Bæjarráð Hornafjarðar
698. fundur
24. nóvember 2014
kl.
16:00
-
00:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Þórhildur Ásta Magnúsdóttir
formaður
Lovísa Rósa Bjarnadóttir
varaformaður
Kristján Sigurður Guðnason
1. varamaður
Björn Ingi Jónsson
bæjarstjóri
Ásta Halldóra Guðmundsdóttir (ÁHG)
fjármálastjóri
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Björn Ingi Jónsson
bæjarstjóri
Dagskrá
1.
Atvinnu- og menningarmálanefnd - 58
Vala Garðarsdóttir mætti á fundinn undir þessum lið. Þórhildur spurði um nýsköpunarverlaun hvort það væri nýtt í umræðunn Vala upplýsti að þetta hafi ekki áður verið hér innan sveitarfélagsins. Kristján ræddi Miklagarð og þá framkvæmd sem nú er í gangi, Vala upplýsti að sú framkvæmd sem í gangi þar er í gangi, eru nýjir gluggar á annari hæð og skipt um klæðningu á suðurhlið og báðum göflunum. Umræður sköpuðust um möguleika á að koma jöklasýningu í einhverri mynd inn í Gömlubúð. Vala lagði áherslu á að framtíðarsýn Miklagarðs er nokkuð skýr eins og hún er lögð fram í stefnumótunarskjali Hornafjarðarsafna. Sýningar framtíðarinnar eru ekki meitlaðar í stein og yfir árið verða til margar sýningar á hverju rými fyrir sig. Umgjörð húsins þarf að bjóða uppá þessa möguleika. Vala Garðarsdóttir upplýsti að búið er að hafa samband við Glámu Kím og taldi þá bestu aðilana til að vinna þá vinnu sem framundan er. Forkönnun og kostnaðarmat ætti að fást fyrir þær fimm milljónir sem áætlaðar eru í framkvæmdir til Miklagarðs ársins 2015 ásamt rekstraráætlun húsins. Umræða skapaðist um húsnæðismál Hornafjarðarsafna og hvaða möguleikar eru í úrbótum á þeim. Vala Garðarsdóttir upplýsti að hún hafi verið að skoða í því dæmi möguleika á kaupum á gömlu mjólkurstöðinni og losa sig við húsnæðið að Álaleiru í staðin. Þessi vinna er á byrjunarstigi og ekkert verið ákveðið í þessu en sem komið er. Nauðsynlegt er að skoða viðhaldsþörf og rekstur gömlu mjólkurstöðvarinnar í þessu samhengi. Bæjarráð leggu mikla áherslu á áframhaldandi samstarf við Matís um rekstur matarsmiðju.
Fundargerð samþykkt.
Fundargerð samþykkt.
2.
Skóla,íþrótta og tómstundanefnd - 52
Ragnhildur Jónsdóttir mætti á fundinn undir þessum lið. Þórhildur vakti máls á undanþágubeiðni um leikskólapláss. Ragnhildur upplýsti að í gangi er vinna við að skoða mögulegar útfærslu á þessu máli. Farið yfir gjaldskrár og hækkar gjaldskrá tónskólans um 10% nú á vorönn og 5% á haustönn. Ragnhildur fór yfir næstu verkefni Skóla- íþrótt- og tómstundarnefndar og kostnað við þau. Kristján spurði um eftirfylgni með lestrar og stærðfræði átaki sem er í gangi í Grunnskóla Hornafjarðar að fyrirmynd Reykjanesbæjar. Ragnhildur upplýsti að sérfræðingar okkar séu innan skólans og þeir leggi skimunarpróf fyrir nemendur og síðan sé það hlutverk skólaskrifstofunnar að fara yfir niðurstöður og aðgerðaráætlanir með sérfærðingum skólans og skólastjórnendum. Þórhildur hafði orð á kynjahlutfalli í ungmennaráði en þar eru 3 karlkyns og 1 kvenkyns en einn fulltrúi mætti ekki. Umræður sköpuðust um forvarnarhóp og hlutverk hans Ragnhildur Jónsdóttir ætlar að mæta á næsta fund forvarnarhópsins og ræð hlutverk hans.
Fundargerð samþykkt
Fundargerð samþykkt
3.
Hafnarstjórn Hornafjarðar - 169
Fundargerð samþykkt.
4.
Fjárhagsáætlun Sveitarfélagsins Hornafjarðar 2015
Ásta Halldóra mætti á fundinn undir þessum lið. Farið yfir þær breytingar sem komnar eru inn frá fyrri umræðu um fjárhagsáætlun ársins 2015. Framkvæmdir hækka um 37 milljónir í A-hluta og rekstur um 1 milljón í A-hluta. Einnig var upplýst um skerðingu á almennu jöfnunarframlagi til grunnskóla. Þessi skerðing kemur til vegna sameiningu Hafnar- Heppu- og Nesjaskóla í Grunnskóla Hornafjarðar samkvæmt tölvupósti frá Jöfnunarsjóði. Bæjarráð hafnar ósk Hafnarstjórnar um aukningu um framkvæmdir um 4 milljónir.
Í ljósi framkominna upplýsinga er fjárhagsáætlun vísað til frekari vinnu starfsmanna
Í ljósi framkominna upplýsinga er fjárhagsáætlun vísað til frekari vinnu starfsmanna
5.
Umsögn um tillögu til þingsályktunar um millilandaflug um Hornafjarðarflugvöll
Bæjarráð fagnar framkominni þingsályktun. Telur að með framgöngu hennar styrkist uppbygging atvinnu og ferðaþjónusta á Suð-austurlandi. Bæjarráð telur ekki síður mikilvægt að horft sé til öryggis í flugsamgöngum milli landa. Hornafjarðarflugvöllur hentar vel fyrir litlar og meðalstórar ferjuflugvélar á leið til og frá landinu.
Vísað til úrvinnslu starfsmanna.
Vísað til úrvinnslu starfsmanna.
6.
Samstarfssamningur um Frumkvöðlasetur SASS og Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands
Bæjarráð væntir góðs af Frumkvöðlasetri SASS og samstarfs við NMÍ. Bendir jafnframt á að starfsmaður NMí á Hornafirði hætti störfum nú í haust og ekki hefur enn verið auglýst eftir nýjum starfsmanni á Hornafirði.
7.
Ósk um styrk vegna flugsögu Austurlands
Bæjarráð hafnar ósk um styrk.
8.
Kína
Björn Ingi fór yfir ferð sína til Kína og helstu hluti sem þar var kynnt.
9.
Fundargerð stjórnar Nýheima nr. 39
Lagt fram til kynningar
10.
Fundargerð stjórnar SASS nr. 484
Lagt fram til kynningar
11.
Fundargerð stjórnar SASS nr. 487
Bæjarráð hefur þungar áhyggjur af fjármögnun nýrra lögreglustjóra- og sýslumannsembætta. Bæjarráð ýtrekar skoðun sína að nægilegir fjármunir til nýrra embætta sýslumanna og lögreglustjóra á Suðurlandi verði tryggðir. Mikilvægt er að þjónusta skerðist ekki frá því sem nú er og tryggð verði staða löglærðs fulltrúa hjá sýslumannsembættinu á Hornafirði. Jafnframt er nauðsynlegt að með stækkun lögreglustjóraembættisins til Hornafjarðar fylgi tilsvarandi fjármunir.