Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

699. fundur
1. desember 2014 kl. 16:00 - 00:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Þórhildur Ásta Magnúsdóttir formaður
Lovísa Rósa Bjarnadóttir varaformaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður
Björn Ingi Jónsson bæjarstjóri
Bryndís Bjarnarson upplýsinga og gæðastjóri
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson
Dagskrá
1.
Jöfnunarframlög til reksturs grunnskóla
Málsnúmer 201409059
Ásta H. Guðmundsdóttir fjármálastjóri sat fundin undir þessum lið. Erindi frá Jöfnunarsjóði lagt fram, tilkynning vegna lækkunar á almennu framlagi til grunnskóla.
2.
Álagningareglur 2015
Málsnúmer 201410074
Röng prósentutala var í álagningareglum sem samþykkt var í bæjarstjórn 30. október 2014 misritað var útsvarsprósenta upp á 14,48% en á að vera 14,52% ekki er um hækkun að ræða frá fyrra ári.
Vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.
3.
Fjárhagsáætlun Sveitarfélagsins Hornafjarðar 2015
Málsnúmer 201403050
Ásta H. Guðmundsdóttir sat fundinn undir þessum lið.
Samkvæmt samtali við Jöfnunarsjóð kemur fram að hluti af þeirri skerðingu á jöfnunarframlagi til grunnskóla er dregið að hluta til baka.
Bæjarráð vísar fjárhagsáætlun til annarar umræðu í bæjarstjórn.
4.
Þriggja ára áætlun 2016-2018
Málsnúmer 201410075
Ásta H. Guðmundsdóttir sat fundinn undir þessum lið.
Bæjarráð vísar þriggja ára áætlun 2016 - 2018 til annarar umræðu í bæjarstjórn.
5.
Samþykkt um stjórn og fundarsköp sveitarfélagsins Hornafjarðar 2014
Málsnúmer 201410006
Bæjarráð vísar samþykktum um stjórn og fundarsköp sveitarfélagsins til annarar umræðu í bæjarstjórn.
6.
Siðareglur kjörinna fulltrúa
Málsnúmer 201411059
Bæjarráð fór yfir siðareglur kjörinna fulltrúa.
Bæjarráð samþykkir að bæta við 9. gr. siðareglnanna endurskoðunaákvæði í samræmi við 29. gr. sveitarstjórnarlaga.
Vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.
7.
Styrkveitingar SASS til nýsköpunar 2014
Málsnúmer 201411064
Lagt fram til kynningar í kjölfar umræðu styrkveitinga SASS.
8.
Stefnumörkun Sambands Íslenskra Sveitarfélga fyrir árin 2014-2018
Málsnúmer 201411067
Lagt fram til kynningar.
9.
Skólagjöld Tónskóla vegna haustannar 2014
Málsnúmer 201412002
Bæjarráð samþykkir að endurgreiða tónskólagjöld í hlutfalli við skerta kennslu á önninni vegna verkfalls tónlistaskólakennara.
10.
Fyrirspurnir - bæjarráð
Málsnúmer 201009100
Engar fyrirspurnir bárust.