Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

700. fundur
8. desember 2014 kl. 16:00 - 00:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Þórhildur Ásta Magnúsdóttir formaður
Lovísa Rósa Bjarnadóttir varaformaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður
Björn Ingi Jónsson bæjarstjóri
Bryndís Bjarnarson
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson
Dagskrá
1.
Áskorun til landeigenda um uppbyggingu við Jökulsárlón
Málsnúmer 201408001
Auðun Helgason lögfræðingur sat fundinn undir þessum lið.
Bæjarráð hefur boðað til fundar með landeigendum jarðarinnar Fells við Jökulsárlón 10. desember kl. 13:00 á Icelandair hótel Reykjavík Natura.
Farið var yfir fyrirkomulag væntanlegs fundar.
2.
Lagabreytingar á umdæmum embætta sýslumanna og lögreglustjóra
Málsnúmer 201408025
Samkvæmt ákvörðun dómsmálaráðherra skal sveitarfélagið Hornafjörður teljast til umdæmis lögreglustjórans á Austurlandi þar til úttekt á rekstrarforsendum lögreglunnar á Austurlandi hefur farið fram.
Farið yfir stöðuna eins og hún er í dag og bæjarráð bendir á bókun bæjarstjórnar frá 6. desember.
3.
Tölvumál tölvubilun netþjón
Málsnúmer 201412018
Sveinbjörn Imsland sat fundinn undir þessum lið.
Farið var yfir minnisblað frá Advania ds. 8. desember vegna bilunar í tölvukerfi sveitarfélagsins.
Í minnisblaðinu kemur fram að varahlutur sem átti að skila sér á 2-3 virkum dögum var ekki komin eftir 10 daga, verið er að kanna til hlýtar hjá Advania hvað olli þessu.
Bæjarráð væntir þess að fá niðurstöður frá fyrirtækinu þegar þær liggja fyrir.
4.
Vindheimar endurbygging, hjallur
Málsnúmer 201412011
Erindi frá Ara Þorsteinssyni og Maríu Gísladóttur þar sem þau óska eftir samstarfi um uppbyggingu á Nýjahúsi með því að leggja fram vinnu starfsmanna og hjall til verkefnisins.
Vísað til atvinnu- og menningamálanefndar.
5.
Hafnarvík Heppa Uppsteypta húsið Netaloft
Málsnúmer 201412013
Erindi frá Guðrúnu Ingólfsdóttur og Eyrúnu Axelsdóttur þar sem þær óska eftir samstarfi við sveitarfélagið um aðstöðu fyrir listamenn við að vinna og selja afurðir sínar í netalofti við enda Miklagarðs.
Bæjarráð leggur áherslu á opið ferli ef kemur að úthlutun húsnæðisins.
Bæjarstjóra falið að vinna áfram að málinu.
6.
Umsókn um tækifærisleyfi Þorrablót 2015
Málsnúmer 201412008
Erindi frá Sýslumanni um að sveitarfélagið veiti umsögn um tækifærisleyfi fyrir Þorrablót á Höfn.
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við tækifærilsleyfið.
7.
Styrkur vegna námsupplýsingakerfis
Málsnúmer 201412009
Erindi frá mennta- og menningamálaráðuneytinu þar sem ráðuneytið hefur ákveðið að styrkja sveitarfélögin og aðra rekstraraðila grunnskóla í landinu til að taka upp námsupplýsingakerfi er styður við innleiðingu nýrrar aðalnámskrár í grunnskólum landsins og áherslur er koma fram í Hvítbókl um umbætur í menntun.
Vísað til skóla- íþrótta- og tómstundanefndar.
8.
Fyrirspurnir - bæjarráð
Málsnúmer 201009100
Engar fyrirspurnir hafa borist.