Bæjarráð Hornafjarðar
707. fundur
2. febrúar 2015
kl.
16:00
-
18:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Þórhildur Ásta Magnúsdóttir
formaður
Lovísa Rósa Bjarnadóttir
varaformaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
aðalmaður
Bryndís Bjarnarson
upplýsinga og gæðastjóri
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson
Dagskrá
1.
Félagsmálanefnd Hornafjarðar - 259
Jón Kristján Rögnvaldsson félagsmálastjóri sat fundinn undir þessum lið.
Umræður um kynjahlutfall í nefndum sveitarfélagsins.
Fundargerð samþykkt.
Umræður um kynjahlutfall í nefndum sveitarfélagsins.
Fundargerð samþykkt.
2.
Heilbrigðis- og öldrunarnefnd - 1
Matthildur Ásmundadóttir framkvæmdastjóri HSU á Hornafirði sat fundinn undir þessum lið.
Heilbrigðisstofnunin á Höfn er þátttakandi í tveimur verkefnahópum sem skipaðir voru vegna sameiningar HSU, HSVE og HSSA, innkaupahóp og verkefnahóp um upplýsingatækni og símkerfi. Kom fram að þar eru sóknarfæri í innkaupamálum og ýmislegt varðandi upplýsingatækni. Þessir tveir verkefnahópar skila af sér skýrslu nú fljótlega
Bæjarráð fagnar stofnun Hollvinasamtaka heilbrigðisstofnunarinnar.

3.
Fjárhagsáætlun HSSA 2015
Fjárhagsáætlun lögð fram.
Matthildur gerði grein fyrir fjárhagsáætlun heilbrigðistofnuar.
Bæjarráð staðfestir fjárhagsáætlun HSU á Hornafirði og vísar henni til bæjarstjórnar.
Bæjarráð staðfestir fjárhagsáætlun HSU á Hornafirði og vísar henni til bæjarstjórnar.
4.
Ósk um leiðbeiningar í tengslum við fráveitumál á Höfn í Hornafirði
Tómas Ellert Tómasson framkvæmda- og umhverfisstjóri sat fundinn undir þessum lið og gerði grein fyrir svari umhverfistofnunar vegna fyrirspurnar sveitarfélagsins um fráveitu á Höfn. Í svarinu kom fram að Umhverfisstofnun gerir ekki athugasemdir við áætlanir sveitarfélagsins í fráveitumálum.
Bæjarráð leggur til að farið verði að vinna að útboðsgögnum samhliða deiliskipulagsvinnu.
Bæjarráð leggur til að farið verði að vinna að útboðsgögnum samhliða deiliskipulagsvinnu.
5.
Erindi frá Úrskurðarnefnd umhverfis og auðlindamála kæra nr.2/2015
Lagt fram til kynningar.
6.
Samstarfssamningur - Sindri 2015-2018
Samningur við UMF Sindra lagður fram.
7.
Samningur um við Ríki Vatnajökuls 2015 til 2018
Samningur við Ríki Vatnajökuls lagður fram til kynningar.
8.
Endurnýjun leyfa - Ferðaþjónustan Hólmur
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við endurnýjun rekstrarleyfis.
9.
Jökladagar - hlaup
Erindi frá Vox Naturae,félagasamtök dags.29. janúar 2015 um áhuga fyrir að halda Jökladaga - hlaup.
Bæjarráð lýsir yfir ánægju með að samtökin hafi áhuga á að halda Jökladaga- hlaup en telur ekki tímabært að ræða fjárstyrk þar sem verkefnið er á hugmyndastig og engin fjárhagsáætlun liggur fyrir.
Bæjarráð lýsir yfir ánægju með að samtökin hafi áhuga á að halda Jökladaga- hlaup en telur ekki tímabært að ræða fjárstyrk þar sem verkefnið er á hugmyndastig og engin fjárhagsáætlun liggur fyrir.
10.
Umsögn um Mentamálastofnun
Vísað til fræðslustjóra.
11.
Umsögn um breytingu á lögum um grunnskóla nr. 91/2008
Vísað til fræðslustjóra.
12.
Fyrirspurnir - bæjarráð
Engar fyrirspurnir hafa borist.