Bæjarráð Hornafjarðar
732. fundur
7. september 2015
kl.
16:00
-
19:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Þórhildur Ásta Magnúsdóttir
formaður
Lovísa Rósa Bjarnadóttir
varaformaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
aðalmaður
Björn Ingi Jónsson
bæjarstjóri
Starfsmenn
Ólöf Ingunn Björnsdóttir
fjármálastjóri
Fundargerð ritaði:
Ólöf I. Björnsdóttir
fjármálastjóri
Dagskrá
1.
Menningarmálanefnd - 8
Forstöðumaður Hornafjarðarsafna gerði grein fyrir fundargerðinni.
Fundargerð samþykkt.
Fundargerð samþykkt.
2.
Skipulagsnefnd - 8
Fundargerð samþykkt.
3.
Umhverfisnefnd - 7
Fundargerð samþykkt.
4.
Samþykkt um fráveitu í Sveitarfélaginu Hornafirði
Bryndís gerði grein fyrir vinnu við gerð samþykktarinnar, sem var yfirfarin og unnin í samstarfi við Heilbrigðiseftirlit Austurlands.
Lagt fram til kynningar og farið yfir verkferlið.
5.
Samþykkt um meðhöndlun úrgangs í Sveitarfélaginu Hornafirði
Bryndís gerði grein fyrir vinnu við gerð samþykktarinnar, sem var yfirfarin af Heilbrigðiseftirliti Austurlands.
Lagt fram til kynningar og farið yfir verkferlið.
6.
Loftlagsverkefni Landverndar, sveitarfélagsins og Sambandsins
Bryndís fór yfir aðgerðaráætlun um loftlagsverkefnið.
Aðgerðaráætlunin hefur verið unnin í samstarfi við Landvernd, og Samband íslenskra sveitarfélaga fyrirhugað er að undirrita aðgerðaráætlunina í október.
7.
Áskorun um að Sveitarfélaið Hornafjörður gerist móttökusveitarfélag fyrir flóttafólk frá Sýrlandi
Áskorun með undirskriftalista frá Ungmennaráði Hornafjarðar sem ungmennaráð afhenti bæjarstjórn lögð fram.
Bæjarráð þakkar Ungmennaráði frumkvæðið og áhugan á þessu mikilvæga málefni. Bæjarráð fól félagsmálastjóra á 731. fundi sínum að kanna möguleika á móttöku flóttafólks. Bæjarráð er jákvætt fyrir því að sveitarfélagið leggi sitt af mörkum við að aðstoða flóttafólk og er sú vinna í gangi.
8.
Möguleg móttaka flóttafólks
Minnisblað félagsmálastjóra með samantekt um mögulega móttöku flóttamanna til Hornafjarðar lagt fram.
Undanfarið hefur verið fjallað um þátttöku sveitarfélaga á Íslandi í móttöku flóttamanna frá Sýrlandi. Bæjarráði hefur m.a. borist áskorun frá ungmennaráði þar sem farið er þess á leit að Hornfirðingar taki þátt í aðgerðum stjórnvalda og bjóðist til þess að taka á móti flóttamönnum. Sveitarfélagið hefur reynslu af móttöku flóttafólks frá árinu 1997 þegar tekið var á móti 17 flóttamönnum frá Krajina.
Mikilvægt er að hafa í huga að móttaka flóttafólks er umfangsmikið, tímafrekt og kostnaðarsamt verkefni sem útheimtir nána samvinnu milli kerfa og stofnana, þátttöku íbúa og atvinnulífs. Það er skoðun bæjarráðs að þátttaka í slíku verkefni væri áhugaverð, krefjandi og gefandi áskorun.
Bæjarráð lýsir yfir áhuga á að koma að verkefninu. Bæjarráð felur félagsmálastjóra að setja sig í samband við fulltrúa velferðarráðuneytisins og fá nánari upplýsingar um verkefnið og kanna með hvaða hætti Sveitarfélag Hornafjarðar getur orðið að liði með þeim úrræðum sem sveitarfélagið býr yfir.

9.
Fjallsárlón Uppbygging
Ný gögn hafa verið sett inn undir þessu máli.
Lovísa vék af fundi undir þessum lið.
Bæjarráð heimilar útboð á grunni fyrirliggjandi gagna og umræðu á fundinum.
Bæjarráð heimilar útboð á grunni fyrirliggjandi gagna og umræðu á fundinum.
10.
Staða sveitarsjóðs 2015
Fjármálastjóri gerði grein fyrir stöðu sveitarsjóðs
Fjárhagsstaða er í samræmi við áætlanir.
11.
Fjárhagsáætlun 2016
Fjármálastjóri kynnti drög að dagskrá við gerð fjárhagsáætlunar 2016
Lagt fram til kynningar.
12.
Samkomulag um uppsögn á samningi um lögfræðiþjónustu
Björn Ingi fór yfir stöðu málsins.
Bæjarráð samþykkir uppsögn á samningi við Lögfræðiþjónustu Cato lögmanna um leið og þakkað er fyrir veitta þjónustu undanfarin ár.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að skoða þörf og fyrirkomulag lögfræðiþjónustu.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að skoða þörf og fyrirkomulag lögfræðiþjónustu.
13.
Ljósleiðaralagning Hrollaugsstaðir - Hali
Björn Ingi fór yfir áform Orkufjarskipta um lagningu ljósleiðara.
Sveitarfélaginu stendur til boða þátttaka í stofnkostnaði við lagningu ljósleiðara og tengja með því saman ljósleiðaranet í Öræfum og Suðursveit. Bæjarstjóra falið að fylgja málinu eftir.
14.
Ráðning Skipulagsstjóra
Bæjarstjóri upplýsti að fjórar umsóknir bárust í starf skipulagsstjóra og málið er í vinnslu.
15.
Starfsmannamál
Ásgerður vék af fundi undir þessum lið.
Bæjarstjóri gerði grein fyrir stöðu mála.
Bæjarstjóri gerði grein fyrir stöðu mála.