Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

692. fundur
20. október 2014 kl. 10:00 - 00:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Þórhildur Ásta Magnúsdóttir formaður
Páll Róbert Matthíasson 1. varamaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður
Björn Ingi Jónsson bæjarstjóri
Bryndís Bjarnarson upplýsinga og gæðastjóri
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson
Dagskrá
1.
Kynning fjárhagsáætlunar stofnanna sveitarfélagsins fyrir bæjarráði
Málsnúmer 201410036
Forstöðumenn mættu á fundinn undir þessum lið og gerðu grein fyrir fjárhagsáæltun þeirra stofnanna sem þeir stýra.
Ásta H. Guðmundsdóttir fjármálastjóri
Vala Garðarsdóttir, forstöðumaður Hornafjarðarsafna
Ragnhildur Jónsdóttir, fræðslustjóri
Pálína Þorsteinsdóttir, skólastóri Grunnskólans Hofgarði
Eygló Illugadóttir, skólastjóri Grunnskóla Hornafjarðar
Hulda Laxdal, skólastjóri Grunnskóla Hornafjarðar
Jóhann Morávek, skólastjóri Tónskóla Austurskaftafellssýslu
Snæfríður H. Svavarsdóttir, leikskólastjóri Leikskólanum Krakkakoti
Gunnar Ingi Valgeirsson, forstöðumaður íþróttamannvirkja
Vilhjálmur Magnússon, forstöðumaður Vöruhúss
Matthildur Ásmundadóttir framkvæmdastjóri Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands
Jón Kristján Rögnvaldsson félagsmálastjóri
Birgir Árnason forstöðumaður Áhaldahúss
Tómas Ellert Tómasson umhverfis-og framkvæmdastjóri
Gunnlaugur Rúnar Sigurðsson skipulags-og byggingafulltrúi
2.
Félagsmálanefnd Hornafjarðar - 256
Málsnúmer 1410003F
Jón Kristján Rögnvaldsson sat fundinn undir þessum lið.
3.
Skóla,íþrótta og tómstundanefnd - 51
Málsnúmer 1409012F
Ragnhildur Jónsdóttir sat fundinn undir þessum lið. Umræður um reglur um leikskólabörn í skólabílum, bæjarráð vísar reglunum til bæjarstórnar og óskar eftir að nefndin og starfsmenn móti umsóknareyðublað fyrir þessa þjónustu.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að kostnaðarmeta hugmyndir nefndarinnar varðandi stuðning við heilsurækt á Hornafirði.
Ósk um ráðningu verkefnistjóra skólaskrifstofu, bæjarráð samþykkir að ráðið verði tímabundið í stöðu verkefnastjóra.
Næstu verkefni skóla-íþrótta-og tómstundanefndar Þórhildur lagði til að Ottó Marvin Gunnarsson verði einnig fulltrúi í starfshóp um íþróttamál og útfærslu á tómstundakorti.
Bæjarráð Hornafjarðar tekur undir bókun skóla-, íþrótta- og tómstundarnefndar og hvetur samningarnefndir Félags tónlistarskólakennara og Sambands íslenskra sveitarfélaga til að vinna að heilum hug að sáttum og semja á grunni sem styður bæði við menntun og það mikilvæga starf sem tónlistarskólakennarar sinna og vonar að ekki komi til verkfalls.
4.
Fundargerð Nýheima nr:37
Málsnúmer 201410035
Davíð Arnar Stefánsson verkefnastjóri Þekkingaseturs Nýheima kom á fundinn undir þessum lið.
Davíð greindi frá verkefninu Opposing Force, Mótstöðuafl, verkefnið byggir á rannsókn Lottu Svenson Phd. um ungt fólk og atgervisflótta í Söderhamn. Nýheimar taka þátt í ásamt fimm örðum þátttakendum, verkefnið er styrkt af Erasmus +.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
5.
Upplýsingar um framkvæmd verðhækkana
Málsnúmer 201410042
Vísað til starfsmanna að svara erindinu.
6.
Eftirlit á urðunarstað Sorpstöðvar Hornafjarðar
Málsnúmer 201409048
Lagt fram til kynningar.
7.
Framlenging á samstarfssamningi við Markaðsstofu Suðurlands
Málsnúmer 201410041
Bæjarráð felur bæjarstóra að ganga frá framlengingu samningsins.
8.
Auglýsing umsóknar um byggðakvóta 2014/2015
Málsnúmer 201409034
Bæjarráð Hornafjarðar undrast þá miklu minnkun á úthlutun byggðakvóta sem verður á milli ára en á kvótaárinu 2013/2014 var úthlutun sveitarfélagsins 85 þorskígildi en nú 15 þorskígildis tonn og felur bæjarstóra að afla skýringa.
9.
Árshátíð starfsmanna sveitarfélagsins
Málsnúmer 201410030
Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og samþykkir að veita 2.5 milljónir í sameiginlega árshátíð 2015 og ekki verði innheimt leiga fyrir húsnæði í eigu sveitarfélagsins.
10.
Umsögn um frumvarp til laga um framhaldskóla mál nr. 214
Málsnúmer 201410047
Fræðslustjóra falið að fara yfir og senda inn umsögn ef þurfa þykir.
11.
Umsögn um frumvarp til laga um vegalög mál nr. 157
Málsnúmer 201410046
Starfsmönnum falið að fara yfir og senda inn umsögn, í frumvarpinu kemur ma. fram að flytja á vegi frá ríki til sveitarfélaga en tryggja þarf að fjármagn fylgi með yfirfærslunni.
12.
Fyrirspurnir - bæjarráð
Málsnúmer 201009100
Engar fyrirspurnir hafa borist.