Bæjarráð Hornafjarðar
706. fundur
26. janúar 2015
kl.
16:00
-
17:30
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Þórhildur Ásta Magnúsdóttir
formaður
Lovísa Rósa Bjarnadóttir
varaformaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
aðalmaður
Björn Ingi Jónsson
bæjarstjóri
Starfsmenn
Bryndís Bjarnarson
upplýsinga og gæðastjóri
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson
Dagskrá
1.
Menningarmálanefnd - 1
Fundargerð samþykkt.
2.
Fræðslu- og tómstundanefnd - 1
Ragnhildur Jónsdóttir fræðslustjóri sat fundinn undir þessum lið. Umræður um sunnlenska skóladaga sem verða haldnir 2016.
Ásgerður spurði um menntastefnuna, Ragnhildur upplýsti að verið er að vinna að skýrsludrögum að texta fyrir stefnuna.
Í fundargerðinni kemur fram að tómstundastyrkur er hækkaður úr 20 þús. í 40 þús. á barn á aldrinum 6-18 ára.

3.
Samningur við Hólabrekku ehf.
Jón Kristján Rögnvaldsson félagsmálastjóri sat fundinn undir þessum lið. Hann gerði grein fyrir stöðu mála, bæjarráð telur mikilvægt að ljúka við samkomulag vegna rekstrarársins 2014.
Starfsmönnum falið að vinna áfram að málinu.

4.
Styrkir bæjarráðs
Bæjarráð samþykkir að eftirfarandi aðilar fái styrk.
Björgunarsveitin Kári 300 þús.kr.
Félagsstarf eldri borgara Öræfum 100 þús.kr.
Skógræktarfélag Austur Skaftafellssýslu 200 þús.kr.
Fuglaathugunarstöð Suðausturlands 200 þús.kr.
Ferðafélag Austur Skaftfellinga 200 þús.kr.
Ungmennafélagið Sindri fimleikadeild 500 þús.kr.
Einnig barst umsókn frá Skotfélagi Hornafjarðar vegna uppbyggingar á félagssvæði. Bæjarráð hafnar umsókninni þar sem deiliskipulag liggur ekki fyrir.

5.
Efling leikskólastigsins
Fræðslu- og tómstundanefnd bókaði á fundi sínum að bæjarráð skoði hvort það sé hægt að setja fjármagn í átak til fjölgunar leikskólakennara.
Bæjarráð bendir á að í starfsmannastefnu sveitarfélagsins er boðið uppá að gera námssamning við stofnanir sveitarfélagsins og stunda þannig starstengt nám án þess að verða fyrir kjaraskerðingum og á það einnig við um námslotur. Bæjarráð er tilbúið að skoða frekari útfærslur á stuðningi sveitarfélagsins til viðbótar við þau úrræði sem hafa verið í boði. Þær útfærslur þarf fræðslu- og tómstundarnefnd að útfæra og kostnaðarmeta.

6.
Verkfallsheimild opinberra starfsmanna
Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi undanþágulista opinberra sveitarfélagsins Hornafjarðar.
7.
Fundargerð SASS nr. 489
Fundargerð lögð fram til kynningar.
8.
Fyrirspurnir - bæjarráð
Engar hafa borist.