Bæjarráð Hornafjarðar
701. fundur
15. desember 2014
kl.
16:00
-
00:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Þórhildur Ásta Magnúsdóttir
formaður
Lovísa Rósa Bjarnadóttir
varaformaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
aðalmaður
Björn Ingi Jónsson
bæjarstjóri
Ásta Halldóra Guðmundsdóttir (ÁHG)
fjármálastjóri
Bryndís Bjarnarson
upplýsinga og gæðastjóri
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson
Dagskrá
1.
Félagsmálanefnd Hornafjarðar - 258
Jón Kristján Rögnvaldsson sat fundinn undir þessum lið.
Ásgerður spurði hvort húsaleiga hafi hækkað á almennum markaði í tengslum við húsaleigubætur. Jón Kristján sagðist ekki merkja að breyting hafi orðið á leiguverði. Umræður um húsnæðismarkað og uppbyggingu á íbúðarhúsnæði á Höfn.
Jón Kristján skýrði frá vinnu forvarnarhóps og velferðarteymis.
Fundargerð samþykkt.

2.
Atvinnu- og menningarmálanefnd - 59
Fundargerð samþykkt.
3.
Umhverfis- og skipulagsnefnd - 71
Gunnlaugur Rúnar Sigurðsson sat fundinn undir þessum lið.
Bæjarráð bendir á að vinna þarf verksamning til þeirra aðila sem taka að sér vinnu við deiliskipulag við Hrollaugsstaði.
Rúnar greindi frá samskiptum við Skipulagsstofnun vegna deiliskipulags við Drápskletta þar sem kom fram að hefja þarf að nýju lýsingu.

4.
Stjórn Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands - 50
Fundargerð samþykkt.
5.
Álaleira/Mjólkurstöð
Björn Ingi gerði grein fyrir stöðu húsnæðismála Hornafjarðarsafna.
Bæjarstjóra falið að vinna áfram að málinu.
Bæjarstjóra falið að vinna áfram að málinu.
6.
Endurbætur á Sindrabæ Lyfta
Björn Imsland forstöðumaður fasteigna gerði grein fyrir tilboði í endurbætur á Sindrabæ.
Eitt fyrirtæki bauð í verkið.
Þingavað 6.600.600 kr.
Kostnaðaráætlun hljóðaði upp á 5.389.450 kr.
Bæjarráð samþykkir að taka tilboðinu og felur starfsmanni að ganga til samninga við tilboðsgjafa.
Eitt fyrirtæki bauð í verkið.
Þingavað 6.600.600 kr.
Kostnaðaráætlun hljóðaði upp á 5.389.450 kr.
Bæjarráð samþykkir að taka tilboðinu og felur starfsmanni að ganga til samninga við tilboðsgjafa.
7.
Staða sveitarsjóðs 2014
Ásta Halldóra Guðmundsdóttir fjármálastjóri gerði grein fyrir stöðu sveitarsjóðs eftir október uppgjör.
8.
Fjárhagsáætlun Sveitarfélagsins Hornafjarðar 2015
Ásta gerði grein fyrir drögum að stofnbúnaðarúthlutun fyrir árið 2015.
9.
Samningur við Björgunarfélag Hornafjarðar
Björn Ingi gerði grein fyrir drögum að samningi við Björgunarfélag Hornafjarðar, samningurinn er til fjögurra frá 2015 - 2018 ára og hljóðar upp á 2.433.00 á ári.
Bæjarráð samþykkir framlögð drög að samningi.
Bæjarráð samþykkir framlögð drög að samningi.
10.
Þátttaka í þáttaröð "Um Suðurland"
Erindi frá sjónvarpstöðinni N4 lagt fram, sjónvarpstöðin hefur áhuga á að gera 24 þætti um Suðurland og býður Sveitarfélaginu Hornafirði að taka þátt ásamt öðrum sveitarfélögum á Suðurlandi.
Kostnaður sveitarfélagsins yrði 500.000.
Bæjarráð samþykkir að taka þátt í verkefninu og felur bæjarstjóra að ganga frá samningi.
Kostnaður sveitarfélagsins yrði 500.000.
Bæjarráð samþykkir að taka þátt í verkefninu og felur bæjarstjóra að ganga frá samningi.
11.
Umhverfisstefna Nýheima - sorpflokkun
Erindi lagt fram frá stjórn Nýheima um stefnu í flokkun þar sem áætlað er að setja flokkunarbari í húsið og leitar eftir að bæjarráð veiti styrk til verkefnisins.
Bæjarráð fagnar framtaki Nýheima en hafnar beiðni um styrk.
Bæjarráð fagnar framtaki Nýheima en hafnar beiðni um styrk.
12.
Fundargerð stjórnar Nýheima nr. 41
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
13.
Fundargerð HAUST nr.120
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
14.
Fyrirspurnir - bæjarráð
Engar fyrirspurnir hafa borist.