Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

736. fundur
5. október 2015 kl. 16:00 - 17:35
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Þórhildur Ásta Magnúsdóttir formaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður
Páll Róbert Matthíasson 1. varamaður
Björn Ingi Jónsson bæjarstjóri
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Björn Ingi Jónsson bæjarstjóri
Dagskrá
1.
útboð Fjallsárlón uppbygging
Málsnúmer 201510007
Björn Imsland sat fundinn undir þessum lið. Farið yfir tilboð sem bárust í jarðvinnu og lagnir við Fjallsárlón. Þrjú tilboð bárust í verkið.
Rósaberg ehf. 49.209.090 kr.
Framrás ehf. 46.216.300 kr.
Jökulfell ehf. 41.084.550 kr.

Kostnaðaráætlun er 52.106.500 kr.
Bæjarráð samþykkir að ganga til samninga við Jökulfell ehf. sem er lægstbjóðandi.
2.
Staða og þróun á húsnæðismarkaði
Málsnúmer 201510010
Jón Kristján sat fundinn undir þessum lið. Farið yfir greinagerð um húsnæðismál. Ljóst er að skortur er á íbúðarhúsnæði til langtíma leigu. Starfsmönnum falið að vinna áfram að málinu og þeim ábendingum sem fram komu á fundinum.
Málið tekið fyrir á næsta fundi bæjarráðs
3.
Ljósleiðaravæðing Íslands
Málsnúmer 201510011
Björn Ingi, Ásgerður K. og Gunnhildur I áttu samtal við Pál Jóhann Pálsson sem situr í ljósleiðaravæðingu Íslands. Farið yfir áform ríkisins í uppbyggingu ljósleiðara heim á hvern bæ á Íslandi. Eftir er að tengja ljósleiðara á Mýrum, hluta Nesja og í Lóni í sveitarfélaginu Hornafirði. Þeim upplýsingum var komið á framfæri í samtali við þingmanninn.
4.
Svæðisskipulag Suðurlands skoðun
Málsnúmer 201508022
Lagt fram til kynningar.
5.
Eigendastefna fyrir þjóðlendur, verkefnalýsing
Málsnúmer 201509121
Farið yfir verklýsingu.
Bæjarráð mun senda inn ábendingar um verkefnalýsingu er varðar lengd samninga og nýtingu tekna af þjóðlendum.
6.
Beiðni um fjárhagslegan stuðning vegna Clyne Castle
Málsnúmer 201509139
Bæjarráð vísar erindinu til menningarmálanefndar.
7.
Breytingar á verðskrá 1.okt 2015
Málsnúmer 201509141
Lagt fram til kynningar.
8.
Fulltrúaráðsfundur Eignarhaldsfél. Brunabótafél. Ísl
Málsnúmer 201510012
Lagt fram til kynningar.
9.
Sjávarþorpið Höfn
Málsnúmer 201502100
Fanney Björg Sveinsdóttir og Árdís Erna Halldórsdóttir mættu á fundinn og kynntu niðurstöður á verkefninu Sjávarþorpið Höfn. Verkefnið er grasrótarverkefni sem hófst vor 2013. Nú er verkefnið formlega afhent sveitarfélaginu til að fylgja málinu eftir. Verkefnið byggir á samstarfi fyrirtækja/einstaklinga, stofnana og sveitarfélagsins.