Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

711. fundur
2. mars 2015 kl. 16:00 - 17:45
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Þórhildur Ásta Magnúsdóttir formaður
Lovísa Rósa Bjarnadóttir varaformaður
Kristján Sigurður Guðnason 1. varamaður
Björn Ingi Jónsson bæjarstjóri
Bryndís Bjarnarson upplýsinga og gæðastjóri
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson
Dagskrá
1.
Atvinnumálanefnd - 3
Málsnúmer 1502013F
Björn Ingi Jónsson bæjarstjóri gerði grein fyrir vinnu við atvinnustefnu sveitarfélagsins sem er verið að vinna að, nefndum sveitarfélagsins verður sendur spurningalisti um aðgerðir í atvinnumálum.
Fundargerð samþykkt.
2.
Heilbrigðis- og öldrunarnefnd - 2
Málsnúmer 1502015F
Matthildur Ásmundardóttir framkvæmdastjóri HSU á Hornafirði sat fundinn undir þessum lið.
Matthildur greindi frá að stjórnendur HSU á Hornafirði munu fara á stjórnendafund á Selfossi nk. föstudag með stjórnendum HSU á Suðurlandi.
Bæjarráð felur bæjarstjóra og framkvæmdastjóra HSU á Hornafirði að senda bréf til forstjóra HSU þar sem óskað er eftir að hefja úttekt á gildandi þjónustusamningi í samræmi við ákvæði samningsins.
Fundargerð samþykkt.
3.
Menningarmálanefnd - 2
Málsnúmer 1502010F
Vala Garðarsdóttir forstöðumaður Hornafjarðarsafna sat fundinn undir þessum lið. Farið yfir úthlutun nefndarinnar.
Fundargerð samþykkt.
4.
Ósk um aukið fjárframlag til ungmennaráðs
Málsnúmer 201502035
Dagbjört Ýr Kiesler tómstundafulltrúi og fulltrúar ungmennaráðs Ágúst Máni Aðalsteinsson, Sigríður Þórunn Þorvarðardóttir, Þorlákur Helgi Pálmason, Ingvi Þór Sigurðsson og Sunna Dögg Guðmundsdóttir sátu fundinn undir þessum lið.
Gerð var grein fyrir starfsemi ungmennaráðs, ráðstefnu um lýðræði sem tveir meðlimir ráðsins sóttu ásamt starfsmanni. Ungmennaráð hefur áhuga á að efla lýðræðisvitund ungs fólks og taka þátt í skuggakosningum fyrir ungt fólk. Hugmynd ungmennaráðs um stofnun ungmennahús sem gæti nýst með Þrikkjunni.
Ungmennaráð mun halda ungmennaþing á Hornafirði 16. mars nk.. Í fjárhagsáæltun er gert ráð fyrir 200 þús. til ungmennaráðs.
Bæjarráð samþykkir að veita 150. þús. aukafjárvetingu til ráðsins og tekur jákvætt í að ungmennaþing verði haldi á Höfn.
5.
ósk um framlag í formi hvatningar og styrks
Málsnúmer 201502056
Erindi frá Nýsköpunarkeppni grunnskólanemenda dags. 11. febrúar 2015 lagt fram.
Óskað er eftir framlagi sveitarfélagsins til nýsköpunarkennslu.
Bæjarráð hafnar umsókninni.
6.
Starfshópur um íþróttir
Málsnúmer 201502062
Erinsdisbréf fyrir starfshóp um íþóttamál á Hornafirði lagt fram, fræðslu- og tómstundanefnd samþykkti erindisbréfið á fundi sínum 18. febrúar sl..
Bæjarráð samþykkir erindisbréfið.
Tilnefndir eru:
D- lista Páll Róbert Matthíasson formaður
E- lista Ottó Marvin Gunnarsson varaformaður
B- lista Einar Smári Þorsteinsson
USÚ Matthildur Ásmundardóttir
Sindri Valdemar Einarsson
Ungmennaráð Ingvi Þór Sigurðsson
Bæjarráð samþykkir framlagðar tilnefningar. Forstöðumaður íþróttamannvirkja og starfsmaður skólaskrifstofu starfa með hópnum.
7.
Framtíð tjaldstæðis
Málsnúmer 201502051
Bæjarráð leggur til að svæðið við tjaldsvæðið verði deiliskipulagt og ákvörðun um framtíð tjaldsvæðis verði tekin í framhaldinu.
Bæjarráð felur starfsmönnum að vinna áfram að málinu.
8.
Rekstur upplýsingamiðstöðvar
Málsnúmer 201502050
Erindi frá Ferðamálafélagi Austur Skaftafellssýslu dags. 10. febr. lagt fram.
Í ljósi umræðna sem eru hjá Ferðamálastofu og stefnumótunarvinnu Markaðstofu Suðurlands, mun bæjarráð bíða með frekari ákvarðanir.
9.
Erindisbréf Ungmennaráðs 2015
Málsnúmer 201502032
Frestað.
10.
Erindisbréf heilbrigðis- og öldrunarnefndar 2015
Málsnúmer 201412054
Bæjarráð samþykkir að vísa erindisbréfinu til bæjarstjórnar til samþykktar.
11.
Samningur um Fab Lab smiðju á Hornafirði
Málsnúmer 201502103
Samningur á milli Nýsköpunarmiðstöðvar, FAS og Sveitarfélagsins um Fab Lab smiðju í Hornafirði lagður fram til kynningar.
Markmið með starfsemi Fab Lab í Hornafirði er að auka þekkingu skólafólks og almennings á persónumiðaðri framleiðslu og starfrænum framleiðsluaðferðum. Auka áhuga á verk- og tækninámi í grunn-og framhaldskólum.
Bæjarráð fagnar undirskrift samningsins.
12.
Umsókn í Nýsköpunarsjóð námsmanna
Málsnúmer 201502113
Erindi frá Náttúrustofu Suðausturlands dags. 27. febr. lagt fram til kynningar.
Náttúrustofa hyggst sækja um styrk til skráningu á ástandi beitarlands á afmörkuðu svæði í sveitarfélaginu.
Bæjarráð telur verkefnið þarft og gott. Leggur til að það verði kynnt atvinnumálanefnd.
13.
Umsögn um tækifærisleyfi fyrir Góuhóf
Málsnúmer 201502055
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við umsóknina.
14.
Umsókn um styrk - Austfjarðartröllið og Valkyrjur Íslands
Málsnúmer 201502101
Erindi frá Félagi íslenskra kraftamanna dags. 23. febr. lagt fram. Óskað er eftir styrk til keppni til að halda mót fyrir sterkustu menn og konur landsins.
Bæjarráð hafnar styrkumsókninni.
15.
Umsókn um útgáfustyrk
Málsnúmer 201501103
Bæjarráð samþykkir að veita 250 þús. kr. í verkefnið.
Bæjarstjóra falið að ganga frá málinu.
Tekið af óráðstöfuðu.
16.
Fyrirspurnir - bæjarráð
Málsnúmer 201009100
Engar fyrirspurnir hafa borist.