Bæjarráð Hornafjarðar
708. fundur
9. febrúar 2015
kl.
16:00
-
18:28
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Þórhildur Ásta Magnúsdóttir
formaður
Páll Róbert Matthíasson
1. varamaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
aðalmaður
Björn Ingi Jónsson
bæjarstjóri
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson
Dagskrá
1.
Atvinnumálanefnd - 1
Bæjarráð leggur áherslu á að við gerð landsskipulagsstefnu verði horft til þess að nauðsynlegt er að styrkja dreifbýli til jafns við þéttbýli. Einnig er mikilvægt að landsskipulagsstefna taki til bæði landverndar og landnýtingar og hvernig þessir þætti geta stuðlað að betri búsetuskilyrðum í öllu landinu.
Bæjarráð tekur undir bókun atvinnumála- og skipulagsnefndar.
Kostur B er styrking á núverandi meginflutningskerfi og er því vænlegasti kostur fyrir sveitarfélagið að sá framkvæmdarkostur verði fyrir valinu. Einnig telur bæjarráð mikilvægt að skoðaði séu kostir og gallar þess að háspennulagnir framtíðarinnar verði settar í jörðu.

2.
Skipulagsnefnd - 1
Gunnlaugur Rúnar Sigurðsson bygginga- og skipulagsfulltrúi sat fundinn undir þessum lið.
Umræður um deiliskipulag við Fjallsárlón, málinu var frestað á síðasta bæjarstjórnarfundi og verður tekið aftur fyrir skipulagsnefnd og bæjarstjórn.
Umræður um deiliskipulag við Fjallsárlón, málinu var frestað á síðasta bæjarstjórnarfundi og verður tekið aftur fyrir skipulagsnefnd og bæjarstjórn.
3.
Umhverfisnefnd - 1
Tómas Ellert Tómasson framkvæmda- og umhverfisstjóri sat fundinn undir þessum lið.
4.
Umsóknir í framkvæmdasjóð aldraðra 2015
Matthildur Ásmundardóttir framkvæmdastjóri HSU á Hornafirði.
Matthildur fór yfir vinnu við gerð umsókna í sjóðinn, um er að ræða stækkun á sólskála og endurnýjun á sjúkrakallkerfi.
Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi umsóknir og samþykkir að tryggja mótframlag vegna fyrirhugaðra framkvæmda.

5.
Samstarfssamningur við TEL
Vala Garðarsdóttir forstöðumaður Hornafjarðarsafna sat fundinn undir þessum lið.
Bæjarráð staðfestir samninginn.
Bæjarráð staðfestir samninginn.
6.
Umsókn um útgáfustyrk
Erindi frá Bjarna F. Einarssyni dags. 29. janúar lagt fram þar sem hann óskar eftir að sveitarfélagið styrki útgáfu bókar um forleifauppgröft í Hólmi og öðrum svæðum í sýslunni.
Bæjarráð tekur jákvætt í umsóknina og vísar erindinu til afgreiðslu menningarmálanefdar við úthlutun menningarstyrkja.
Bæjarráð tekur jákvætt í umsóknina og vísar erindinu til afgreiðslu menningarmálanefdar við úthlutun menningarstyrkja.
7.
Styrkbeiðni frá Yrkjusjóði
Erindi dags. 4. feb. 2015 lagt fram þar sem Yrkjusjóður óskar eftir styrk til plöntukaupa.
Bæjarráð samþykkir að veita styrk að upphæð 100 þús.kr. til verkefnisins.
Bæjarráð samþykkir að veita styrk að upphæð 100 þús.kr. til verkefnisins.
8.
Samtarfssamningur 2015 við RML
Björn Ingi gerði grein fyrir fundi sem hann átti við Ráðgjafamiðstöð landbúnaðarins og Bændasamtökin um framtíðarsamstarf á milli þessara stofnana og sveitarfélagsins.
9.
Áskorun til landeigenda um uppbyggingu við Jökulsárlón
Björn Ingi gerði grein fyrir stöðu mála þjónustusvæðis við Jökulsárlón.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að boða að nýju til fundar með landeigendum um möguleika á úrbótum fyrir komandi ferðamannatímabil.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að boða að nýju til fundar með landeigendum um möguleika á úrbótum fyrir komandi ferðamannatímabil.
10.
Aðalfundur Samorku
Fundarboð Samorku lagt fram.
Tómas Ellert Tómasson er tilnefndur á aðalfund Samorku.
Samþykkt.
Tómas Ellert Tómasson er tilnefndur á aðalfund Samorku.
Samþykkt.
11.
Vinabær Lamotte-Beuvron
Erindi frá bæjarstjóra Lamotte Beuvron í Frakklandi dags. 27. janúar 2015, með beiðni um vinabæjarsamstarf.
Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og felur bæjarstjóra að kanna grundvöll að samstarfi milli sveitarfélaganna.
Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og felur bæjarstjóra að kanna grundvöll að samstarfi milli sveitarfélaganna.
12.
Fundargerð stjórnar Nýheima nr. 43
Lögð fram til kynningar.
13.
Starfsmannamál
Björn Ingi fór yfir verðkönnun á ráðningarþjónustu. Bæjarstjóri sendir drög að starfslýsingu Atvinnu- og ferðamálafulltrúa til bæjarráðs til umsagnar. Farið yfir skipurit sveitarfélagsins.
14.
Fyrirspurnir - bæjarráð
engar borist.