Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

714. fundur
23. mars 2015 kl. 16:00 - 19:04
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Þórhildur Ásta Magnúsdóttir formaður
Lovísa Rósa Bjarnadóttir varaformaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður
Björn Ingi Jónsson bæjarstjóri
Starfsmenn
Bryndís Bjarnarson upplýsinga og gæðastjóri
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson
Dagskrá
1.
Heilbrigðis- og öldrunarnefnd - 3
Málsnúmer 1503003F
Bæjarráð fagnar hugmynd um málþing um öldrun og heilbrigði sem stendur til að halda á Höfn.
Fundargerð samþykkt.
2.
Menningarmálanefnd - 4
Málsnúmer 1503005F
Ásgerður spurði hvort ráðning tímabundins starfsmanns hafi gengið eftir, Vala upplýsti að starfsmaðurinn hefur störf eftir páska.
Fundargerð samþykkt.
3.
Menningarmálanefnd - 5
Málsnúmer 1503009F
Bæjarráð hefur falið bæjarstjóra að skoða möguleika á framtíðahúsnæði fyrir geymslur stofnana á vegum sveitarfélagsins. Sú vinna er í gangi og niðurstöðu að vænta síðar á þessu ári.
Í fjárhagsáætlun árisins 2015 voru settar 5 milljónir í Miklagarð. Nýta á þá fjármuni til að vinna forhönnun og kostnaðaráætlun vegna uppbyggingar Miklagarðs ásamt rekstrarlíkani fyrir húsið. Bæjarráð hefur áður sagt að ekki er hægt að ákveða hversu miklum peningum hægt er að verja í endurgerð hússins næstu þrjú árin fyrr en áætlaður heildarkostnaður liggur fyrir.
Bæjarráð gerir sér grein fyrir að setja þurfi mikla fjármuni í Miklagarð.
Fundargerð samþykkt.
4.
Fræðslu- og tómstundanefnd - 3
Málsnúmer 1502017F
Ásgerður spurði um breytingu á spurningalista vegna skoðannakönnunar leikskólamála. Björn Ingi upplýsti að athugasemdir sem hafi verið gerðar hjá fræðslu- og tómstundanefnd og starfsmannafundi hafi verið sendar til Félagsvísindastofnunar HÍ sem leggur könnunina fyrir.
Fundargerð samþykkt.
5.
Erindisbréf Ungmennaráðs 2015
Málsnúmer 201502032
Ungmennaráð og fræðslu- og tómstundanefnd hafa tekið erindisbréfið til efnislegrar meðferðar og samþykkt það fyrir sitt leyti.
Bæjaráð vísar erindisbréfinu til samþykktar í bæjarstjórn.
6.
Jafnréttisáætlun 2014-2018
Málsnúmer 201501073
Félagsmálanefnd hefur tekið jafnréttisáætlunina til efnislegrar meðferðar.
Bæjarráð hefur farið yfir jafnréttisáætlunina og gerir nokkrar ábendingar og felur félagsmálanefnd að fjalla um þær og vísa áætluninni til bæjarstjórnar.
7.
Reglur um tómstundastyrk
Málsnúmer 201501049
Fræðslu- og tómstundanefnd skipaði starfshóp til að endurskoða reglur um tómstundastyrk.
Bæjarráð óskar eftir að fræðslu- og tómstundanefnd fari betur yfir reglunar með tilliti til styttri skipulagðra námskeiða, þannig að 16 klst. námskeið væru styrkhæf.
8.
Reglur um niðurgreiðslu vegna daggæslu í einkahúsum
Málsnúmer 201211050
Jón Kristján fór yfir breytingar á reglunum. Félagsmálanefnd hefur fjallað efnislega um reglurnar og samþykkt þær fyrir sitt leyti.
Bæjarráð samþykkir reglur um niðurgreiðslu daggæslu í heimahúsum.
9.
Gjaldskrá sundlaugar 2015
Málsnúmer 201502092
Bæjarráð er sammála því að öll börn upp að 18 ára aldri í sveitarfélaginu fái frítt í sund. En sér sér ekki fært að samþykkta tillögu þess efnis að öll börn undir 18 ára aldri óháð búsetu fái frítt í sund. Gjaldskrá Sundlaugar stendur ekki undir rekstrarkostnaði því telur bæjarráð sér ekki fært að stíga lengra í eftirgjöf aðgangseyris.
Bæjarráð vísar gjaldskrá til afgreiðslu bæjarstjórnar.
10.
Efling leikskólastigsins
Málsnúmer 201501047
Aðgerðir til eflingar leikskólastigsins
Tillögur fræðslu-og tómstundarnefndar eru í tveim liðum og snúa að leikskólaliðanámi annarsvegar og hinsvegar að námi í leikskólakennarafræðum.
