Bæjarráð Hornafjarðar
694. fundur
27. október 2014
kl.
16:00
-
00:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Þórhildur Ásta Magnúsdóttir
formaður
Lovísa Rósa Bjarnadóttir
varaformaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
aðalmaður
Björn Ingi Jónsson
bæjarstjóri
Bryndís Bjarnarson
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson
Dagskrá
1.
Atvinnu- og menningarmálanefnd - 56
Vala Garðarsdóttir forstöðumaður Hornafjarðarsafna sat fundinn undir þessum lið.
2.
Almannavarnanefnd - 50
Björn Ingi Jónsson bæjarstjóri gerði grein fyrir að síritamengunarmælir verður settur upp á Höfn næstu daga.
Umræður um sms sendingar frá almannavörnum þær hafi ekki borist öllum, almannavarnir eru að leita skýringa á málinu.
Umræður um sms sendingar frá almannavörnum þær hafi ekki borist öllum, almannavarnir eru að leita skýringa á málinu.
3.
Þjónustusvæði málefna fatlaðs fólks
Jón Kristján Rögnvaldsson félagsmálastjóri sat fundinn undir þessum lið.
4.
Kynning fjárhagsáætlunar stofnanna sveitarfélagsins fyrir bæjarráði
Ásta H. Guðmundsdóttir fjármálastjóri sat fundinn undir þessum lið.
Maren Sveinbjörnsdóttir forstöðumaður Heimaþjónustudeildar gerði grein fyrir ramma og stofnbúnaðaróskum fyrir heimaþjónustu fatlaðra.
Maren Sveinbjörnsdóttir forstöðumaður Heimaþjónustudeildar gerði grein fyrir ramma og stofnbúnaðaróskum fyrir heimaþjónustu fatlaðra.
5.
Fjárhagsáætlun 2015
Ásta H. Guðmundsdóttir fjármálastjóri sat fundinn undir þessum lið.
Bæjarráð vísar fjárhagsáætlun 2015 til fyrri umræðu í bæjarstjórn og einnig þriggja ára áætlun 2016 -2018 til fyrri umræðu.
Bæjarráð vísar fjárhagsáætlun 2015 til fyrri umræðu í bæjarstjórn og einnig þriggja ára áætlun 2016 -2018 til fyrri umræðu.
6.
Samþykkt um stjórn og fundarsköp sveitarfélagsins Hornafjarðar 2014
Starfsmenn hafa endurskoðað samþykktir sveitarfélagsins eftir umræður í bæjarráði.
Bæjarráð vísar samþykktum um stjórn og fundarsköp Sveitarfélagsins Hornafjarðar til fyrri umræðu í bæjarstjórn með þeim breytingum sem voru ræddar á fundinum.
Bæjarráð vísar samþykktum um stjórn og fundarsköp Sveitarfélagsins Hornafjarðar til fyrri umræðu í bæjarstjórn með þeim breytingum sem voru ræddar á fundinum.
7.
Ríki Vatnajökuls viðræður og hugmyndir
Björn Ingi gerði grein fyrir stöðu mála.
8.
Auglýsing umsóknar um byggðakvóta 2014/2015
Erindi frá Atvinnuvega-og nýsköpunarráðuneytinu, kemur fram að ráðuneytið hefur endurreiknað byggðarkvóta til allra sveitarfélaga á grundvelli breyttra gagna. Hornafjörður fær 87 þorskígildistonn.
Umræður um reglur um byggðarkvóta og úthlutun kvótans.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að óska eftir breytingu á 6. gr. reglugerðar nr. 652/2014.
Bæjarráð leggur til að: Á tímabilinu er fiskiskipum skylt að landa afla til vinnslu í heimabyggð sem í þoskígildum talið nemur jöfnu magni þess aflamarks sem þau fá úthlutað samkvæmt reglugerð þessari, auk jafn miklu magni á fiskmarkaði eða til vinnslu á Hornafirði.

9.
Viðbragð Minjastofnunar við jarðraski á minjasvæði í Álaugarey
Bréf frá Minjastofnun lagt fyrir fundinn.
Bæjarráð lítur á atvik sem þetta með alvarlegum augum og muni gæta þess sem best að varðveita menningararf Sveitarfélagsins Hornafjarðar með von um að aðrir framkvæmdaraðilar geri slíkt hið sama.
Bæjarráð lítur á atvik sem þetta með alvarlegum augum og muni gæta þess sem best að varðveita menningararf Sveitarfélagsins Hornafjarðar með von um að aðrir framkvæmdaraðilar geri slíkt hið sama.
10.
Umsögn um frumvarp til laga um verslun með áfengi og tóbak o.fl.
Erindi lagt fram frá Alþingi þar sem leitað er eftir umsögn sveitarfélagsins við frumvarpi til laga um verslun með áfengi og tóbak.
Vísað til velferðarteymis.
Vísað til velferðarteymis.
11.
Fyrirspurnir - bæjarráð
Engar fyrirspurnir hafa borist.