Björn Ingi fór yfir samþykkt um búfjárhald í sveitarfélaginu og hvaða breytinga er þörf á að gera eftir breytingu á lögum um velferð dýra nr. 55/2013.
Vísað til atvinnu-og menningarmálanefdar til áframhaldandi vinnu.
7.
Ályktun aðalfundar Skógræktarfélags Íslands
Málsnúmer 201410023
Erindi lagt fram frá Skógræktarfélagi Íslands þar sem aðalfundur félagsins ályktaði, Skógræktarfélagið leggur til að unnið verði að samstilltu átaki opinberra aðila og skógræktarfélaga í að nýta lúpínubreiður til skógræktar.
Bæjarráð vísar erindinu til umhverfis-og skipulagsnefdar.
Þórhildur lagði fram eftifarandi bókun:
Skógarkerfill hefur ekkert landgræðslugildi og hefur verið meira til ama en gagns. Samkvæmt heimildum hefur hann ekki náð útbreiðslu í Austur-Skaftafellssýslu er því tilvalið að setja einhverskonar reglugerð eða samþykkt um bann/höft við gróðursetningu skógarkerfils og aðgerðaráætlun um eyðingu hans ef upp kemur.
Bæjarráð tekur undir bókunina og leggur til að umhverfis-og skipulagsnefd taki hana til skoðunar.
8.
Fundargerð SASS 485
Málsnúmer 201410014
Bæjarráð harmar að enginn styrkur hafi borist á austurhluta Suðurlands vegna styrkúthlutana úr vaxtarsamningi Suðurlands og felur starfsmanni að óska eftir gögnum um umsækjendur um styrki.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
9.
Fundargerð Sambands íslenskra sveitarfélaga nr: 819
Málsnúmer 201410015
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
10.
Fyrirspurnir - bæjarráð
Málsnúmer 201009100
Engar fyrirspurnir hafa borist.