Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

713. fundur
16. mars 2015 kl. 16:00 - 17:53
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Þórhildur Ásta Magnúsdóttir formaður
Lovísa Rósa Bjarnadóttir varaformaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður
Björn Ingi Jónsson bæjarstjóri
Starfsmenn
Bryndís Bjarnarson upplýsinga og gæðastjóri
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson
Dagskrá
1.
Félagsmálanefnd Hornafjarðar - 261
Málsnúmer 1503004F
Fundargerð lögð fram.
Þórhildur vakti athygli á endurskoðun á Jafnréttisáætlun 2014 til 2018 í henni er nú tilgreint við hverja grein aðgerðaráætlun ásamt ábyrgðaraðila og tímasetning endurskoðunar.
Ásgerður spurði um hvort það ætti að vera samráð þegar valið er í þriggja manna nefndir til þess að varast það að öll framboðin velji fulltrúa af sama kyni.
Fundargerð samþykkt.
2.
Hafnarstjórn Hornafjarðar - 172
Málsnúmer 1502019F
Fundargerð lögð fram.
Björn Ingi fór yfir fundargerðina.
Fundargerð samþykkt.
3.
Fráveita á Höfn og inn í Nesjum
Málsnúmer 201410002
Tómas Ellert Tómasson framkvæmda- og umhverfisstjóri sat fundinn undir þessum lið. Lovísa Rósa Bjarnadóttir vék af fundi undir þessum lið.
Farið var yfir verkáætlun til næstu þriggja ára.
Umræður um útfærslu á lögnum og skipulag við Ósland.
4.
Þjóðlenda við Fjallsárlón
Málsnúmer 201502096
Lovísa Rósa kom inn á fundinn.
Lögð fram drög að auglýsingu einnig rætt um leiguverð fyrir starfsleyfið.
Bæjarráð samþykkir framlögð drög með áorðnum breytingum og felur bæjarstjóra að fá samþykki forsætisráðuneytis fyrir auglýsingu.
5.
Starfsmannamál
Málsnúmer 201502022
Bæjarstjóri og fræðslustjóri hafa átt fund með skólastjóra Þórgunni Torfadóttur sem er í námsleyfi. Niðurstaðan af þeim fundi er sú að Þórgunnur stytti námsleyfi sitt um ár taki við starfi skólastjóra á yngra stigi þegar Hulda Laxdal hættir. Tíminn næsta skólaár verður notaður til þess að endurskoða stjórnskipulag Grunnskóla Hornafjarðar og rekstur grunnskóla í sveitarfélaginu. Bæjarráð samþykkir þessa lausn.
Farið yfir umsóknir um starf atvinnu- og ferðamálafulltrúa, sjö umsóknir bárust.
Einnig farið yfir umsóknir um starf fjármálastjóra, sex umsóknir bárust.
Áætlað er að ráðningaviðtöl fari fram nú í þessari og næstu viku.
6.
Samningur við Slysavarnadeild Öræfa
Málsnúmer 201503009
Drög að samstarfssamningi lögð fram. Bæjarráð heimilar bæjarstjóra að ganga frá samningi við Slysavarnadeild Öræfa.
7.
Umferðaröryggi í Austur-Skaftafellssýslu
Málsnúmer 201503036
Lagt fram erindi frá lögreglunni á Suðurlandi. Þar koma fram ábendingar og samantekt á umferðaröryggi í sýslunni. Þórhildur upplýsti að Náttúrustofa Suðausturlands hefur fengið styrk frá Vegagerðinni til að gera greinagerð um útskot á þjóðvegi nr.1 í sýslunni. Markmið úttektarinnar er að greina vinsælustu áningarstaðina meðfram þjóðveginum.
Erindinu vísað til Umhverfisnefndar og hvatt til samstarfs við NATTSA við skoðun á umferðaröryggi í sveitarfélaginu.
Bæjarráð fagnar öllum liðstyrk við umferðaröryggismál í sveitarfélaginu.
8.
Umsókn um lóð
Málsnúmer 201503019
Umsókn um lóð Kirkjubraut 9
Bæjarráð sammála um að úthluta lóð nr. 9 við Kirkjubraut.
9.
Stuðningur við rekstri fræðslunetsins og Háskólafélagsins
Málsnúmer 201503040
Lagt fram erindi frá Fræðslunetinu Símenntun á Suðurlandi og Háskólasamfélagi Suðurlands. Þar er farið fram á að styrkur vegna húsaleigu verði sambærilegur og hann var árið 2014. Framlag sveitarfélagsins til FSS og HS á síðasta ári var metinn á 1,5 milljón króna í formi húsnæðis án endurgjalds. Það húsnæði sem FSS og HS hafa til umráða í Nýheimum ætti að leigjast út á 3.424.000 krónur á ári bæjarráð hefur þegar samþykkt að leigan verið á sama grunni og árið 2014 eða 1.500.000 króna. Því er um 56% afslátt á leigu að ræða.
Í samkomulagi frá janúar 2014 stendur eftirfarandi.

Til að leysa fjármögnun verkefnisins fyrir árið 2014 hefur verið sett fram eftirfarandi lausn:

"1. Sveitarfélagið Hornafjörður leggur til húsnæði án endurgjalds árið 2014 ( áætlast 1,5 mkr.)

2. Af framlagi til nýs Þekkingarseturs Nýheima árið 2014 verði varið 5 mkr. til verkefnisins (af 15,5 mkr.)

3. Mennta- og menningarmálaráðuneytið leggur til verkefnisins 3 mkr. framlag vegna ársins 2014.

4. Framlag Austurbrúar ehf verði skert um 2,8 mkr. en það er fjárhæð sem nemur hluta Hornafjarðar af samningsfjárhæð Austurbrúar ehf vegna framhaldsfr æðslu (55 mkr. * 30% sem er hlutur framhaldsfræðslunnar * 17% sem er hlutfall íbúa Hornafjarðar. Austurbrú hefur ekki verið kynnt þessi áform".

Á þessu má vera ljóst að um eins árs ákvörðun var að ræða.
Bæjarráð hafnar því ósk um frekari afsláttarkjör án rökstuðnings af hverju Sveitarfélagið Hornafjörður eigi að útvega húsnæði endurgjaldslaust þegar önnur sveitarfélög innan SASS gera það ekki.

10.
Fyrirspurn um skerðingu orlofsdaga vegna verkfalls tónlistakennara
Málsnúmer 201502106
Sveitarfélagið mun fara eftir gildandi kjarasamning sem SNS og FT gerðu. Bæjarráð getur ekki tekið sig út úr SNS og samið sérstaklega við einstakar stéttir um sérkjör.
11.
Umsögn um útgáfu leyfa Árshátíð Sveitafélagsins
Málsnúmer 201503032
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við útgáfu leyfisins.
12.
Fyrirspurnir - bæjarráð
Málsnúmer 201009100
Engar fyrirspurnir bárust.