Bæjarráð Hornafjarðar
695. fundur
3. nóvember 2014
kl.
16:00
-
00:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Þórhildur Ásta Magnúsdóttir
formaður
Páll Róbert Matthíasson
1. varamaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
aðalmaður
Björn Ingi Jónsson
bæjarstjóri
Bryndís Bjarnarson
upplýsinga og gæðastjóri
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson
Dagskrá
1.
Stjórn Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands - 49
Matthildur Ásmundadóttir framkvæmdastjóri HSSA sat fundinn undir þessum lið.
Umræður um rekstur og launaútgjöld stofnunarinnnar.
Fundargerð samþykkt.
Umræður um rekstur og launaútgjöld stofnunarinnnar.
Fundargerð samþykkt.
2.
Gjafa- og minningarsjóður Skjólgarðs - 73
Matthildur Ásmundadóttir framkvæmdastjóri HSSA sat fundinn undir þessum lið.
Fundargerð samþykkt.
Fundargerð samþykkt.
3.
Stuðningur Sveitafélagsins Hornafjarðar við hagnýtar rannsóknir
Þorvarður Árnason forstöðumaður Rannsóknarseturs Háskóla Íslands kynnti samstarf og rannsóknir ferðaþjónustunnar og Rannsóknarsetursins. Hornafjörður er eitt af þrem stærstu sveitarfélögum í ferðaþjónustu og mun hún áfram vaxa.
Rannsókn sem var gerð á ferðaþjónustu í Hornafirði 2013 kom í ljós að 310 heilsársstöðugildi eru í ferðaþjónustu 40% af þeim eru heimamenn. Kynnti einnig frá fjölþjóðlegum verkefni Slow Adventure In Territories SAINT sem er unnið að gerð umsóknar NPA áætlunar ESB vegna þess verkefnisins.
Starfsmönnum falið að vinna að málinu.

4.
Slökkvilið Hornafjarðar - símenntun
Lögð fram áætlun um námskeið fyrir slökkvilið Hornafjarðar.
5.
Staða sveitarsjóðs 2014
Björn Ingi greindi frá stöðu sveitarsjóðs 31. september 2014.
6.
Fjárhagsáætlun Sveitarfélagsins Hornafjarðar 2015
Björn Ingi fór yfir drög að framkvæmdaáætlun ársins 2015.
Vísað til áframhaldandi vinnu starfsmanna.
Vísað til áframhaldandi vinnu starfsmanna.
7.
Lausaganga hesta á Mýrum
Björn Ingi greindi frá lausagöngu hesta á Mýrum og aðkomu sveitarfélagsins að þeim málum.
8.
Húsaleigusamnigur Hrollaugsstaðir
Samþykkt að framlengja húsaleigusamningi við leigendur til 1. október 2015 og gerð verði úttekt samkv. 4. gr. núgildandi samnings.
9.
Farandsýning KRFÍ á 100 ára kosningarafmæli íslenskra kvenna
Erindi frá Kvenréttindafélaginu lagt fram þar sem Kvenréttindafélagið leitar til 12. sveitarfélaga og býður þeim að taka þátt í farandsýningu sem fjallar um sögu kvenna í tilefni 100 ára kosningarafmæli íslenskra kvenna, sýningin mun koma til Hornafjarðar í ágúst 2015.
Bæjarráð þakkar fyrir boðið og samþykkir að taka við sýningunni og mun leggja fram húsnæði í forsal Listasafns Svavars Guðnasonar í Ráðhúsi Hornafjarðar og felur forstöðumanni Hornafjarðarsafna að vinna að málinu.

10.
Erindi frá Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála Mál nr.50/2014
Björn Ingi kynnti svar frá sveitarfélaginu til úrskurðar-og auðlyndanefndar.
11.
Prófanir á ómönnuðu loftfari
Björn Ingi greindi frá erindi UAS Iceland um prófanir á ómönnuðu loftfari á Hornafjarðarfluvelli.
Bæjarráð fagnar áhuga aðila á nýtingu Hornafjarðarflugvallar til rannsókna.
Bæjarráð fagnar áhuga aðila á nýtingu Hornafjarðarflugvallar til rannsókna.
12.
Fundargerð Nýheima nr. 38
Lögð fram til kynningar.
13.
Ágóðahlutagreiðsla 2014 EBÍ
Erindi frá EBÍ þar sem tilkynnt er að hlutdeild Hornafjarðar í sameignasjóði EBÍ er 1,608% og fær sveitarfélagið greiddar 804 þúsund kr..
14.
Umsókn um styrk vegna rannsóknar á yfirfærslu á málefnum aldraðra
Erindi lagt fram frá Láru Kristínu Sturludóttur þar sem hún býður sveitarfélaginu kaup á verkenfi sínu.
Vísað til afgreiðslu velferðarteymis.
Vísað til afgreiðslu velferðarteymis.
15.
Umsögn um frumvarp til laga um sérhæfða þjónustumiðstöð á sviði heilbrigðis-og félagsmála
Vísað til umsagnar velferðarteymis.
16.
Umsöng um tillögu til þingsályktunar um aðgerðaráætlunar til að efla fjarheilbrigðisþjónustu 27. mál
Vísað til umsagnar velferðarteymis.
17.
Auglýsing umsóknar um byggðakvóta 2014/2015
Erindi lagt fram frá Smábátafélaginu Hrollaug þar sem óskað er eftir að beyting verði gerð á úthlutunarreglum um byggðarkvóta til fiskiskipa. Fram kom að frestur til breytinga á úthlutunarreglum rann út 1. nóvember.
Nú þegar hefur verið óskað eftir breytingu á úthlutnarreglum fyrir Sveitarfélagið Hornafjörð þar sem fallið er frá kröfu um tonn á móti tonni til löndunar í vinnslu.
Bæjarstjóra falið að vinna áfram að málinu.

18.
Fyrirspurnir - bæjarráð
Engar fyrirspurnir hafa borist.