Í ljósi þess að framundan eru samningaviðræður við launafólk í aðildarfélögum starfsgreinasambands Íslands þ.m.t. Afli þar sem m.a. verður sérstaklega horft til kjara leikskólaliða, þá leggur bæjarráð til að sérstakar hvatningaraðgerðir til leikskólaliðanáms verði aðlagaðar að niðurstöðu nýrra kjarasamninga.
Bæjarráð tekur jákvætt í tillögur fræðslu- og tómstundanefndar til handa starfsfólki leikskólanna sem áformar að stunda nám á háskólastigi í leikskólakennarafræðum.
Bæjarráð hvetur til að tillögurnar verði kynntar vel fyrir starfsfólki.
11.
Endurbætur á Ráðhúsi
Málsnúmer 201502097
Tvö tilboð bárust í endurbætur á Ráðhúsi.
Kostnaðaráætlun hljóðar upp á 25.164.000 kr.
H. Cristiansen ehf. 26.570.634 kr. sem er 6% yfir kostnaðaráætlun.
Þingvað ehf. 23.525.550 kr. sem er 7% undir kostnaðaráætlun.
Bæjarráð samþykkir að ganga til samninga við lægstbjóðanda.
12.
Sindrabær Endurbætur 2015
Málsnúmer 201503061
Tillögur um útlt á Sindrabæ frá Glámu Kím lagðar fram.
Bæjarráð samþykkir að unnin verði kostnaðaráætlun með flísa og viðarklæðningu.
13.
Íbúð í Hofgarði á leigu
Málsnúmer 201503051
Erindi lagt fram þar sem óskað er eftir að fá íbúð sem er í skólahúsi í Hofgarði á leigu í sumar.
Bæjarráð samþykkir að íbúðin verði leigð út í sumar í því ástandi sem hún er og felur umsjónamanni fasteingna ásamt húsverði í Hofgarði að ganga frá málinu.Leiguverð verði samkvæmt reglum sveitarfélagsins.
14.
Samningur um rekstur upplýsingamiðstöðvar 2014-2015
Málsnúmer 201503053
Samnigur milli Sveitarfélagins Hornafjarðar og Ferðamálastofu um rekstur upplýsingamiðstöðvar ferðamanna lagður fram.
15.
Umsögn um útgáfu leyfa Surtsey ehf. fyrir Hraunhóll 4
Málsnúmer 201503033
Bæjarráð getur ekki gefið jákvæða umsögn um rekstrarleyfi til lögaðila um heimagistingu.
Bæjarráð bendir á reglugerð nr. 585/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald þar sem segir í 1. mgr. 10. gr.
"Heimagisting er gisting á einkaheimili leigusala og skal ávallt í það minnsta einn af heimilismönnum búa á heimilinu og gegna hlutverki næturvarðar"
Núverandi heimagistingarleyfi að Hraunhól 4 er á nafni Ólafs Jónssonar.
16.
Ósk um samstarf frá sveitarfélaginu Harku í Eistlandi
Málsnúmer 201403026
Ósk um heimsókn frá Harku í Eistlandi þar sem áhugi er fyrir að fá kynningu á stjórnsýslu og starfsemi sveitarfélagsins.
Bæjarráð samþykkir þátttöku í verkefninu.
17.
Umsókn um rekstrarleyfi Hafnarbraut 24
Málsnúmer 201412037
Bæjarráð getur ekki gefið jákvæða umsögn um rekstrarleyfi til lögaðila vegna heimagistingar.
Bæjarráð bendir á reglugerð nr. 585/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald þar sem segir í 1. mgr. 10. gr.
"Heimagisting er gisting á einkaheimili leigusala og skal ávallt í það minnsta einn af heimilismönnum búa á heimilinu og gegna hlutverki næturvarðar"
18.
Umsögn um rekstrarleyfi fyrir Bessadýr ehf.
Málsnúmer 201503048
Bæjarráð geri ekki athugasemd við útgáfu leyfis.
19.
Umsögn um breytt rekstrarleyfi fyrir heimagistingu hjá Mikley ehf.
Málsnúmer 201503049
Bæjarráð getur ekki gefið jákvæða umsögn um rekstrarleyfi til lögaðila vegna heimagistingar.
Bæjarráð bendir á reglugerð nr. 585/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald þar sem segir í 1. mgr. 10. gr.
"Heimagisting er gisting á einkaheimili leigusala og skal ávallt í það minnsta einn af heimilismönnum búa á heimilinu og gegna hlutverki næturvarðar"
20.
Umsókn um breytt rekstrarleyfi Mikley ehf.
Málsnúmer 201503050
Bæjarráð getur ekki gefið jákvæða umsögn um breytingu á rekstrarleyfi þar sem umsækjandi er ekki með leyfi í umræddu húsnæði.
21.
Umsögn um tækifærisleyfi Lionklúbb Hornafjarðar
Málsnúmer 201503054
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við útgáfu leyfis.
22.
Fyrirspurnir - bæjarráð
Málsnúmer 201009100