Bæjarráð Hornafjarðar
704. fundur
12. janúar 2015
kl.
16:00
-
00:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Þórhildur Ásta Magnúsdóttir
formaður
Páll Róbert Matthíasson
1. varamaður
Lovísa Rósa Bjarnadóttir
varaformaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
aðalmaður
Björn Ingi Jónsson
bæjarstjóri
Bryndís Bjarnarson
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson
Dagskrá
1.
Umhverfis- og skipulagsnefnd - 72
Gunnlaugur Rúnar Sigurðsson skipulags- og byggingafulltrúi og Tómas Ellert Tómasson umhverfis- og framkvæmdastjóri sátu fundinn undir þessum lið. Umræður um nýtt fyrirkomulag við snjómokstur hjá sveitarfélaginu starfsmenn upplýstu að unnið er að uppfærslu á skipulagi snjómoksturs.
Fundargerð samþykkt.
Fundargerð samþykkt.
2.
Umsókn um nýtt rekstrarleyfi Setberg 1
Erindi lagt fram frá Sýslumanninum á Höfn dags. 24. 11. 2014 þar sem óskað er eftir umsögn sveitarfélagsins vegna rekstrarleyfis á Setbergi 1.
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við rekstrarleyfið.
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við rekstrarleyfið.
3.
Reglur um afslátt á fasteignaskatti 2015
Ásta Halldóra Guðmundsdóttir fjármálastjóri sat fundinn undir þessum lið. Lagðar fram reglur um afslátt á fasteignaskatt hjá sveitarfélaginu 5. gr. hefur verið uppreiknuð samkv. launavísitölu nóv. 2013 til nóv. 2014.
Bæjarráð samþykkir breytinguna.
Bæjarráð samþykkir breytinguna.
4.
Umsókn um tækifærisleyfi Þorrablótsnefnd Mýra og Suðursveitar
Erindi frá Sýslumanninum á Höfn lagt fram dags. 08.01. 2014 þar sem óskað er eftir umsögn sveitarfélagsins um tækifærisleyfi frá Þorrablótsnefnd Mýra og Suðursveitar.
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við útgáfu tækifærisleyfis.
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við útgáfu tækifærisleyfis.
5.
Vörukaup á Olíuvörum og öðrum rekstrarvörum svo sem salernispappír, sápum, plastpokum o.fl sambærilegu
Verðfyrirspurn um almennar rekstrarvörur hefur farið fram óskað var eftir verðum í rekstrarvörur frá Olís og N1 fyrir allar stofnanir sveitarfélagsins með mögulega samþættingu með HSSA.
N1 gaf tvö verð: 1 samtals 10.820.379 og frávik samtals 11.376.941
Olís gaf tvö verð: 1 samtals 9.301.408 og frávik samtals 9.216.860
Starfsmönnum falið að upplýsa forstöðumenn um niðurstöðurnar verð og gæði.

6.
Hringvegurinn um Hornafjarðarfljót
Björn Ingi Jónsson bæjarstjóri gerði grein fyrir fundi sínum með fulltrúum Vegagerðarinnar 17. desember sl. kom fram að fyrirhugað er að ljúka öllum rannsóknum er varða nýja veglínu í vetur. Veglínan sem er á nýstaðfestu aðalskipulagi er um 400 m.kr. dýrari en Vegagerðin hefur gert ráð fyrir.
Bæjarráð fagnar áformum Vegagerðar að ráðast eigi samtímis í framkvæmdir við áfanga 1 og 3 í samræmi við samkomulag Vegagerðarinnar og Sveitarfélagsins Hornafjarðar. Sjá bréf sveitarfélagsins dags. 22. júní 2011. Bæjarráð vill engu að síður leggja áherslu á mikilvægi vegtengingar niður með Djúpá til að vegstytting íbúa Mýra verði sem mest. Ekki er ljóst hversu löng framtíð brúar yfir Hornafjarðarfljót er og við brotthvarf hennar lengist vegalengd frá nokkrum bæjum til Hafnar frá því sem nú er.

7.
Samningur um við Ríki Vatnajökuls 2015 til 2018
Björn Ingi kynnti samningsdrög við Ríki Vatnajökuls frá janúar 2015 til 31. des. 2018. Sveitarfélagið skuldbindur sig til að leggja fram jafnmikið fé og kemur frá hluthöfum til verkefnisins árið áður, þó að hámarki kr. 4.800.000 á hverju ári. Hluti framlags sveitarfélagsins er leiga á skrifstofu í Nýheimum er það framlag metið á 620.000 krónur.
Bæjarstjóra falið að ganga frá samningi við Ríki Vatnajökuls.
Bæjarstjóra falið að ganga frá samningi við Ríki Vatnajökuls.
8.
Álaleira/Mjólkurstöð
Björn Ingi fór yfir stöðu húsnæðismála Hornafjarðarsafna.
Bæjarstjóra falið að fara í viðræður við Landsbankann um kaup á mjólkurstöðinni og leggja fram heildstæða áætlun um viðhald og rekstur hússins á ársgrundvelli og áhrif á fjárhagsáætlun 2015.
Bæjarstjóra falið að fara í viðræður við Landsbankann um kaup á mjólkurstöðinni og leggja fram heildstæða áætlun um viðhald og rekstur hússins á ársgrundvelli og áhrif á fjárhagsáætlun 2015.
9.
Hafnarvík Heppa Uppsteypta húsið Netaloft
Björn Ingi greindi frá að ástand Netaloftsins er mjög slæmt samkvæmt úttekt starfsmanna og hugmyndum um framtíðarnýtingu á húsnæðinu.
Bæjarráð óskar eftir að byggingarfulltrúi taki húsið út með ástand og mögulega framtíð hússins og skili skýrslu þar um til bæjarstjóra sem í framhaldinu tekur málið upp í hafnarstjórn.
Bæjarráð sammála um að ef ástand hússins er metið endurbótahæft þá sé stefnt að því að auglýsa.

10.
Matís og matarsmiðjan
Björn Ingi fór yfir stöðu mála varðandi MATÍS og matarsmiðjuna.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að tala við hagsmunaaðila um matarsmiðjuna.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að tala við hagsmunaaðila um matarsmiðjuna.
11.
Fyrirspurnir - bæjarráð
Engar fyrirspurnir hafa borist.