Bæjarráð Hornafjarðar
696. fundur
10. nóvember 2014
kl.
16:00
-
00:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Þórhildur Ásta Magnúsdóttir
formaður
Lovísa Rósa Bjarnadóttir
varaformaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
aðalmaður
Björn Ingi Jónsson
bæjarstjóri
Bryndís Bjarnarson
fostöðumaður menningarmiðstöðvar
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson
Dagskrá
1.
Umhverfis- og skipulagsnefnd - 70
Tómas Ellert Tómasson framkvæmda- og umhverfisstjóri og Gunnlaugur Rúnar Sigurðsson skipulags-og byggingafulltrúi sátu fundinn undir þessum lið.
Umræður um deiliskipulag að Hofi, bæjarráð felur starfsmönnum að gera drög að samningi við landeigendur á þeim grunni sem ræddur var þegar farið var af stað í deiliskipulagsgerðina.
Umræður um deiliskipulag að Hofi, bæjarráð felur starfsmönnum að gera drög að samningi við landeigendur á þeim grunni sem ræddur var þegar farið var af stað í deiliskipulagsgerðina.
2.
Áform um flugrekstur frá Árnanesflugvelli
Reynir Þór Guðmundsson mætti á fundinn undir þessum lið. Kynnti hugmynd Island Aviation um að setja upp flugrekstur frá Árnanesflugvelli sem yrði rekinn á ársgrundvelli. Fyrirtækið myndi til að byrja með bjóða upp á útsýnisflug á flugvél og
þyrlu.
Bæjarráð fagnar áformum Island Aviation um flugrekstur á Árnanesflugvelli.
þyrlu.
Bæjarráð fagnar áformum Island Aviation um flugrekstur á Árnanesflugvelli.
3.
Fráveita á Höfn og inn í Nesjum
Tómas Ellert Tómasson framkvæmda- og umhverfisstjóri og Gunnlaugur Rúnar Sigurðsson skipulags-og byggingafulltrúi sátu fundinn undir þessum lið.
Farið var yfir nýjustu gögn enn er beðið eftir umsögn Umhverfisstofnunar um fráveitumál.
Farið var yfir nýjustu gögn enn er beðið eftir umsögn Umhverfisstofnunar um fráveitumál.
4.
Verðkönnun vegna fráveitu Hæðargarði
Lovísa Rósa vék af fundinum og Páll Róbert Matthiasson kom inn á fundinn undir þessum lið.
Tómas Ellert Tómasson framkvæmda- og umhverfisstjóri sat fundinn undir þessum lið.
Kynnt verðkönnun vegna fráveitu í Hæðargarði.
Ólafur Halldórsson 14.304.172. kr. 43.3% yfir kostnaðaráætlun
Rósaberg 16.956.476. kr. 69.9% yfir kostnaðaráætlun
Kostnaðaráætlun hljóðaði upp á 9.978.500. kr.
Bæjaráð hafnar þeim tilboðum sem bárust og felur starfsmönnum að kanna aðrar leiðir.

5.
Ósk um leyfi breytingu á nafni, Hof 12
Samkvæmt 3. og 4. gr. laga nr. 35/1953 skal beiðni um breytingu á nafni býlis senda til Örnefnanefndar.
6.
Auglýsing umsóknar um byggðakvóta 2014/2015
Bæjarráð telur sig ekki hafa forsendur fyrir frekari breytingum á úthlutunarreglum vegna byggðarkvóta fiskveiðiárið 2014/2015.
Felur væntanlegri atvinnumálanefnd að fara yfir úthlutunarreglur hugsanlegs byggðarkvóta næsta árs og skoða hvort ástæða sé til frekari breytinga.
Felur væntanlegri atvinnumálanefnd að fara yfir úthlutunarreglur hugsanlegs byggðarkvóta næsta árs og skoða hvort ástæða sé til frekari breytinga.
7.
Starfsmannastefna og siðareglur starfsmanna 2014
Björn Ingi fór yfir endurskoðun á starfsmannastefnu og siðarreglum starfsmanna.
Vísað til áframhaldandi vinnu starfsmanna.
Vísað til áframhaldandi vinnu starfsmanna.
8.
Samþykkt um kjör fulltrúa Sveitarfélagsins Hornafjarðar
Björn Ingi kynnti tillögu um breytingu á samþykkt um kjör fulltrúa sveitarfélagsins, greindi frá að engar reglur um greiðslur ferðakostnaðar vegna fundarsetu í fastanefndum á vegum sveitarfélagsins.
Lagði til að greitt verði fyrir þá sem búa lengra en 15 km. frá Höfn, greiðslur miðast við eyðslu bifreiðar.
Einnig lagði hann til að breyta heitinu á samþykktinni verði, Samþykkt um kjör fulltrúa Sveitarfélagsins Hornafjarðar vegna funda og ráðstefna.
Bæjarráð samþykkir framlögð drög að breytingum.

9.
Loftlagsverkefni Landverndar, sveitarfélagsins og Sambandsins
Bryndís greindi frá stöðu loftlagsverkefnis sem sveitarfélagið hefur skuldbundið sig að vinna í samvinnu við Landvernd.
Drög að aðgerðaráætlun lögð fram.
Drög að aðgerðaráætlun lögð fram.
10.
Svar v. tillögu til þingsályktunar um aðgerðaráætlunar til að efla fjarheilbrigðisþjónustu 27. mál
Bæjarráð Hornafjarðar fagnar framkominni tillögu um hvatningu til ráðherra um að setja fram aðgerðaáætlun til að efla fjarheilbrigðisþjónustu á Íslandi. Bæjarráð telur að slík þjónusta geti dregið umtalsvert úr ferðakostnaði íbúa dreifbýlisins vegna læknisþjónustu sem sótt er á höfuðborgarsvæðið. Einnig myndi framþróun slíkrar þjónustu efla öryggi íbúa landsins. Loks getur fjarheilbrigðisþjónusta gert Landsspítala Háskólasjúkrahúsi það kleift að sinna hlutverki sínu gagnvart öllum landsmönnum.
11.
Stuðningur Sveitafélagsins Hornafjarðar við hagnýtar rannsóknir
Bæjarráð samþykkir að gera samning við Rannsóknarsetur Háskóla Íslands á Höfn um styrkveitingu að upphæð 2.5 millj. til þriggja ára vegna SAINT verkefnisins. Samningurinn verður árangustengdur þannig að áframhaldandi styrkveitingar á öðru og þriðja ári yrðu háðar árangri verkefnisins á fyrsta ári.
12.
Fyrirspurnir - bæjarráð
Engar fyrirspurnir hafa borist.